Fréttablaðið - 26.07.2018, Qupperneq 26
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
NÝJAR HAUSTVÖRUR
STREYMA INN
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
Á Guns N' Roses tónleikunum í fyrradag mátti sjá fjöl-marga aðdáendur sveitar-
innar í bolum merktum sveitinni
frá mismunandi tímabilum.
Hljómsveitarbolir eru stór hluti
af rokkheiminum og geta sagt
ýmislegt um þann sem bolnum
klæðist. Ásþór Loki Rúnarsson,
gítarleikari og söngvari í þunga-
rokkssveitinni Meistarar dauðans,
gleymir aldrei þegar hann fékk
fyrsta Metallica bolinn sinn.
„Ég hef alltaf verið þungarokk-
ari í hjarta og skilst að ég hafi
verið farinn að berja höfðinu í
takt við Metallica þegar ég var
þriggja ára,“ segir Ásþór sem í dag
er nítján ára. Fyrsta bolinn fékk
hann þegar hann var fimm ára.
„Ég fékk ekki að fara á Metallica
tónleika með pabba og mömmu
af því ég var of lítill. en þau komu
með bol í sárabætur handa
mér. Ég á hann enn þá en hann
er orðinn aðeins of lítill. Fyrsti
bolurinn sem ég keypti sjálfur var
líka Metallica bolur sem ég fékk á
tónleikum í New York, fyrstu tón-
leikunum sem ég fór á með hljóm-
sveitinni. Það er bolur með síðum
ermum sem ég nota oft þegar ég er
sjálfur að spila því hann er bæði
flottur og svo hef ég heyrt að allar
hreyfingar ýkist því ermarnar
eru hvítar en bolurinn svartur.“
Hann segir að þungarokksaðdá-
endur merki sig hljómsveitum
með bolum. „Ef þú átt marga boli
með hverri hljómsveit ertu að
sýna þeirri hljómsveit stuðning.
Og þungarokksaðdáendur eru
trúir sinni uppáhaldshljómsveit,
jafnvel þótt hún gefi út nokkrar
lélegar plötur í röð. Þetta er
kannski ekki ólíkt því að styðja
fótboltalið en munurinn er sá að
það er enginn óvinur, þú getur
haldið með öllum jafnt.“ Hann
segir að nokkrar óskrifaðar reglur
gildi um hljómsveitarbolanotkun.
„Ef þú ferð á tónleika þá mætirðu
í bol með að minnsta kosti einni
hljómsveit sem er að spila þar og
sýnir henni þannig stuðning og
tónleikunum öllum í leiðinni. Við
í Meisturum dauðans vorum alltaf
í skyrtum þegar við byrjuðum
að spila og merktum okkur þar
af leiðandi ekki sem aðdáendur
einhverra ákveðinna hljómsveita
heldur vildum að hljómsveitin
stæði fyrir sig sjálf. Um daginn
þegar við spiluðum með Skálmöld
vorum við samt allir í Skálmaldar-
bolum sem þeir gáfu okkur og það
var ákveðinn virðingarvottur. Þeir
voru síðan alls ekki í Skálmaldar-
bolum því þú spilar aldrei í þínum
eigin bol, það er mjög mikilvæg
regla.“ Hann segir boli líka geta
verið minjagripi og jafnvel geti
þeir komið af stað samræðum.
„Það eru þá ekki endilega hljóm-
sveitarbolir heldur bolir sem
eru merktir ákveðnum tónleika-
ferðum eða tónleikahátíðum eins
og Eistnaflugi eða Rokkjötnum.
Þannig sýnir þú að þú hafir verið á
þessum hátíðum því bolirnir fást
yfirleitt ekki annars staðar en á
hátíðinni sjálfri.“
Ásþór segist sjálfur ekki velta
því mikið fyrir sér í hvaða bol
hann er dagsdaglega en veit
dæmi annars. „Ég er yfirleitt bara
í bolnum sem er efstur í fata-
Ásþór Loki Rúnarsson, söngvari og gítarleikari í Meistarar dauðans, segir boli vera sterkt tjáningartæki í þunga
rokks heiminum. Hér er hann í Skálmaldarbol en Meistarar dauðans hituðu upp fyrir Skálmöld á dögunum.
skápnum og er ekkert mikið að
pæla í því en margir velja bolinn
gaumgæfilega eftir því hvernig
þeim líður og ef maður er ekki í
stuði til að hlusta á Metallica þann
daginn þá fer maður alls ekki í
Metallica bol.“
Meistarar dauðans hafa í nógu
að snúast þessa dagana en um
síðustu helgi hituðu þeir upp
fyrir Skálmöld á þrennum tón-
leikum, tvennum á Gauknum
og einum á Græna hattinum.
Enn fremur stendur yfir söfnun
á Karolina Fund fyrir annarri
plötu hljómsveitarinnar en sú
fyrsta var tilnefnd til Íslensku
tónlistarverðlaunanna. Hljóm-
sveitin hefur starfað í sex ár og
samanstendur af bræðrunum
Ásþóri Loka og Þórarni Þey sem
er fimmtán ára trommuleikari en
Ásþór er gítarleikari og söngvari
hljómsveitarinnar ásamt því að
semja flest lögin. Bassaleikarinn
heitir svo Albert Elías Arason en
þeir hafa þekkst síðan þeir voru
smákrakkar gegnum foreldra sína.
„Við tókum þátt í Hæfileikakeppni
Íslands og í kjölfarið vorum við
farnir að spila í grunnskólum og
félagsmiðstöðvum og á endanum
vorum við komnir á Rokkjötna
2015 og árið eftir á Eistnaflug en
þetta eru tvær stærstu þunga-
rokkshátíðirnar á landinu. Við
höfum verið að semja lög og texta
frá byrjun og nú er önnur platan
okkar í burðarliðnum. Við erum
búnir að taka hana upp en vantar
herslumuninn á að geta klárað
og erum því með hópfjármögnun
í gangi á Karolina Fund.“ Árið
2015 söfnuðu Meistarar dauðans
fyrir fyrstu plötu sinni á Karolina
Fund með góðum árangri en sú
plata hlaut tilnefningu til Hinna
íslensku tónlistarverðlauna sem
Rokkplata ársins. „Nýja platan
heitir Lög þyngdaraflsins og á
koverinu verður bara mynd af
Isaac Newton. Við erum allir svo-
litlir nördar líka og fannst þetta
einum of gott að hafa Newton
þarna framan á. Og kannski fer
hann einhvern tíma á bol!“
Meistara dauðans má styrkja með
því að fara inn á Karolinafund.is og
leita undir Virk verkefni. Söfnunin
stendur til 6. ágúst.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Ásþór Loki hyllir hér hina goð
sagnakenndu ensku rokkhljómsveit
Led Zeppelin fyrir mikilvægt fram
lag sveitarinnar til þungarokksins.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
2
6
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
7
6
-1
A
1
0
2
0
7
6
-1
8
D
4
2
0
7
6
-1
7
9
8
2
0
7
6
-1
6
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K