Fréttablaðið - 26.07.2018, Page 8

Fréttablaðið - 26.07.2018, Page 8
Þýskaland Carles Puigdemont, hinn útlægi fyrrverandi forseti Katalóníuhéraðs Spánar, hélt í gær sinn fyrsta blaðamannafund frá því hæstiréttur Spánar ákvað að fella niður handtökuskipun á hendur honum ádögunum. Sú ákvörðun var tekin eftir að Þjóðverjar neituðu að framselja Puigdemont. Puigdemont  fór upphaflega í útlegð til Brussel, höfuðborgar Belg- íu. Á leið sinni aftur þangað eftir að hafa fundað með þingmönnum í Finnlandi var Puigdemont hins vegar handtekinn í Þýskalandi. Í gær sagðist Puigdemont ætla að ferðast aftur til Brussel á laugardag- inn. „Ég tek með mér þúsundir bréfa frá Þjóðverjum sem hafa sent mér stuðningsyfirlýsingar,“ sagði hann. Puigdemont sagðist hvergi nærri hættur baráttunni fyrir sjálfstæði Katalóníu, en ástæða útlegðarinnar er sú að hann hefur verið ákærður fyrir uppreisn gegn spænska ríkinu vegna sjálfstæðisyfirlýsingar sinnar í fyrra eftir ólöglega atkvæðagreiðslu um sjálfstæði héraðsins. „Ákvörðun katalónsku þjóðar- innar um að lýsa yfir stofnun sjálf- stæðs lýðveldis er staðreynd,“ sagði Puigdemont sem krafðist þess að Spánn virti vilja Katalóna. Alls greiddu 92 prósent kjósenda atkvæði með sjálfstæði í fyrrnefndri atkvæðagreiðslu. Kjörsókn var þó einungis 43 prósent, bæði vegna afskipta spænsku lögreglunnar af kosningunum og sniðgöngu sam- bandssinna. Þá tjáði Puigdemont sig um Pedro Sanchez, formann Sósíalistaflokks- ins, sem tók við forsætisráðuneyt- inu á dögunum eftir að vantraust var samþykkt á Mariano Rajoy úr Lýðflokknum. Nokkur þíða er komin í samskipti héraðsstjórnarinnar við ríkið eftir ríkisstjórnarskiptin og fundaði Quim Torra, aðskilnaðarsinninn sem tók við forsetastólnum af Puigdemont, til að mynda með Sanchez fyrr í mánuðinum. Puigde- mont fagnaði því að viðræður hefðu átt sér stað og vakti máls á því að málflutningur spænska ríkisins hefði breyst. „En við þurfum að sjá aðgerðir, ekki bara innantóm orð,“ sagði Puigdemont. Evrópusambandið hefur ekki viljað hafa bein afskipti af sjálf- stæðismálinu. Puigdemont sagði að sýnin um sjálfstæða Katalóníu hafi alltaf falið í sér aðild að ESB. Aðspurður hvað honum fyndist um að ESB styddi baráttu hans ekki svaraði hann: „Er Evrópusambandið bara aðildarríkin? Því að við höfum notið stuðnings evrópskra borgara sem eru ekki hrifnir af mannrétt- indabrotum innan Evrópusam- bandsins.“ thorgnyr@frettabladid.is Hættir ekki baráttunni Hinn útlægi fyrrverandi héraðsforseti Katalóníu snýr aftur til Brussel á laugar- daginn. Segist ætla að halda áfram baráttunni fyrir sjálfstæði Katalóníuhéraðs. simbabve Nelson Chamisa, forseta- frambjóðandi Hreyfingarinnar fyrir lýðræðisumbætur (MDC) í Sim- babve, sagðist í gær sigurviss þrátt fyrir að kjörstjórn „svindlaði og prettaði“ til þess að hjálpa Emmer- son Mnangagwa, sitjandi forseta og frambjóðanda Afríska þjóðarbanda- lags Simbabve (ZANU-PF). Kjörstjórnin er hliðholl Mnang- agwa og kosningarnar verða ein- tómt svindl, að því er Chamisa heldur fram. „Við munum vinna bæði dómarann og andstæðinginn. Við leyfum þeim ekki að komast