Fréttablaðið - 26.07.2018, Side 24
Nýjast
Inkasso-deild kvenna
Golf Haraldur Franklín Magnús,
atvinnukylfingur úr Golfklúbbi
Reykjavíkur, er kominn hingað til
lands til þess að taka þátt í Íslands-
mótinu í höggleik sem fram fer
í Vestmannaeyjum um helgina.
Haraldur Franklín mætir til leiks
á mótið eftir að að hafa tekið þátt í
Opna breska meistaramótinu fyrstur
íslenskra karlkylfinga.
Eftir fínan fyrsta hring lenti hann í
kröppum dansi á öðrum hringnum.
Þar af leiðandi þurfti hann að spila
árásargjarnara golf á seinni hluta
annars hringsins til þess að freista
þess að komast í gegnum niður-
skurðinn á mótinu. Honum tókst
ekki ætlunarverk sitt og hann kveðst
vera með blendnar tilfinningar eftir
þátttöku sína í mótinu.
„Þetta var auðvitað mjög gaman,
að fá að spreyta sig á svona stóru
sviði var eitthvað sem ég hef stefnt
að og það var mikil upplifun að vera
þarna. Ég hefði hins vegar viljað
gera betur. Eftir að hafa misst flugið
á tveimur holum á öðrum hringnum
þurfti ég að taka áhættu á lokahol-
unum og þær holur á þessum velli
eru ekki hentugar fyrir þannig spila-
mennsku,“ sagði Haraldur um frum-
raun sína á Opna breska sem fram
fór á Carnoustie-vellinum í Skotlandi
sem þykir ansi erfiður á köflum.
„Það er mér hins vegar efst í huga
eftir þessa helgi hvað mig langar að
endurtaka þetta og ég stefni að því
að fara þangað aftur. Þá langar mig
mikið að taka þátt í fleiri sterkum
boðsmótum og komast í Áskorenda-
mótaröðina eða Evrópumótaröðina.
Það er vonandi að spilamennska mín
í Nordic-mótaröðinni tryggi mér
sæti í Áskorendamótaröðinni, en
ég var nálægt því í fyrra. Ég ætla svo
taka þátt í Qualifying school í sept-
ember síðar á þessu ári og freista þess
að komast inn á Evrópumótaröðina
þar,“ sagði hann um markmið sín í
golfinu.
„Ég lærði mikið af því að spila á
Opna breska, bæði hvað varðar að
spila fyrir fleiri áhorfendur en ég
er vanur og takast á við aukna fjöl-
miðlaathygli. Það er ekki mín sterka
hlið að ræða við fjölmiðla og selja
sjálfan mig með markaðsstarfi. Ég
verð annaðhvort að fækka fjöl-
miðlaviðtölum eða læra betur að
tækla fjölmiðla. Líklega er blanda
af hvoru tveggja heillavænlegust.
Það er að veita fjölmiðlum hæfilega
athygli og gefa meira af mér þegar
ég geri það. Þannig eyk ég líkurnar
á að fá fleiri tækifæri á boðsmótum.
Það er pirrandi að sjá kylfinga sem
ég tel vera á mínu kalíberi fá að taka
þátt á þeim mótum sökum þess að
þeir eru öflugri en ég að láta vita af
sér,“ sagði hinn hógværi og lítilláti
Vesturbæingur.
„Nú er hugur minn hins vegar
á næstu helgi og mótinu í Vest-
mannaeyjum. Það er orðið allt of
langt síðan ég vann þetta mót og ég
stefni á að bæta úr því um helgina.
Það verður gaman að takast á við
völlinn og veðrið í Vestmanna-
eyjum. Það eru þrjú ár síðan ég
spilaði þennan völl síðast, en ég
þekki hann ágætlega og hef spilað
hann þó nokkrum sinnum. Síðan
fer ég út í upphafi næstu viku og
geri mig kláran fyrir næsta mót í
Nordic-mótaröðinni,“ sagði hann
um næstu verkefni sín, en hann
varð síðast Íslandsmeistari í högg-
leik árið 2012.
hjorvaro@frettabladid.is
Þarf að markaðssetja mig betur
Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús var ánægður með að fá að dýfa tánni í laugina með hákörl-
unum. Hann hefði hins vegar viljað gera betur þar. Haraldur Franklín vill fá fleiri tækifæri á stóra sviðinu og
áttar sig á því að hann þarf að vera öflugri við að koma sér á framfæri til þess að auka líkurnar á því.
Haraldur Franklín Magnús virðir fyrir sér stöðuna á Opna breska meistaramótinu um helgina. NOrdIcpHOtOs/Getty
fótbolti Íslensku félagsliðin sem
eru enn með í Evrópudeild karla í
knattspyrnu leika fyrri leiki sína í
annarri umferð í forkeppni deildar-
innar í dag. Fara þarf í gegnum fjórar
umferðir til þess að tryggja sér sæti í
riðlakeppni deildarinnar.
FH og Valur leika á útivelli, en
Stjarnan hefur viðureign sína með
leik á Samsung-vellinum í Garða-
bænum. FH mætir ísraelska liðinu
Hapoel Haifa og Valsmenn eru
staddir í Andorra þar sem mót-
herjar liðsins eru Santa Coloma.
Stjarnan fær hins vegar danska liðið
FC Köbenhavn í heimsókn í kvöld.
Hapol Haifa er enn á undirbún-
ingstímabili, en ísraelska deildin
hefst eftir tæpan mánuð. Hapoel
Haifa hafnaði í fjórða sæti deildar-
innar á síðustu leiktíð, en liðið varð
fimm stigum á eftir Hapoel Be'er
Sheva sem varð ísraelskur meistari.
