Fréttablaðið - 26.07.2018, Síða 40
Tónlistarveisla á
Reykholtshátíð
Það eru Kristinn Sigmundsson,
Anna Guðný Guðmundsdóttir
og Kammersveit Reykholts-
hátíðar sem koma fram á
opnunartónleikum Reykholts-
hátíðar á föstudag, 27. júlí.
Á laugardag, 28. júlí, flytur
Hljómeyki íslenskar kórperlur
og sama dag flytur Kammersveit
Reykjavíkur verk eftir Mozart og
Bartók. Á lokatónleikum Reyk-
holtshátíðar á sunnudag flytur
Kammersveit Reykholtshátíðar
ásamt Kristni Sigmundssyni
úrval íslenskra kammerverka frá
fullveldisárinu 1918 og fram á
okkar dag.
Ef við horfum til
blaðamEnnsk-
unnar þá á hann
ýmislEgt sam-
EiginlEgt mEð
snowdEn og ass-
angE því hann Er
uppljóstrari og
gEldur fyrir það
mEð lífi sínu,
þótt hann hafi
lifað af. hann
varð útlagi í
Eigin landi.
Reykholtshátíð hefst á morgun, föstudaginn 27. júlí með veglegri tónlistardagdagskrá, hátíðarguðsþjónustu og fyrirlestri sem hald
inn verður á laugardag í Snorrastofu
klukkan 13.
Fyrirlesari hátíðarinnar að þessu
sinni er dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðar
dóttir þjóðfræðingur. Titill erindis
hennar er: „Fyrsti blaðamaðurinn –
fyrstur til margs. Um náttúrur Jóns
lærða.“
Útlagi í eigin landi
„Jón lærði hefur verið misskilinn
maður um aldir,“ segir Ólína. „Einna
frægastur er hann fyrir skrif sín
um Spánverjavígin 1615 sem voru
hrikalegt fjöldamorð – það eina sem
sögur fara af á Íslandi – framið af Ara
sýslumanni í Ögri og mönnum hans
á vopnlausum baskneskum skip
brotsmönnum.
Ari, sem var héraðsríkur höfð
ingi á þeim tíma, sýslumaður og
umboðsmaður konungsjarða, var
öflugur valdsmaður og aðrir emb
ættismenn á svæðinu mæltu verk
inu bót. Jón lærði, sem að því er
virðist hafði verið vinur Ara í Ögri,
fann ekki hjá sér neina meðvirkni
í þessu máli. Þarna voru á þriðja
tug baskneskra skipreika hval
veiðimanna drepnir í griðum. Jón
skrifaði „Sanna frásögu af spanskra
manna skipbrotum og slagi“ um
þessa atburði þar sem hann afhjúp
ar verknaðinn sem ódæðisverk. Þar
með ýfði hann fjaðrirnar á Ara í
Ögri og komst í ónáð hjá embættis
veldinu kringum hann. Upp frá því
varð líf hans ein samfelld hrakfalla
saga.
Jón lærði var mjög gáfaður maður.
Hann var sjálfmenntaður alþýðu
fræðimaður, náttúrufræðingur og
grúskari en líka skáld og listamaður
og kirkjuskreytingar hafa varðveist
eftir hann. Alþýða landsins hafði
engar forsendur til að skilja hvorki
fræði hans né viðfangsefni. Ísland
var illa upplýst samfélag á sautjándu
öld, samfélag dómhörku, fátæktar
og einangrunar, þannig að vöru
merkið sem Jón fékk á sig var merki
kraftaskáldsins og draugabanans.
Hann fékkst við lækningar og átti
lækningabækur, en á hans tíð var
ekki alltaf augljós munur lækn
ingabóka og galdrabóka. Þegar Jón
var kominn í ónáð hjá yfirvöldum
fór allt þetta að vinna gegn honum
og um síðir fékk hann á sig galdra
ákæru. Á 17. öldinni var fólk brennt
á báli fyrir minnsta grun um galdur,
ekki þurfti annað en að blað fyndist
í fórum fólks til að það yrði sak
fellt. Má þess vegna kallast hálfgert
kraftaverk að Jón skyldi sleppa við
galdrabálið. Hann átti öfluga vini,
þar á meðal Brynjólf Sveinsson
biskup í Skálholti, sem vildu honum
vel. Sennilega hafa þeir menn haldið
hlífiskildi yfir honum og reynt að
hjálpa honum á bak við tjöldin.
