Fréttablaðið - 26.07.2018, Síða 42
Þetta er smá leikhús, með myndunum reyni ég að fanga andrúmsloft og búa til stemningar,“ segir Bjargey Ólafs-dóttir myndlistarkona
um nokkur dimm en ljóðræn ljós-
myndaverk sem hún er með á sýn-
ingu sinni í Ramskram galleríi á
Njálsgötu 49.
Verkin eru öll unnin á vettvangi,
að sögn Bjargeyjar. Hún kveðst
ná hinu draumkennda yfirbragði
þeirra með því að munda myndavél-
ina í myrkri og vinna svo með lítið
ljós. „Ég er að reyna á þanþol myrk-
ursins,“ útskýrir hún. Skyldi hún
kannski líka reyna á þanþol fyrir-
sætanna? „Já, segir hún glaðlega. „Ég
vel mér fórnarlömb af kostgæfni og
myndirnar eru samspil milli mín og
þeirra sem sitja fyrir. Það eru tveir
leikarar, einn arkitekt, tveir mynd-
listarmenn og kvikmyndatökukona,
sem er ekki vön að vera fyrir framan
linsuna.“
Bjargey kveðst ekki hafa þurft að
kalla hverja fyrirsætu oft til sam-
starfs, heldur tekið margar myndir
í senn. „Það er fjöldi mynda bak
við þær sem ég vel til sýningar.
Reyndar eru fleiri til inn í þessa
seríu í Ramskram og kannski sýni
ég þær seinna, þessar pössuðu bara
inn hér.“
Oft kveðst Bjargey vinna með
nokkrar seríur í einu og safna í þær
þegar hún rekst á fólk eða aðstæður
sem passa inn í andrúmsloft hverr-
ar og einnar. „Ég geri tilraunir og
stundum dett ég niður á eitthvað
sem mér finnst virka, þá held ég
áfram með það. Þessi sería er unnin
á löngum tíma,“ lýsir hún.
Listsköpun Bjargeyjar hefur ekki
verið bundin við einn listmiðil.
Hún er þekkt fyrir að segja sögur
með því sem hún gerir og velja sér
þann miðil sem hentar best hverju
sinni. Hún fæst við kvikmynda-
gerð, hljóðverk, gjörninga, teiknar,
málar og myndar. Í sumar er hún
landvörður norðan Vatnajökuls, í
Kverkfjöllum, Hvannalindum og
Krepputungu og kveðst vera mikið á
ferðinni þar á milli. Skyldi hún hafa
tekið margar myndir í óbyggðunum.
„Nei, kannski eina á dag. Ég er meira
upptekin af vinnunni og bara af því
að vera til.“
Sýningin Vasaspegill stendur til
25. ágúst.
Ég er að reyna á
þanþol myrkursins
Á sýningu sinni í Ramskram galleríi sýn-
ir Bjargey Ólafsdóttir alvöru ljósmyndir
sem þó liggja á mörkum skáldskapar og
veruleika. Sýningin nefnist Vasaspegill.
„Ég vel mér fórnarlömb af kostgæfni,“ segir Bjargey kímin og á þar við fyrirsæturnar. FrÉttaBlaðið/Þórsteinn
Ég geRi tilRauniR og
Stundum dett Ég
niðuR Á eitthVað Sem mÉR
finnSt ViRka, þÁ held Ég
ÁfRam með það. þeSSi SeRía
eR unnin Á löngum tíma.
Ertu til?
4G þjónusta í sérflokki Framtíðin er spennandi.
Öflugt samband
á ferðinni í sumar
4G háhraðanet Vodafone nær til helstu byggðakjarna og sumarhúsasvæða um
land allt. Þú missir ekki af neinu í sumarhúsinu eða á ferðalögum innanlands.
Kynntu þér málið í næstu verslun, á vodafone.is eða hjá umboðsaðilum
okkar um land allt.
2 6 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R34 M e n n I n G ∙ F R É T T A B l A ð I ð
2
6
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
7
5
-F
2
9
0
2
0
7
5
-F
1
5
4
2
0
7
5
-F
0
1
8
2
0
7
5
-E
E
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K