Morgunblaðið - 25.05.2018, Side 22

Morgunblaðið - 25.05.2018, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018 Askalind4,Kópavogi Sími 564 1864 www.vetrarsol.is w w w .h el iu m .is Sláuvél með dri B&S 450E mótor Hækkun í einu handfangi 55 lítra graskassi Frábær heimilisvél Lúxus sláuvél með dri B&S 625E mótor, auðveld gangsetning Tvískiptur sláuhnífur, slær 2svar 70 lítra kassi, "notendavænn" Frábær vél í estan slá Sga Collector 46 SB Sga TwinClip 50 SB Sjálfskiptur lúxus sláutraktór Kawazaki FS600V mótor, þrýssmurður Notendavænt sæ og stýri 320 lítra graskassi Frábær traktór í stærri svæði Sga Estate 7102 H Léttu þér lífið með Stiga sláttuvél Elínrós Líndal elinros@mbl.is H afsteinn Hafliðason má fullyrða að sé einn þekkt- asti garðyrkjumaður Ís- lands. Hann hlaut nýverið heiðursverðlaun garðyrkjunnar. Hann starfaði lengst af hjá Blóma- vali en er nú sjálfstætt starfandi ráðgjafi um allt sem lýtur að rækt- un. Hafsteinn hefur auk þess starfað sem garðyrkjustjóri í tveimur sveitarfélögum. Hann hefur komið að kennslu í Garðyrkjuskóla LbHÍ, setið í ritstjórn Garðyrkjuritsins um árabil og verið mjög virkur í leiðbeiningum á ræktunarsíðum á Facebook. Deilir reynslu og þekkingu til annarra Það sem vekur athygli þegar ferill hans er skoðaður er að hann hefur alla tíð verið einstaklega duglegar að miðla þekkingu sinni til almenn- ings og þar af leiðandi haft mót- andi áhrif á garðyrkju í landinu. Að sögn Hafsteins hafði vest- firskt sveitalíf um miðbik síðustu aldar ein mestu kennsluáhrifin á hann. Hann man eftir því að hafa sáð fyrir radísum og komið til græðlingum af iðnulísu þegar hann var einungis fimm ára að aldri. Svo snemma hefur örlað á áhuga hans á því sem seinna varð lífs- starf hans. Hefur alltaf gert hlutina á sinn hátt Aðspurður hvernig hann hafi ræktað þennan áhuga með ár- unum segir hann að það að fylgj- ast með og reyna að fara eftir því sem honum var sagt hafi gert gæfumuninn. Þó hafi hann alltaf gert hlutina á sinn hátt. Hafsteinn segir að útsjón- arsemi, skilningur og þolinmæði séu lykilatriði sem þurfi að hafa með þegar maður ætlar að rækta góðan garð. „Einnig góð hné og sterkt bak,“ segir hann og brosir. Fallegur garður er sá sem er sinnt af ást Aðspurður hvað sé fallegur garð- ur að hans mati stendur ekki á svari: „Sérhver garðhola sem sinnt er af ást og alúð er fallegur garður að mínu mati.“ Hafsteinn telur jafnframt að garðyrkja sé þannig að maður þurfi að gefa sér góðan tíma og leyfa sér að þroskast og dafna í þessu sem öðru. Að örvænta ekki sé lykilatriði tengt garðyrkju og að muna að hlutirnir ganga alltaf betur næst. Elska náungann og bjóða honum í garðinn Hverju ættum við að gera meira af hér á Íslandi? „Elska náungann og bjóða hann velkominn í garðinn okkar til að dunda þar með okkur,“ seg- ir hann. En minna af? „Fjargviðrast út af pöddunum og illgresinu. Það líf hefur líka sinn rétt.“ Þegar kemur að blómum í kringum hann heima segist hann fara eftir máltækinu komi þeir sem koma vilja og veri þeir sem vera vilja. Hann notar þetta sem hornstein fyrir þau blóm sem lifa hjá honum. Það er greinilegt að í garðyrkju verður maður að passa að taka hlutina ekki persónulega frekar en annars staðar í lífinu. Plöntur skynja heiðarleika Hafsteinn er á því að plöntur hafi sterkt innsæi og í umhirðu þeirra verði að sýna raunverulega um- hyggju en ekki fals. „Plöntur skynja hverjir elska þær.“ En er mikilvægt að hans mati að hafa frið í hjartanu og sálinni til að hafa áhuga á garðinum? „Nei, ekki í byrjun, en friðurinn kemur með garðyrkjunni,“ segir hann. Virði fæst með því að deila áfram Hafsteinn sér snjalla framtíðina þannig fyrir sér að kirkjugarð- arnir verða þéttsetnir. Malbikaðir stígar og tölvuvætt skráning- arkerfi. „Í þeim er grafið meðan græft er. En öll viðföng koma ut- an frá.“ Að lokum vill hann benda fólki á að þótt garðurinn sé fallegur, vel hirtur og mikið til hans kost- að: „Þá er mikilvægt að muna að hann er einskis virði nema þú deilir honum með meðbæðrum þínum.“ Plöntur skynja heiðarleika og raunverulega ást Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Grænir fingur Hafsteinn Hafliðason er sérfræðingur þegar kemur að garðrækt og blómum og að hans mati er sérhver garðhola sem sinnt er af ást og alúð fallegur garður. Hann minnir á að þótt garðurinn sé fallegur, vel hirtur og mikið til hans kostað „þá er hann einskis virði nema þú deilir honum með meðbæðrum þínum.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.