Síðan líða aldir og Jón lærði er
alltaf meðhöndlaður eins og hálf
gerður furðufugl og sérvitringur og
talaður nokkuð niður. Það er ekki
fyrr en á allra síðustu árum sem
menn taka að gera sér grein fyrir því
hversu mikið var í hann spunnið. Ef
við speglum hans tilveru við sam
tímann þá sjáum við að hann er á
pari við ýmsa merka menn og ef
við horfum til blaðamennskunnar
þá á hann ýmislegt sameiginlegt
með Snowden og Assange því hann
er uppljóstrari og geldur fyrir það
með lífi sínu, þótt hann hafi lifað
af. Hann varð útlagi í eigin landi.“
Frekari kynni af Jóni
Spurð hvenær áhugi hennar á Jóni
lærða hafi vaknað segir Ólína:
„Þegar ég var að skrifa doktorsrit
gerð mína um brennuöldina þá rak
Jón lærða fljótlega á fjörur mínar. Ég
fór í gegnum
öll galdramál
á Íslandi sem
voru háð fyrir
d ó m s t ó l u m
og það eru til
skjöl um hans
mál. Núna er ég
að skoða fornar
l æ k n i n g a r ,
gömul lækn
i n g a h a n d r i t ,
sögu lækning
anna og þróun
þeirra frá upp
hafi til dagsins í
dag. Þar kemur
Jón lærði líka við
sögu því hann
var dæmdur árið
1631 fyrir lækn
ingakver sitt sem
h a n n k a l l a ð i
„Bót eður viðsjá
við illu ákasti“.
Það er glatað en
lýsing á því er til
í dómskjölum
og sé sú lýsing
borin saman við
aðrar lækninga
bækur má sjá að
þetta hefur verið
nokkuð dæmigert
l æ k n i n g a k v e r .
Jón lærði – Misskilinn
maður um aldir
á reykholtshátíð flytur ólína þorvarð-
ardóttir fyrirlestur um jón lærða. segir
hann vera á pari við ýmsa merka menn.
„Það er ekki fyrr en á allra síðustu árum sem menn eru að gera
sér grein fyrir því hversu mikið var í hann spunnið,“ segir Ólína
um alþýðufræðimanninn Jón lærða. FRéttABlAðið/SiGtRyGGuR ARi
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
læknakver Jóns lærða.
Á þeim tíma var hins vegar lítill
munur gerður á þeim og galdrakver
unum því mikil hjátrú var komin
inn í lækningabækurnar, eins og
rúnir og annað sem er lækningum
óviðkomandi.
Svo var ég svo heppin að fá að
skrifa ritdóm um bók sem kom út
fyrir nokkrum árum og hét Í spor
Jóns lærða þar sem fræðimenn
fjölluðu um hann frá ýmsum sjónar
hornum og þá vitjaði hann mín
aftur,“ segir Ólína.
Þetta verður í fyrsta sinn sem
Ólína fer sjálf á Reykholtshátíð enda
hefur hún verið búsett á Ísafirði
mörg undanfarin ár og ekki beint
átt leið um Borgarfjörðinn um þetta
leyti eins og hún segir. „Mér finnst
þetta merk lista og menningarhá
tíð þar sem listin og fræðin vefast
saman og skemmtileg er sú hefð að
hafa fræðafyrirlestur í tengslum við
tónlistarhátíð. Mér er sannur heiður
að því að halda fyrirlestur hátíðar
innar að þessu sinni.“
2 6 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R32 M e n n I n G ∙ F R É T T A B l A ð I ð
menning
2
6
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
7
6
-0
6
5
0
2
0
7
6
-0
5
1
4
2
0
7
6
-0
3
D
8
2
0
7
6
-0
2
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K