Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.07.2018, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 26.07.2018, Qupperneq 40
Tónlistarveisla á Reykholtshátíð Það eru Kristinn Sigmundsson, Anna Guðný Guðmundsdóttir og Kammersveit Reykholts- hátíðar sem koma fram á opnunartónleikum Reykholts- hátíðar á föstudag, 27. júlí. Á laugardag, 28. júlí, flytur Hljómeyki íslenskar kórperlur og sama dag flytur Kammersveit Reykjavíkur verk eftir Mozart og Bartók. Á lokatónleikum Reyk- holtshátíðar á sunnudag flytur Kammersveit Reykholtshátíðar ásamt Kristni Sigmundssyni úrval íslenskra kammerverka frá fullveldisárinu 1918 og fram á okkar dag. Ef við horfum til blaðamEnnsk- unnar þá á hann ýmislEgt sam- EiginlEgt mEð snowdEn og ass- angE því hann Er uppljóstrari og gEldur fyrir það mEð lífi sínu, þótt hann hafi lifað af. hann varð útlagi í Eigin landi. Reykholtshátíð hefst á morgun, föstudaginn 27. júlí með veglegri tónlistardagdagskrá, hátíðarguðsþjónustu og fyrirlestri sem hald­ inn verður á laugardag í Snorrastofu klukkan 13. Fyrirlesari hátíðarinnar að þessu sinni er dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðar­ dóttir þjóðfræðingur. Titill erindis hennar er: „Fyrsti blaðamaðurinn – fyrstur til margs. Um náttúrur Jóns lærða.“ Útlagi í eigin landi „Jón lærði hefur verið misskilinn maður um aldir,“ segir Ólína. „Einna frægastur er hann fyrir skrif sín um Spánverjavígin 1615 sem voru hrikalegt fjöldamorð – það eina sem sögur fara af á Íslandi – framið af Ara sýslumanni í Ögri og mönnum hans á vopnlausum baskneskum skip­ brotsmönnum. Ari, sem var héraðsríkur höfð­ ingi á þeim tíma, sýslumaður og umboðsmaður konungsjarða, var öflugur valdsmaður og aðrir emb­ ættismenn á svæðinu mæltu verk­ inu bót. Jón lærði, sem að því er virðist hafði verið vinur Ara í Ögri, fann ekki hjá sér neina meðvirkni í þessu máli. Þarna voru á þriðja tug baskneskra skipreika hval­ veiðimanna drepnir í griðum. Jón skrifaði „Sanna frásögu af spanskra manna skipbrotum og slagi“ um þessa atburði þar sem hann afhjúp­ ar verknaðinn sem ódæðisverk. Þar með ýfði hann fjaðrirnar á Ara í Ögri og komst í ónáð hjá embættis­ veldinu kringum hann. Upp frá því varð líf hans ein samfelld hrakfalla­ saga. Jón lærði var mjög gáfaður maður. Hann var sjálfmenntaður alþýðu­ fræðimaður, náttúrufræðingur og grúskari en líka skáld og listamaður og kirkjuskreytingar hafa varðveist eftir hann. Alþýða landsins hafði engar forsendur til að skilja hvorki fræði hans né viðfangsefni. Ísland var illa upplýst samfélag á sautjándu öld, samfélag dómhörku, fátæktar og einangrunar, þannig að vöru­ merkið sem Jón fékk á sig var merki kraftaskáldsins og draugabanans. Hann fékkst við lækningar og átti lækningabækur, en á hans tíð var ekki alltaf augljós munur lækn­ ingabóka og galdrabóka. Þegar Jón var kominn í ónáð hjá yfirvöldum fór allt þetta að vinna gegn honum og um síðir fékk hann á sig galdra­ ákæru. Á 17. öldinni var fólk brennt á báli fyrir minnsta grun um galdur, ekki þurfti annað en að blað fyndist í fórum fólks til að það yrði sak­ fellt. Má þess vegna kallast hálfgert kraftaverk