Fréttablaðið - 26.07.2018, Side 19

Fréttablaðið - 26.07.2018, Side 19
Þorvaldur Gylfason Í dag Brisbane – Konur höfðu ekki kosningarrétt í Grikklandi til forna eða í Róm og ekki heldur í Bandaríkjunum og Evrópu þegar lýð- ræði ruddi sér þar til rúms á 19. öld. Fyrstir til að veita konum kosningar- rétt á landsvísu urðu Ný-Sjálendingar 1892, síðan komu Ástralar 1902, Finnar 1906, Norðmenn 1913 og Danir og Íslendingar 1915. Til saman- burðar fengu konur í Sádi-Arabíu ekki kosningarrétt fyrr en 2015 og þá aðeins til sveitarstjórna; kosningar- réttur karla þar er einnig bundinn við sveitarstjórnir. Hér segir frekar frá Ástralíu. Ástralíu vegnar vel Ástralía er næsti bær við Norður- lönd. Áströlum hefur vegnað vel frá aldamótunum 1900 þegar þeir stofnuðu sambandsríki sitt í núverandi mynd. Svo vel hefur þeim vegnað að Ástralía hefur staðið þétt við hlið Noregs skv. velferðar- vísitölu Sameinuðu þjóðanna (e. Human Development Index) frá því mælingar hófust 1990. Þessi vísitala tekur mið af tekjum, menntun og heilbrigði þar eð tekjur í þröngum skilningi segja ekki allt sem segja þarf um afkomu fólks. Noregur hefur allar götur frá 2001 skipað efsta sæti velferðarlistans sem nær yfir flestar þjóðir heimsins. Nú skipar Ástralía annað sæti listans skv. nýjustu tölum SÞ frá 2015. Meðaltekjur Ástrala eru að vísu ekki næsthæstar í heimi. Það sem lyftir þeim upp í annað sæti er mikil rækt við menntun og heil- brigði. Ástralar búa við svipað langlífi og Íslendingar að meðaltali, 82-83 ár á móti 79 árum í Banda- ríkjunum. Ástralíu vantar tvö stig upp á fullt hús stiga skv. lýðræðis- vísitölu Freedom House, fær 98 stig af 100 borið saman við 100 í Noregi, 95 á Íslandi og 86 í Bandaríkjunum. Ástralía missir tvö stig vegna eftir- stöðva gamals misréttis sem afkom- endur frumbyggja landsins hafa mátt þola. Þeir telja um 3% mannfjöldans sem er 25 milljónir. Ójöfnuður í tekjuskiptingu er minni í Ástralíu en í Bretlandi, Kanada og Írlandi og mun minni en í Bandaríkjunum ef miðað er við hlutdeild tekjuhæsta hundraðshluta heimilanna í heildar- tekjum. Ójöfnuðurinn er þó meiri en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Raðval Ástralar búa við sams konar flokka- kerfi og Bretar þar sem tveir flokkar gnæfa yfir einn eða fleiri smáflokka. Brezka kosningakerfið byggir á einmenningskjördæmum og færir smáflokkum miklu færri þingsæti en svarar til kjörfylgis þeirra. Brezkar ríkisstjórnir hafa því iðulega minni hluta kjósenda að baki sér. Ástralar hafa annan hátt á. Þeir styðjast við raðval (e. ranked-choice voting) sem leyfir kjósendum að raða flokkum og frambjóðendum í forgangsröð til að halda fjölda ónýtra atkvæða í lágmarki. Þessi aðferð leyfir kjós- endum minni flokka að gera einnig upp á milli stóru flokkanna og eyðir þannig áhyggjum kjósenda af að þeir kasti atkvæðum sínum á glæ með því að fylgja sannfæringu sinni. Kerfið tryggir að ríkisstjórnir Ástralíu hafa nær alltaf meiri hluta kjósenda að baki sér. Verkamannaflokkurinn annars vegar og hins vegar Frjáls- lyndi flokkurinn og Þjóðarflokkurinn sem er miklu minni hafa skipzt á að stjórna landinu frá 1972, nokkurn