Fréttablaðið - 26.07.2018, Qupperneq 4
MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN
UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
LOKAÐ Á LAUGARDÖGUM Í SUMAR FRÁ 16. JÚNÍ TIL OG MEÐ 4. ÁGÚST
®
DÍSEL 2.2 185 HÖ. 9 GÍRA SJÁLFSKIPTUR.
AUKAHLUTAPAKKI: MÁLMLITUR, 18” ÁLFELGUR, 30” DEKK, 8,4” SKJÁR, LEIÐSÖGUKERFI OG PREMIUM HLJÓÐKERFI,
LYKILLAUST AÐGENGI, FJARSTART OG RAFMAGNS AFTURHLERI. TAKMARKAÐ MAGN BÍLA Í BOÐI.
JEEP 7 DAGA VIKUNNAR. ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.
AUKAHLUTAPAKKI AÐ VERÐMÆTI 860.000 KR. FYLGIR FRÍTT MEÐ.
TILBOÐSVERÐ 6.690.000 KR.
®
JEEP CHEROKEE LONGITUDE®
jeep.is
KJARAMÁL Enginn lagalegur grund-
völlur er fyrir útreikningum á
árlegum meðaltölum reglulegra
launa ríkisstarfsmanna heldur eru
þeir í samræmi við þær aðferðir sem
Hagstofan ákvarðar hverju sinni.
Breytingar geta orðið á meðaltal-
inu vegna umbóta á aðferðum eða
gögnum sem liggja þar að baki.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í umsögn Hagstofunnar um
drög að frumvarpi um breytingu á
ýmsum lögum vegna brottfalls laga
um kjararáð um síðustu mánaða-
mót. Frumvarpsdrögin voru kynnt
í samráðsgátt ríkisstjórnarinnar en
frestur til athugasemda rann út fyrir
helgi. Drögin byggja á vinnu starfs-
hóps sem forsætisráðherra skipaði í
upphafi árs. Umsögn Hagstofunnar
var sú eina sem barst.
Í drögunum er lagt til að laun
þjóðkjörinna fulltrúa, dómara, sak-
sóknara og ríkissáttasemjara verði
ákveðin með fastri upphæð í lögum.
Upphæðin er nú sú sama og fram
kom í síðustu ákvörðunum kjarar-
áðs fyrir hópana. Upphæðin kemur
síðan til með að taka breytingum 1.
maí ár hvert með hliðsjón af fyrr-
greindu meðaltali. Til bráðabirgða
munu laun presta og biskups taka
sömu breytingum þar til samkomu-
lag um nýtt fyrirkomulag launa
þeirra næst. Aðrir færast undir
kjaradeild fjármálaráðuneytisins.
Í athugasemd Hagstofunnar
er þess einnig getið að það fyrir-
komulag sem lagt er til geti leitt til
hringrásar. Það er, hærra meðaltal
reglulegra launa hækkar laun þeirra
sem falla undir frumvarpsdrögin.
Til útskýringar má taka það dæmi
ef fyrrgreint meðaltal hækkar um
sjö prósent. Laun hópsins munu þá
sjálfkrafa hækka um sjö prósent 1.
maí. Þar sem hópurinn er reiknaður
inn í meðaltalið kemur hækkun
hans til með að hækka meðaltalið
aftur. Sú hækkun hækkar launin á
ný, sem hækkar meðaltalið, sem
hækkar launin og svo framvegis. Hið
sama gildir ef meðaltalið lækkar.
Samkvæmt tölum frá fjármála-
og efnahagsráðuneytinu eru ríkis-
starfsmenn um 21 þúsund talsins en
stöðugildin eru eilítið færri. Í hópn-
um sem fellur undir hina sjálfvirku
breytingu eru á annað hundrað
manns og því má leiða að því líkur
að breytingar á launum þeirra komi
til með að hafa minniháttar áhrif.
joli@frettabladid.is
Hringrásarhækkun launa
fylgifiskur arftaka kjararáðs
Ein umsögn barst um fyrirhugaðar breytingar á ýmsum lögum vegna brottfalls kjararáðs. Drögin nú byggjast
á vinnu starfshóps sem forsætisráðherra skipaði um málefnið. Laun ákveðins hóps verða ákveðin með
lögum og munu breytast í samræmi við meðaltalslaun ríkisstarfsmanna. Kjör þeirra hafa áhrif á meðaltalið.
Þingið felldi lög um kjararáð úr gildi í vor. Nýtt fyrirkomulag á að verða að lögum í árslok. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hver mun ákveða laun hverra?
