Morgunblaðið - 25.05.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.05.2018, Blaðsíða 17
fækka greinum getur einnig gert mikið gagn.“ Jarðvegurinn í gömlu görðunum gæti líka verið orðinn þreyttur og hægt að fríska upp á hann með áburði og kalki, og jafnvel hlassi af moltumold. „Ef mikill mosi er í gras- flötinni þá er sennilegasta skýringin sú að of mikill skuggi er í garðinum og skánar ástandið strax og meiri birta kemst að svo að mosinn hörfar undan. Kalk- og áburðargjöf er einn- ig góð gegn mosa, og að börn og full- orðnir fari út að leika á grasflötinni. Fólk verður jafnframt að muna að ef það vill ekki mosann þá þarf að gæta þess að slá grasið ekki of snöggt. Ætti að skilja eftir um 5 cm af gras- inu til að grasrótin verði nógu sterk og mosinn nái ekki yfirhöndinni.“ Útpælt Gaman er að hafa garðinn litríkan, og velja plöntur sem blómstra á ólíkum tímum. Möguleikar Blómapottar lífga upp á svalirnar, en huga þarf að vökvuninni. Aðlaðandi Sígrænu plönturnar hjálpa til að gera garðinn fallegan allt árið um kring. FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018 MORGUNBLAÐIÐ 17 Þeir sem hafa græna fingur geta fengið útrás fyrir ræktunarþörf- ina þó þeir hafi ekki aðgang að garði. Hæfilega stórar svalir geta rúmað nokkra blómapotta og gaman að dunda sér við það á góðviðrisdögum að planta í þá litríkum blómum. „Ýmsar trjá- plöntur geta líka lifað vel í góðum potti, s.s. birki, blágreni, sýprus, kvistar, einir og duglegar rósir, en um leið og tré og blóm eru komin í potta verður að huga vel að vökvuninni,“ segir Lára. „Jafnvel þó það sé vætusamt er ekki víst að nægilega mikið af rigningu berist ofan í pottinn og þarf fólk að vera vakandi fyrir því að vökva plönturnar í pottunum reglu- lega.“ Blómapottarnir geta líka hent- að undir nytjaplöntur og segir Lára upplagt að rækta t.d. kletta- kál í potti úti á svölum eða ver- önd. „Það má síðan plokka blöðin af salatinu allt sumarið, og bera fram ferskt, eða rækta uppá- haldskryddjurtirnar til að bragð- bæta matinn. Góð gróðurmold er alltaf ávísun á góðan vöxt.“ Metnaðar- full ræktun á svölunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.