veginn jafnlengi hvor fylking um sig. Raðval færist í vöxt um heiminn og var t.d. notað við stjórnlagaþings- kosninguna á Íslandi 2010. Kosningaskylda Þetta er ekki allt. Ástralar innleiddu kosningaskyldu 1924. Æ síðan hefur áströlskum kjósendum borið laga- skylda til að mæta á kjörstað. Við þessa breytingu jókst kjörsókn í þing- kosningum úr 59% 1922 í 91% 1925 og hefur jafnan síðan verið á því róli. Tilgangurinn með breytingunni var samt ekki að örva kjörsókn, heldur bæta lýðræðið. Vissulega felst í því frelsisskerðing að þurfa að mæta á kjörstað líkt og það skerðir frelsi manna að þurfa að greiða skatta, gegna skólaskyldu og herþjónustu, sitja í kviðdómi o.s.frv. Málið snýst um að skylda menn með lögum til að una minni háttar frelsis- skerðingu til að tryggja framgang mikilvægra samfélagsmarkmiða. Þetta er hugsunin á bak við lögboðna kosningaskyldu. Sumir eru andvígir kosningaskyldunni og telja að sumt fólk eigi ekkert erindi á kjörstað. Aðrir telja reynsluna sýna að stjórn- völd taki meira tillit til allra kjós- enda þegar öllum er skylt að kjósa. Enn aðrir benda á að tiltölulega fáir Ástralar eru flokksbundnir, þeir þurfa þess ekki þar eð einn tilgangur stjórn- málaflokka er að smala kjósendum á kjörstað. Smölun á kjörstað með tilheyrandi kostnaði er óþörf þegar lögin kveða á um kosningaskyldu að viðlögðum sektum. Kosninga- skylda hneigist því til að draga úr veldi stjórnmálaflokka. Stjórnvöld í Ástralíu reyna að gera mönnum eins auðvelt að kjósa og framast er unnt í svo dreifbýlu landi. Kosningaskylda kallar á að framkvæmd kosninga njóti trausts. Kosningaskylda er lögboðin m.a. í Argentínu, Belgíu, Brasilíu, Lúxemborg og Singapúr. Næsti bær við Norðurlönd Vissulega felst í því frelsisskerð- ing að þurfa að mæta á kjörstað líkt og það skerðir frelsi manna að þurfa að greiða skatta, gegna skólaskyldu og herþjónustu, sitja í kviðdómi o.s.frv. Málið snýst um að skylda menn með lögum til að una minni háttar frelsisskerðingu til að tryggja framgang mikilvægra samfélags- markmiða. NÝR FJÓRHJÓLADRIFINN E-PACE Búnaður í Jaguar E-Pace S D150 er m.a.: 10” Touch Pro skjár, símkerfi, 125w Jaguar hljómkerfi, LED-aðaljós með einkennandi dagljósum, 18” álfelgur, leðursæti, rafdrifin framsæti með 10 stillingum, íslenskt leiðsögukerfi, rafdrifnir upphitaðir speglar með sjálfvirkri deyfingu og aðkomuljósum, varadekk, neyðarhemlunarbúnaður, bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar að framan og aftan, akreinavari. jaguarisland.is THE ART OF PERFORMANCE VERÐ FRÁ: 6.990.000 KR. Jaguar E-Pace S D150, fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur. E N N E M M / S ÍA / N M 8 9 1 6 1 J a g u a r E - P a c e S D 1 5 0 j ú lí a lm e n n 5 x 2 0 JAGUAR E-PACE S VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR JAGUAR HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK SÍMI: 525 6500 S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 2 6 . j ú L Í 2 0 1 8 2 6 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 7 6 -1 A 1 0 2 0 7 6 -1 8 D 4 2 0 7 6 -1 7 9 8 2 0 7 6 -1 6 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.