Fréttablaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 30
Rania, drottning Jórdaníu, var klædd í fölbleikt þegar hún kom ásamt manni sínum, Abdullah konungi, á fund Trump-hjónanna í Hvíta húsinu í lok júní. Svo skemmtilega vildi til að Melania Trump var sömuleiðis klædd í bleikt. Þar sem þessar tvær konur þykja bera af þegar kemur að dýrum og fal- legum fötum verður að draga þá ályktun að bleikt sé sumarliturinn í ár. Dressið sem Rania klæddist var reyndar tvískipt, buxur og skyrta. Buxurnar eru frá Adeam og kosta rúmar eitt hundruð þúsund krónur. Hönnuður Adeam er Hanako Maeda sem er af japönskum ættum en alin upp í New York. Eftir útskrift flutti Hanako til Tókýó þar sem hún kom Adeam á laggirnar. Vinsældir merkisins eru miklar. Rania drottning er 47 ára og hefur barist ötullega fyrir mannréttindum múslimskra kvenna og barna. Hún hefur verið gagnrýnd fyrir baráttu sína en jafn- framt þakkað. Abdullah og Rania eiga fjögur börn, Hussein, 24 ára, Iman sem er 21 árs, Salma, 17 ára, og Hashem, 13 ára. Báðar í bleiku í Hvíta húsinu Samfélagsmiðillinn Instagram er mikið notaður af þeim sem fylgjast vel með nýjustu tísku- straumum og stefnum. Vinsælasta tískumerkið á Instagram er Chanel (chanelofficial) með um 29 milljónir fylgjenda. Gucci (gucci) er í öðru sæti með 26,3 milljónir fylgjenda og Louis Vuitton (louisvuitton) er í þriðja sæti með tæplega 26 milljónir fylgjenda. Fyrrverandi Kryddpían Vict- oria Beckham er í fjórða sæti með merkið sitt sem hefur um 21,6 milljónir fylgjenda og Dior (dior) er í fimmta sæti með um 20,4 milljónir fylgjenda. Í sjötta sæti situr tískumerkið Dolce & Gabbana (dolcegabbana) með 17,5 milljónir fylgjenda og Prada (prada) er í því sjöunda með 16,1 milljón fylgjenda. Versace (versace) er í áttunda sæti með 13,4 milljónir fylgjenda en Calvin Klein (calvinklein) er í því níunda með 13,2 milljónir fylgjenda. Michael Kors (michaelkors) situr í tíunda sætinu með 12,1 milljón fylgjenda. Vinsæl á Instagram Rania drottn- ing og Melania Trump þegar þær hittust í Hvíta húsinu í lok júní. Draumur kanadíska hönnuð-arins Nina Kharey rættist í þessari viku þegar Meghan Markle mætti í flík frá henni á hátíðarhöld sem voru í tilefni af því að öld er liðin frá fæðingu Nelsons Mandela. Kharley segir að það hafi verið óraunverulegt augnablik þegar hún komst að því að hönnun hennar hafði verið notuð af einu þekktasta tískutákni Vesturlanda. Markle mætti í fölbleikum erma- lausum rykfrakka sem sló í gegn hjá tískuáhugamönnum og aðdáend- um bresku konungsfjölskyldunnar. Frakkinn er frá tískumerkinu House of Nonie, en stílisti Markle, Jessica Mulroney, hefur verið viðskipta- vinur merkisins árum saman. Kharey sagði frá því hvernig upplifun það var að uppgötva að Markle hefði notað fötin hennar í viðtali við tímaritið HELLO!. Hún komst að því þegar hún fékk texta- skilaboð frá kynningarstjóranum sínum klukkan korter fyrir sjö að morgni og segir að það hafi verið bæði ótrúlegt og rosalega óraun- verulegt. „Pabbi minn fór að gráta. Ég byrjaði bara strax að gúggla og skoða og dáðist að því hvernig hún leit út,“ segir Kharey. „Hún var bara svo ótrúlega flott.“ Eins og við er að búast fór frakkinn umsvifalaust að roksel- jast. „Loksins get ég sannað að ég eigi skilið að fá tíma og athygli, ekki bara fyrir heiminum, heldur fyrir sjálfri mér og fjölskyldunni minni. Ég hef eitthvað fram að færa!“ sagði Kharey um þessi tímamót í lífi sínu. Draumar rætast HI BALL BUXUR 13.990 Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . j ú L í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 2 6 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 7 6 -0 B 4 0 2 0 7 6 -0 A 0 4 2 0 7 6 -0 8 C 8 2 0 7 6 -0 7 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.