upp með þetta,“ sagði hann á blaða- mannafundi. Til stuðnings máli sínu benti hann á að kjörstjórn hafi ekki viljað veita upplýsingar um hversu margir kjörseðlar hafi verið prentaðir né hvernig öryggi þeirra væri tryggt. Orðrómur hafði verið uppi um að Chamisa myndi draga framboð sitt til baka og hvetja til sniðgöngu. Því hafnaði hann. „Við getum ekki sniðgengið eigin sigur. Sigurvegarar hætta ekki bara. Á þriðjudaginn verður kominn nýr forseti. Það er óumflýjanlegt. Við erum óstöðv- andi,“ sagði Chamisa við stuðnings- menn, en kosið er á mánudag. Mnangagwa bannaði stjórnar- andstæðingum í gær að mótmæla kjörstjórninni í höfuðborginni Har- are. „Ef einhver stuðlar að stjórn- leysi munu lögin hafa yfirhöndina. Við leyfum ekki glundroða í landinu okkar. Við viljum frið,“ sagði for- setinn. – þea Mnangagwa sakaður um að svindla í kosningunum sýrland Að minnsta kosti fimmtíu fórust og 78 særðust þegar vígamenn hryðjuverkasamtakanna Íslamska ríkisins gerðu röð sjálfsmorðsárása í suðvesturhluta Sýrlands í gær, einkum á vegfarendur í borginni Sweida. Frá þessu greindu sýrlenskir miðlar í gær. Bresku samtökin Syrian Observatory for Human Rights sögðu að hundrað hefðu farist, hið minnsta. Árásirnar eru þær mannskæðustu sem gerðar hafa verið á yfirráðasvæði ríkisstjórnar Bashars al-Assad forseta að undanförnu. Hryðjuverkasamtök- in hafa barist við Assad-liða á svæðinu að undanförnu. Samkvæmt ríkisfréttastöðinni SANA sprengdu tveir árásarmenn sig í loft upp í Sweida. Syrian Observa- tory for Human Rights greindi frá því að árásarmenn fyrir utan borgina hafi tekið almenna borgara í gíslingu. – þea Hrina sjálfsmorðsárása í Sýrlandi Puigdemont er hvergi nærri hættur sjálfstæðisbaráttunni. NordicPhotos/AFP Emmerson Mnangagwa, forseti sim- babve. NordicPhotos/AFP HAFNARFJARÐARBÆR RÁÐHÚS HAFNARFJARÐAR STRANDGÖTU 6 ÞJÓNUSTUVER OPIÐ FRÁ KL. 8.00 – 16.00 ALLA VIRKA DAGA 585 5500 hafnarfjordur.is SKIPULAGSLÝSING Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 23 maí s.l. breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna færslu á háspennulínu við Hamranes. Þegar vinna við gerð aðalskipulagstillögu hefst skal sveitarstjórn taka saman lýsingu á skipulagsverkefni þar sem fram kemur hvaða áherslur sveitarstjórn ha við aðalskipulagsgerðina og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli, svo sem um kynningu og samráð við skipulagsgerðina gagnvart íbúum og öðrum hagsmunaaðilum. Lýsingu er hægt að nálgast á hafnar ordur.is. Skri„egar ábendingar sendist á: hafnar ordur@hafnar ordur.is eigi síðar en 9. ágúst 2018. Þormóður Sveinsson Skipulagsfulltrúi Hafnar‡arðarbæjar Umhver“s- og skipulagsþjónusta, Norðurhella 2, 221 Hafnar örður, Sími 585 5500 www.hafnar ordur.is Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna bráðabirgðaflutnings á Hamraneslínu I og II. 2 6 . j ú l í 2 0 1 8 F i m m T U d a G U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð 2 6 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 7 6 -2 8 E 0 2 0 7 6 -2 7 A 4 2 0 7 6 -2 6 6 8 2 0 7 6 -2 5 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.