Santa Coloma er sömuleiðis að
undirbúa sig fyrir komandi átök í
deildarkeppninni heima fyrir. Liðið
er ríkjandi meistari í Andorra, en
það hefur orðið meistari þar í landi
síðustu fimm keppnistímabil.
Deildarkeppnin er svo nýfarin af
stað í Danmörku, en FC Köbenhavn
hefur leikið tvo leiki og haft betur í
öðrum þeirra og tapað hinum. FC
Köbenhavn var þó nokkuð frá því
að verða danskur meistari á síðustu
leiktíð, en liðið endaði 27 stigum á
eftir Midtjylland sem stóð uppi sem
sigurvegari á mótinu. – Hó
Stjarnan glímir við danskt stórveldi
Úr leik FH og Lahti í Kaplakrika á dögunum. FréttabLaðIð/sIGtryGGur arI
Körfubolti Valencia hyggst lána
Tryggva Snæ Hlinason, landsliðs-
mann í körfubolta, til annars liðs
á Spáni til þess að hann fái meiri
spiltíma á komandi keppnistíma-
bili. Það var spænski fjölmiðillinn
Superdeporte sem greinir frá þessu.
Fram kemur í fréttinni að Mon-
bus Obradoiro eða MoraBanc
Andorra séu þau lið sem líklegast sé
að fái að njóta krafta Tryggva Snæs á
næstu leiktíð.
Tryggvi gekk til liðs við Valencia
frá Þór Akureyri fyrir síðustu leiktíð,
en hann fékk takmarkaðan spiltíma
síðasta vetur og sjá forráðamenn
Valencia fram á svipaða stöðu á
næsta keppnistímabili. Þar af leið-
andi sé heillavænlegra að hann fari
tímabundið annað til þess að fá að
spila meira og þróa sinn leik.
Hann tók þátt í nýliðavali NBA
fyrr í sumar og æfði svo með liði
Toronto Raptors sem tók þátt í
Sumar deild NBA og var í leikmanna-
hópi liðsins þar. Mínúturnar voru
hins vegar af skornum skammti á
þeim vettvangi hjá þessum stóra
og stæðilega fram-
herja. – hó
Tryggvi Snær
sendur á lán
tryggvi snær
mun færa sig
um set á spáni
næsta vetur.
MyNd/KKÍ.
fótbolti Breiðablik hefur samið
við ítalska B-deildarliðið Spezia
um sölu á Sveini Aroni Guðjohnsen.
Sveinn Aron mun á næstu dögum
halda til Ítalíu þar sem hann undir-
gengst læknisskoðun og gengur frá
lausum endum hvað varðar kaup og
kjör. Þetta kom fram í frétt á heima-
síðu Breiðabliks í gær.
Sveinn Aron, sem er tvítugur að
aldri, kom til Breiðabliks frá Val
fyrir tæpum tveimur árum. Hann
hefur leikið 31 leik með Breiðabliks-
liðinu og skorað í þeim leikjum sjö
mörk, þar af fjögur mörk í deild og
bikar á þessari leiktíð.
Sveinn Aron á einnig að baki 17
leiki með yngri landsliðum Íslands
og hefur skorað fjögur mörk fyrir
yngri landsliðin.
Hann hefur lítið fengið að spila í
síðustu leikjum eftir tilkomu danska
framherjans Thomasar Mikkelsen
sem komið hefur af krafti inn í lið
Breiðabliks og skorað tvö mörk í
fyrstu tveimur leikjum sínum fyrir
liðið. – hó
Sveinn Aron fer
frá Breiðabliki
til Spezia
Það er mér hins
vegar efst í huga eftir
þessa helgi hvað mig langar
að endurtaka þetta og ég
stefni á að fara þangað aftur.
Þá langar mig að taka þátt á
fleiri sterkum boðsmótum
og komast á Áskorendamóta-
röðina eða Evrópumóta-
röðina.
FH og Valur leika fyrri
leiki sína í annarri umferð í
forkeppni Evrópudeildar-
innar á útivelli, en Stjarnan
hefur leik á heimavelli sínum
í Garðabænum.
Þróttur - Fylkir 1-2
0-1 Sunna Baldvinsdóttir (22.), 0-2 Thelma
Lóa Hermannsdóttir (41.), 1-2 Andrea Rut
Bjarnadóttir (85.).
Ír - Ía 3-5
0-1 Heiðrún Sara Guðmundsdóttir (11.), 1-1
Shaneka Jordian Gordon (18.), 1-2 Bergdís
Fanney Einarsdóttir (19.), 1-3 Bergdís Fann-
ey (38.), 2-3 Guðrún Ósk Tryggvadóttir (44.),
3-3 Alda Ólafsdóttir (52.), 3-4 Heiðrún Sara
(61.), 3-5 Veronica Líf Þórðardóttir (79.).
efri
Keflavík 25
Fylkir 24
ÍA 22
Þróttur 20
Haukar 13
Neðri
Hamrarnir 11
Fjölnir 9
ÍR 8
Aft./Fram 7
Sindri 1
Golf Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,
GR, og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL,
hefja leik í dag á Opna skoska meist-
aramótinu í golfi. Fer mótið fram í
Aberdeen en það er hluti af Evrópu-
mótaröðinni, næststerkustu móta-
röð heims. Ólafía hafnaði í 13. sæti
á þessu móti í fyrra en hún þarf
að eiga gott mót til að gera atlögu
að Opna breska meistaramótinu,
fjórða risamóti ársins í kvennagolfi,
sem fram fer um næstu helgi. – kpt
Ólafía og Valdís
hefja leik í dag
2 6 . j ú l í 2 0 1 8 f i M M t u D A G u r24 S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
Sport
2
6
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
7
6
-2
D
D
0
2
0
7
6
-2
C
9
4
2
0
7
6
-2
B
5
8
2
0
7
6
-2
A
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K