Lögákveðin laun
Forseti Íslands
Þingmenn
Ráðherrar
Dómarar
Saksóknarar
Seðlabankastjóri
Ríkissáttasemjari
Laun ákveðin af forsætisnefnd
Ríkisendurskoðandi
Umboðsmaður Alþingis
Færast undir kjaraskrifstofu
fjármálaráðuneytisins
Yfirskattanefnd
Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála
Kærunefnd útlendingamála
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Forstöðumenn ríkisstofnana
Laun ákveðin af forsætis- og
fjármálaráðherra
Ráðuneytisstjórar
NEYTENDUR Upplýsingar við lántöku
hjá öppunum Aur, Pei og Greitt voru
ekki í samræmi við kröfur sem gerð-
ar eru í lögum um neytendalán. Þetta
leiddi athugun Neytendastofu í ljós.
Könnun stjórnvaldsins hófst í
febrúar og voru rekstrar aðilar beðnir
um afrit af stöðluðu eyðublaði um
lánssamning sem þeir nota. Með
athuguninni vildi Neytendastofa
kanna hvort neytendum séu veittar
allar viðeigandi upplýsingar.
Könnunin leiddi í ljós að hjá öllum
fyrirtækjunum þremur uppfylltu
upplýsingar á stöðluðu eyðublaði
annars vegar og hins vegar láns-
samningi ekki þær kröfur sem lög
um neytendalán gera ráð fyrir.
Neytendastofa hefur gefið
rekstrar aðilum smáforritanna fjög-
urra vikna frest til að laga vankanta
sem komu í ljós við athugunina.
Verði ekki orðið við því mega þau
eiga von á dagsektum. Bæði Aur og
Pei hafa tilkynnt stofnuninni að sú
vinna sé hafin en ekkert slíkt skeyti
hefur borist frá Greitt. – jóe
Ófullnægjandi
upplýsingagjöf
við lántöku
LÖGREGLUMÁL Landsréttur staðfesti
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni
sem grunaður er um fjölda afbrota.
Maðurinn var í síðasta mánuði
dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir
umferðar-, fíkni-, hegningar- og
vopnalagabrot.
Undanfarna tvo mánuði hefur
hann ítrekað verið gripinn með
þýfi og fíkniefni í fórum sínum. Þá
er hann grunaður um hylmingu,
akstur undir áhrifum fíkniefna og
nytjastuld.
Lögreglan fór fram á að hann sætti
gæsluvarðhaldi þar sem yfirgnæf-
andi líkur væru á því að hann myndi
ella halda brotum sínum áfram. Á
þetta féllst héraðsdómari. Lands-
réttur staðfesti úrskurð héraðsdóms
og verður heimilt að hafa manninn í
gæsluvarðhaldi til 17. ágúst. – jóe
Síbrotamaður í
gæsluvarðhald
HEiLbRiGðisMÁL Nýtt lyf til með-
ferðar á sársauka vegna legslímu-
flakks, eða endómetríósu, var
nýlega samþykkt í Bandaríkjunum.
Ester Ýr Jónsdóttir, varaformaður
Samtaka um endómetríósu, segist
fagna nýjum meðferðarúrræðum.
Sjúkdómurinn lýsir sér þannig
að frumur úr innra lagi legsins finn-
ast á öðrum stöðum í kviðarholinu
sem veldur sársauka, blöðru- og
þarmavandamálum auk ófrjósemi.
Leg slímuflakk er lítið rannsakað og
lækning ekki þekkt. Oft er sársauk-
inn mikill þegar konur eru á blæð-
ingum eða stunda kynlíf.
Hingað til hefur sársauki og ófrjó-
semi verið meðhöndluð með lyfja-
og hormónameðferð. Ester segir
misjafnt hvort slíkt henti. „Það er
ofsalega misjafnt hvort meðferðin
hefur jákvæð áhrif á einkennin. Það
er alls ekki gefið. Það er ofboðsleg
vanþekking á sjúkdómnum og
margar konur fá ekki meðhöndlun
við hæfi.“ Hún segir dæmi þess að
konur með endómetríósu verði
fyrir fordómum af hálfu heilbrigðis-
starfsfólks. „Ég hugsa að stór hluti
þess sé að þetta er kvensjúkdómur;
konur eru taldar móðursjúkar eða
ekki tekið mark á þeim.“
Lyfið heitir Orilissa. Á rann-
sóknar stigi náðist nokkur árangur
með lyfinu. Eitthvað var um auka-
verkanir, höfuðverki og svefn-
erfiðleika. „Það er mikilvægt fyrir
konur með endómetríósu að
komast til læknis sem hefur sér-
þekkingu á sjúkdómnum. Við hjá
samtökunum bendum konum á að
hafa samband við okkur í gegnum
heimasíðuna okkar.“ – jt, ósk
Nýtt lyf við legslímuflakki samþykkt í Bandaríkjunum
Konur eru taldar
móðursjúkar eða
ekki tekið mark á þeim
Ester Ýr Jónsdóttir, varaformaður
Samtaka um endómetríósu
2 6 . J ú L í 2 0 1 8 F i M M T U D A G U R4 F R é T T i R ∙ F R é T T A b L A ð i ð
2
6
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
7
6
-0
1
6
0
2
0
7
6
-0
0
2
4
2
0
7
5
-F
E
E
8
2
0
7
5
-F
D
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K