að Jón skyldi sleppa við galdrabálið. Hann átti öfluga vini, þar á meðal Brynjólf Sveinsson biskup í Skálholti, sem vildu honum vel. Sennilega hafa þeir menn haldið hlífiskildi yfir honum og reynt að hjálpa honum á bak við tjöldin. Síðan líða aldir og Jón lærði er alltaf meðhöndlaður eins og hálf­ gerður furðufugl og sérvitringur og talaður nokkuð niður. Það er ekki fyrr en á allra síðustu árum sem menn taka að gera sér grein fyrir því hversu mikið var í hann spunnið. Ef við speglum hans tilveru við sam­ tímann þá sjáum við að hann er á pari við ýmsa merka menn og ef við horfum til blaðamennskunnar þá á hann ýmislegt sameiginlegt með Snowden og Assange því hann er uppljóstrari og geldur fyrir það með lífi sínu, þótt hann hafi lifað af. Hann varð útlagi í eigin landi.“ Frekari kynni af Jóni Spurð hvenær áhugi hennar á Jóni lærða hafi vaknað segir Ólína: „Þegar ég var að skrifa doktorsrit­ gerð mína um brennuöldina þá rak Jón lærða fljótlega á fjörur mínar. Ég fór í gegnum öll galdramál á Íslandi sem voru háð fyrir d ó m s t ó l u m og það eru til skjöl um hans mál. Núna er ég að skoða fornar l æ k n i n g a r , gömul lækn­ i n g a h a n d r i t , sögu lækning­ anna og þróun þeirra frá upp­ hafi til dagsins í dag. Þar kemur Jón lærði líka við sögu því hann var dæmdur árið 1631 fyrir lækn­ ingakver sitt sem h a n n k a l l a ð i „Bót eður viðsjá við illu ákasti“. Það er glatað en lýsing á því er til í dómskjölum og sé sú lýsing borin saman við aðrar lækninga­ bækur má sjá að þetta hefur verið nokkuð dæmigert l æ k n i n g a k v e r . Jón lærði – Misskilinn maður um aldir á reykholtshátíð flytur ólína þorvarð- ardóttir fyrirlestur um jón lærða. segir hann vera á pari við ýmsa merka menn. „Það er ekki fyrr en á allra síðustu árum sem menn eru að gera sér grein fyrir því hversu mikið var í hann spunnið,“ segir Ólína um alþýðufræðimanninn Jón lærða. FRéttABlAðið/SiGtRyGGuR ARi Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is læknakver Jóns lærða. Á þeim tíma var hins vegar lítill munur gerður á þeim og galdrakver­ unum því mikil hjátrú var komin inn í lækningabækurnar, eins og rúnir og annað sem er lækningum óviðkomandi. Svo var ég svo heppin að fá að skrifa ritdóm um bók sem kom út fyrir nokkrum árum og hét Í spor Jóns lærða þar sem fræðimenn fjölluðu um hann frá ýmsum sjónar­ hornum og þá vitjaði hann mín aftur,“ segir Ólína. Þetta verður í fyrsta sinn sem Ólína fer sjálf á Reykholtshátíð enda hefur hún verið búsett á Ísafirði mörg undanfarin ár og ekki beint átt leið um Borgarfjörðinn um þetta leyti eins og hún segir. „Mér finnst þetta merk lista­ og menningarhá­ tíð þar sem listin og fræðin vefast saman og skemmtileg er sú hefð að hafa fræðafyrirlestur í tengslum við tónlistarhátíð. Mér er sannur heiður að því að halda fyrirlestur hátíðar­ innar að þessu sinni.“ 2 6 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R32 M e n n I n G ∙ F R É T T A B l A ð I ð menning 2 6 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 7 6 -0 6 5 0 2 0 7 6 -0 5 1 4 2 0 7 6 -0 3 D 8 2 0 7 6 -0 2 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.