Fréttablaðið - 26.07.2018, Page 19
Þorvaldur
Gylfason
Í dag Brisbane – Konur höfðu ekki kosningarrétt í Grikklandi til forna eða í Róm og ekki heldur í
Bandaríkjunum og Evrópu þegar lýð-
ræði ruddi sér þar til rúms á 19. öld.
Fyrstir til að veita konum kosningar-
rétt á landsvísu urðu Ný-Sjálendingar
1892, síðan komu Ástralar 1902,
Finnar 1906, Norðmenn 1913 og
Danir og Íslendingar 1915. Til saman-
burðar fengu konur í Sádi-Arabíu
ekki kosningarrétt fyrr en 2015 og þá
aðeins til sveitarstjórna; kosningar-
réttur karla þar er einnig bundinn við
sveitarstjórnir. Hér segir frekar frá
Ástralíu.
Ástralíu vegnar vel
Ástralía er næsti bær við Norður-
lönd. Áströlum hefur vegnað vel
frá aldamótunum 1900 þegar
þeir stofnuðu sambandsríki sitt í
núverandi mynd. Svo vel hefur þeim
vegnað að Ástralía hefur staðið
þétt við hlið Noregs skv. velferðar-
vísitölu Sameinuðu þjóðanna (e.
Human Development Index) frá því
mælingar hófust 1990. Þessi vísitala
tekur mið af tekjum, menntun og
heilbrigði þar eð tekjur í þröngum
skilningi segja ekki allt sem segja
þarf um afkomu fólks. Noregur hefur
allar götur frá 2001 skipað efsta sæti
velferðarlistans sem nær yfir flestar
þjóðir heimsins.
Nú skipar Ástralía annað sæti
listans skv. nýjustu tölum SÞ frá
2015. Meðaltekjur Ástrala eru að
vísu ekki næsthæstar í heimi. Það
sem lyftir þeim upp í annað sæti er
mikil rækt við menntun og heil-
brigði. Ástralar búa við svipað
langlífi og Íslendingar að meðaltali,
82-83 ár á móti 79 árum í Banda-
ríkjunum. Ástralíu vantar tvö stig
upp á fullt hús stiga skv. lýðræðis-
vísitölu Freedom House, fær 98 stig
af 100 borið saman við 100 í Noregi,
95 á Íslandi og 86 í Bandaríkjunum.
Ástralía missir tvö stig vegna eftir-
stöðva gamals misréttis sem afkom-
endur frumbyggja landsins hafa mátt
þola. Þeir telja um 3% mannfjöldans
sem er 25 milljónir. Ójöfnuður í
tekjuskiptingu er minni í Ástralíu
en í Bretlandi, Kanada og Írlandi og
mun minni en í Bandaríkjunum ef
miðað er við hlutdeild tekjuhæsta
hundraðshluta heimilanna í heildar-
tekjum. Ójöfnuðurinn er þó meiri en
í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
Raðval
Ástralar búa við sams konar flokka-
kerfi og Bretar þar sem tveir flokkar
gnæfa yfir einn eða fleiri smáflokka.
Brezka kosningakerfið byggir á
einmenningskjördæmum og færir
smáflokkum miklu færri þingsæti en
svarar til kjörfylgis þeirra. Brezkar
ríkisstjórnir hafa því iðulega minni
hluta kjósenda að baki sér. Ástralar
hafa annan hátt á. Þeir styðjast við
raðval (e. ranked-choice voting) sem
leyfir kjósendum að raða flokkum
og frambjóðendum í forgangsröð
til að halda fjölda ónýtra atkvæða í
lágmarki. Þessi aðferð leyfir kjós-
endum minni flokka að gera einnig
upp á milli stóru flokkanna og eyðir
þannig áhyggjum kjósenda af að þeir
kasti atkvæðum sínum á glæ með því
að fylgja sannfæringu sinni. Kerfið
tryggir að ríkisstjórnir Ástralíu hafa
nær alltaf meiri hluta kjósenda að
baki sér. Verkamannaflokkurinn
annars vegar og hins vegar Frjáls-
lyndi flokkurinn og Þjóðarflokkurinn
sem er miklu minni hafa skipzt á að
stjórna landinu frá 1972, nokkurn
veginn jafnlengi hvor fylking um sig.
