Fréttablaðið - 26.07.2018, Síða 36

Fréttablaðið - 26.07.2018, Síða 36
Þau Guðrún Jóhanna Ólafs-dóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari, sem skipa Dúó Atlantica,  ætla að  flytja þjóðlög á basknesku, spænsku og íslensku í félagsheimilinu Dalbæ á Snæfjallaströnd á laugardaginn. Einnig sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns, eitt ástsælasta tónskáld Íslendinga, sem gegndi einmitt læknisstörfum í héraðinu í tíu ár og tók þar upp Kaldalónsnafnið.  Nokkur lög á tónleikunum tilheyra safni þjóðlaga sem rithöfundurinn Federico García Lorca og flamenkósöng- konan „La Argentinita“ söfnuðu í Anda- lúsíu. Lorca útsetti lögin á einfaldan hátt fyrir rödd og píanó en Guðrún og Javier flytja lögin, umskrifuð af Javier, fyrir rödd og gítar, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Snæfjallaströnd er við norðanvert Ísa- fjarðardjúp. Sveitin er nú í eyði en Ólafur Jóhann Engilbertsson  er fróður um hana. Hann er formaður stjórnar Snjá- fjallaseturs sem er fimmtán ára gamalt félag um útgáfu, vefsetur, sýningar og viðburði á Snæfjallaströnd.  „Dalbær er samkomuhús sem byggt var í Unaðsdal 1973. Þar hafa verið við- burðir öðru hvoru á undanförnum árum þó íbúarnir séu farnir úr sveitinni. Grunnsýningin þar er sögu- og mynda- sýning  úr Snæfjalla- og Grunna víkur- hreppum hinum fornu. Sérsýningar eru um Sigvalda Kaldalóns tónskáld og önnur um Baskavígin,“ lýsir hann. Unaðsdalur er við enda vegarins við Djúpið norðanvert. Þar eru ýmsir hópar á ferð, að sögn Ólafs Jóhanns,  meðal annars gönguhópar og hægt er að óska eftir gistingu í Dalbæ. Ingibjörg Kjart- ansdóttir, sem er með símanúmerið 868 1964, tekur við pöntunum. „Þetta er svo sem ekki fjölsótt svæði en alltaf er reytingur af fólki yfir sumarið. Vegurinn er ágætur, heflaður malarvegur um 38 kílómetra leið frá malbikaða veginum inni í Djúpi,“ segir Ólafur. Hús tileinkað skáldinu Steini Steinarr er á þessari leið, reyndar örskammt frá þjóðveginum til Ísafjarðar.  „Ég mæli með kaffinu í Steinshúsi og vöfflunum. Þar er sýning um Stein sem  var sett upp fyrir þremur árum og er opin fram í lok ágúst,“ segir Ólafur. Baskavinafélagið er einn angi menn- ingarstarfseminnar sem tilheyrir þessu svæði. Ólafur segir milli 40 og 50 manns í því félagi. „Ísland og Spánn voru tengd í gegnum aldirnar vegna fiskveiða Spán- verja við Ísland og á 17. öld var gefið út baskneskt-íslenskt orðasafn, það hefur verið talið fyrsti vísir að orðabók á Íslandi,“ upplýsir hann.  Tónleikarnir hefjast klukkan 16.30. Aðgangur er ókeypis en kaffiveitingar verða til sölu. gun@frettabladid.is Tengja Íslendinga, Baska og Spánverja með tónlist Íslensk, basknesk og spænsk lög munu hljóma í samkomuhúsinu Dalbæ á Snæfjalla- strönd, eyðibyggð við norðanvert Ísafjarðardjúp, 28. júlí. Baskavinafélagið og Snjáfjalla- setur standa fyrir tónleikunum. Ólafur Jóhann Engilbertsson er þar með í ráðum. Ólafur kemur að menningarstarfsemi í eyðibyggðum Vestfjarða. Fréttablaðið/anton brink Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Ögmundur Guðmundsson rafvirkjameistari, Sóleyjarima 11, lést á hjartadeild Landspítalans 23. júlí. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 2. ágúst kl. 13.00. Kristín Guðjónsdóttir Guðjón Gunnar Ögmundsson Sigrún Birgisdóttir Sólveig Jóna Ögmundsdóttir Stefán Kristjánsson Guðmundur K. Ögmundsson Helena M. Agnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Guðmundur Guðjónsson lést á blóðlækningadeild LSH, 11G, miðvikudaginn 18. júlí. Útförin fer fram þriðjudaginn 31. júlí kl. 13 frá Lágafellskirkju í Mosfellsbæ. