Fréttablaðið - 02.08.2018, Síða 20
2 . Á G Ú S T 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Jardar
179 424
371
186 371
492
539
144
389
157
334
540
429
340
464
425
333 410
ParHola
3 4
4
3 4
5
5
3
4
3
4
5
4
4
4
4
4 4
Par: 71
Lengd
6585
✿ Royal Lytham & St. Annes-golfvöllurinn
Völlur sem gefur kylfingum tækifæri til að sækja
Sigmundur Einar Másson, Ís-
landsmeistari í höggleik 2007,
lék á sínum tíma Royal Lytham &
St. Annes-völlinn á Opna breska
áhugamannamótinu í golfi. Lék
hann völlinn á 77 höggum. Blaða-
maður Fréttablaðsins fékk hann
til að rýna í völlinn í aðdraganda
mótsins.
„Þetta er hefðbundinn strandar-
völlur en endar á sex par 4 holum
í röð sem er frekar sjaldgæft, rétt
eins og að byrja á par 3 holu. Það
er ekki mikið landslag í flötunum
en eins og á flestum strandar-
völlum eru djúpar sandgryfjur
sem verja flatirnar. Gott dæmi um
það er níunda holan, par 3 hola
sem er ekkert mjög löng en flötin
er varin af níu sandgryfjum. Ef
kylfingur kemst í gegnum mótið
án þess að fara í sandinn er það
kraftaverk,“ sagði Sigmundur Már
léttur og bætti við:
„Lykillinn að góðu gengi er að
sleppa eins mikið við glompur og
hægt er og að pútta vel, þá mun
henni ganga vel. Valdís er frábær
með pútterinn þannig að það
verður gaman að fylgjast með
henni á mótinu. Það er spáð erfiðu
veðri fyrstu tvo dagana sem gæti
haft áhrif á keppendur en um
helgina er rólegt veður sem gefur
kylfingum tækifæri til að skora.“
GOLF Valdís Þóra Jónsdóttir,
atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum
Leyni, hefur leik í dag á Opna breska
meistaramótinu í golfi sem fram fer
á Royal Lytham & St. Annes-golfvell-
inum, hundrað kílómetra norður af
Liverpool-borg. Er þetta í 42. skiptið
sem Opna breska meistaramótið fer
fram í kvennaflokki og annað árið í
röð sem Ísland á fulltrúa á mótinu.
Er þetta fjórða risamót ársins
í kvennagolfi af fimm og verður
þetta annað risamótið sem Valdís
tekur þátt í á eftir Opna bandaríska
meistaramótinu í fyrra. Missti hún
þá af niðurskurði
Valdís komst inn á Opna breska
með góðum árangri sínum á
Evrópu mótaröðinni, næststerkustu
atvinnumannamótaröð heims. Er
hún í 20. sæti á stigalista mótaraðar-
innar en efstu 25 kylfingarnir fengu
sæti á þessu risamóti.
Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur,
GR, tókst ekki að komast inn á Opna
breska í ár eftir að hafa tekið þátt í
mótinu í fyrra.
Nóg af sandgryfjum
Völlurinn sem leikið er á er sögu-
frægur en hann var byggður árið
1886. Er völlurinn strandarvöllur
(e. links) og ekki langur sem slíkur,
rúmlega sex þúsund metrar eða
6.585 jardar. Engar vatnstorfærur
eru á vellinum en þess í stað eru alls
204 sandgryfjur á brautunum átján
tilbúnar að taka við golfboltum ef
höggið geigar.
Er þetta í fimmta sinn sem Opna
breska meistaramótið í kvenna-
flokki fer fram á vellinum. Tíu sinn-
um hefur Opna breska meistara-
mótið í karlaflokki farið þar fram,
síðast árið 2012 og tvisvar hefur
verið leikið um Ryder-bikarinn á
vellinum, síðast árið 1977.
Flest stærstu nöfn kvennagolfsins
mæta til leiks á mótið og hefur Val-
dís leik klukkan tíu í dag. Með henni
í ráshóp eru þær Ursula Wikström
frá Finnlandi og Daniela Darquea
frá Ekvador.
Veðrið gæti truflað kylfinga
Valdís virtist nokkuð brött í aðdrag-
anda mótsins en henni fannst
völlurinn nokkuð mjúkur vegna
rigninga undanfarna daga.
„Tilfinningin er góð, það er afar
gaman að fara á þetta risamót og
fá að spila þennan flotta völl sem
er í hæsta gæðaflokki. Markmiðið
er að spila eins vel og hægt er og sjá
hverju það skilar mér, vonandi næ
ég góðu skori á völlinn,“ sagði Val-
dís.
Hún hefur eytt undanförnum
dögum í að leika völlinn og segir
hann góðan en ólíkan þeim sem
hún spilaði á í Aberdeen í Skotlandi,
fyrir viku.
„Hann er örlítið mýkri en völlur-
Lykilatriði að forðast sandgryfjurnar
Valdís Þóra Jónsdóttir hefur leik á Opna breska meistaramótinu, fjórða risamóti ársins í kvennagolfi, í dag. Mótið fer fram á sögufræg-
um velli en þetta er í annað sinn sem Valdís leikur á risamóti. Engar vatnstorfærur eru á vellinum en rúmlega tvö hundruð sandgryfjur.
inn í Aberdeen sem ég lék á í Skot-
landi um daginn eftir rigninguna
síðustu daga og það er von á rign-
ingu á fyrsta degi. Það eru nokkr-
ar par 4 holur sem eru ansi langar
og svo á móti eru nokkrar sem
eru nokkuð stuttar.“
Í næstu viku keppir Valdís svo
ásamt Ólafíu fyrir hönd Íslands á
Evrópumóti í liðakeppni atvinnu-
kylfinga í Skotlandi í næstu viku. Er
þetta í fyrsta sinn sem þetta mót fer
fram og er leikið á velli sem Ólafía
og Valdís léku á síðustu viku.
kristinnpall@frettabladid.is
Markmiðið er að
spila mitt besta golf
og sjá hverju það skilar mér.
Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur
Níu sandgryfjur verja
flötina á níundu holu
vallarins.
Sigmundur
Einar Másson,
Íslandsmeistari
í höggleik 2007.
Valdís Þóra horfir á eftir upphafshöggi á Opna bandaríska meistaramótinu í fyrra en hún fær annað tækifæri á risamóti í golfi í dag. GSÍMYNDIR.NET/SIGURÐUR ELVAR
0
2
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
4
-3
7
1
4
2
0
8
4
-3
5
D
8
2
0
8
4
-3
4
9
C
2
0
8
4
-3
3
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K