Raðval færist í vöxt um heiminn og
var t.d. notað við stjórnlagaþings-
kosninguna á Íslandi 2010.
Kosningaskylda
Þetta er ekki allt. Ástralar innleiddu
kosningaskyldu 1924. Æ síðan hefur
áströlskum kjósendum borið laga-
skylda til að mæta á kjörstað. Við
þessa breytingu jókst kjörsókn í þing-
kosningum úr 59% 1922 í 91% 1925
og hefur jafnan síðan verið á því róli.
Tilgangurinn með breytingunni var
samt ekki að örva kjörsókn, heldur
bæta lýðræðið.
Vissulega felst í því frelsisskerðing
að þurfa að mæta á kjörstað líkt og
það skerðir frelsi manna að þurfa að
greiða skatta, gegna skólaskyldu og
herþjónustu, sitja í kviðdómi o.s.frv.
Málið snýst um að skylda menn með
lögum til að una minni háttar frelsis-
skerðingu til að tryggja framgang
mikilvægra samfélagsmarkmiða.
Þetta er hugsunin á bak við lögboðna
kosningaskyldu. Sumir eru andvígir
kosningaskyldunni og telja að sumt
fólk eigi ekkert erindi á kjörstað.
Aðrir telja reynsluna sýna að stjórn-
völd taki meira tillit til allra kjós-
enda þegar öllum er skylt að kjósa.
Enn aðrir benda á að tiltölulega fáir
Ástralar eru flokksbundnir, þeir þurfa
þess ekki þar eð einn tilgangur stjórn-
málaflokka er að smala kjósendum
á kjörstað. Smölun á kjörstað með
tilheyrandi kostnaði er óþörf þegar
lögin kveða á um kosningaskyldu
að viðlögðum sektum. Kosninga-
skylda hneigist því til að draga úr
veldi stjórnmálaflokka. Stjórnvöld í
Ástralíu reyna að gera mönnum eins
auðvelt að kjósa og framast er unnt í
svo dreifbýlu landi. Kosningaskylda
kallar á að framkvæmd kosninga njóti
trausts. Kosningaskylda er lögboðin
m.a. í Argentínu, Belgíu, Brasilíu,
Lúxemborg og Singapúr.
Næsti bær við Norðurlönd
Vissulega felst í því frelsisskerð-
ing að þurfa að mæta á kjörstað
líkt og það skerðir frelsi manna
að þurfa að greiða skatta, gegna
skólaskyldu og herþjónustu,
sitja í kviðdómi o.s.frv. Málið
snýst um að skylda menn með
lögum til að una minni háttar
frelsisskerðingu til að tryggja
framgang mikilvægra samfélags-
markmiða.
NÝR FJÓRHJÓLADRIFINN E-PACE
Búnaður í Jaguar E-Pace S D150 er m.a.: 10” Touch Pro skjár, símkerfi, 125w Jaguar
hljómkerfi, LED-aðaljós með einkennandi dagljósum, 18” álfelgur, leðursæti, rafdrifin
framsæti með 10 stillingum, íslenskt leiðsögukerfi, rafdrifnir upphitaðir speglar
með sjálfvirkri deyfingu og aðkomuljósum, varadekk, neyðarhemlunarbúnaður,
bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar að framan og aftan, akreinavari.
jaguarisland.is
THE ART OF PERFORMANCE
VERÐ FRÁ: 6.990.000 KR.
Jaguar E-Pace S D150, fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
1
6
1
J
a
g
u
a
r
E
-
P
a
c
e
S
D
1
5
0
j
ú
lí
a
lm
e
n
n
5
x
2
0
JAGUAR E-PACE S
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
JAGUAR
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 2 6 . j ú L Í 2 0 1 8
2
6
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
7
6
-1
A
1
0
2
0
7
6
-1
8
D
4
2
0
7
6
-1
7
9
8
2
0
7
6
-1
6
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K