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Selma Guðmundsdóttir Guðjón Guðmundsson og Ríkey Andrésdóttir Bára Kolbrún Guðmundsdóttir og Þorsteinn Hermannsson Berglind Guðmundsdóttir og Reynir Óskarsson Bryndís Björk Guðjónsdóttir Iða Mary Guðmundsdóttir og Ludvig Carl Hilmarsson og fjölskyldur. Elskuleg eiginkona, móðir og amma, Anna Margrét Þóroddsdóttir Bekansstöðum, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 20. júlí. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 31. júlí kl. 13.00. Finnur Stefán Guðmundsson Jón Valgeir Viggósson Anna María Viggósdóttir Valgerður Viggósdóttir og barnabörn. Bróðir okkar, Þorlákur Þorláksson Hjúkrunarheimilinu Eyri, Ísafirði, lést þriðjudaginn 17. júlí síðastliðinn. Hann verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 28. júlí kl. 14. Sigurður Þorláksson, Guðmundína Þorláksdóttir Hestnes, Jón Þorláksson, Gísley Þorláksdóttir Hljómsveitin Umbra Ensemble flytur nýja og forna tónlist í eigin útsetning- um í Hannesarholti við Grundarstíg í kvöld.  „Við gáfum út plötu í vor og erum að fylgja henni eftir en erum líka með suðurevrópska trúbatoratónlist frá 11. og 12. öld sem við höfum verið að rannsaka.“ segir Lilja Dögg Gunnars- dóttir, söngkona í Umbru. „Fólk heldur kannski að trúbadorar þess tíma hafi verið á flakki en þeir virðast meira hafa verið í vinnu við hirð eða hjá yfirstéttar- fólki. Þess vegna hafa verkin líklega varðveist,“ bætir hún við til fróðleiks.  Tónleikarnir bera yfirskriftina Úr myrkrinu. „Við erum vissulega að draga fram forna tónlist en alltaf með það að leiðarljósi að yrkisefnið höfði til fólks í dag og tónmálið sé aðgengilegt. Við útsetjum þessa gömlu tónlist út frá okkar kynslóð, nálgumst þetta pínu eins og popphljómsveit,“ heldur Lilja Dögg áfram og segir mikla vinnu liggja að baki hverju lagi.  „Við vinnum eins og við séum að semja tónlistina þó við séum það ekki. Erum allar jafnvirkar í tónlistarsköpuninni og með brennandi áhuga á fornri tónlist, þó við dönsum á línunni.“ Lilja Dögg segir þær stöllur í Umbru óhræddar við að gefa sér rými til túlk- unar, alltaf með það að leiðarljósi að hreyfa við áheyrendum. „Við pælum í textunum og syngjum jafnvel á tungu- málum sem eru útdauð,“ segir hún. „Við erum náttúrlega nördar af guðs náð og mjög samstiga í því.“  Tónleikarnir tilheyra röðinni KÍTÓN Sumar í Hannesarholti. Þeir hefjast klukkan 20. Miðaverð er 3.000 krónur. gun@frettabladid.is Við erum náttúrlega nördar af guðs náð arngerður leikur á hörpu, Guðbjörg á fiðlu, lilja Dröfn syngur og alexandra er á bassa.   1847 Nýlendan Líbería í Afríku fær sjálfstæði. Höfuð­ borgin er nefnd Monróvía í höfuðið á forseta Banda­ ríkjanna, James Monroe, sem studdi nýlendustofnunina. 1775 Bandaríska póst­ þjónustan er stofnuð. 1788 Breskir landnemar setjast að í Sydney í Ástralíu og hefja þar með langvinnar deilur við frumbyggja lands­ ins. 1945 Verkamannaflokkurinn vinnur bresku þingkosning­ arnar og tekst að koma Win­ ston Churchill frá völdum. 1983 Einar Vilhjálmsson setur Íslandsmet í spjótkasti þegar hann kastar 90,66 metra og sigrar á úrvalsmóti Norðurlanda og Bandaríkjanna. Merkisatburðir 2 6 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R28 T í M A M ó T ∙ F R É T T A B l A ð I ð tímamót 2 6 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 7 6 -2 D D 0 2 0 7 6 -2 C 9 4 2 0 7 6 -2 B 5 8 2 0 7 6 -2 A 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.