Fréttablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 22
Ný sending af haustvörum. Höfum lækkað útsöluna meira al lar yf i rhafnir á 50% afs læt- t i . S íðustu dagar útsölunnar! Höfum lækkað útsöluna í 50% afs látt NÝ SENDING FRÁ Persona by Marina Rinaldi Ný sending af haustvörum. Höfum lækkað útsöluna meira al lar yf i rhafnir á 50% afs læt- t i . Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@ frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Sigurður Dagur Sturluson gerir fátt annað í lífinu en að spila körfubolta og sinna starfi sínu hjá Deloitte í Kópavogi en þar hefur hann starfað í rúmlega ár eftir útskrift úr viðskipta- og tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Dagur, eins og hann er alltaf kallaður, segir að sér hafi alltaf fundist gaman að líta vel út og vera flott klæddur en hann hafi þó ekki farið að fylgjast með tískunni fyrr en á síðustu árum. Þar hafi aukið aðgengi að flottum merkjum og fötum haft mikið að segja, bæði með tilkomu samfélagsmiðla en einnig flottari verslana hér heima. „Í vinnunni gilda reglur um klæða- burð þannig að ég er oftast frekar fínt klæddur þar. Í frítíma mínum er ég hins vegar alls ekki þannig klæddur. Ég hef aldrei verið þessi jakkafatatýpa og er frekar óform- lega klæddur dags daglega. Þar legg ég mesta áherslu á gæði og hönnun í fatavali og kaupi frekar færri og endingarbetri flíkur en fleiri. Helstu tískufyrirmyndir eru helst fólkið í kringum mig. Ég reyni alltaf að fara mínar eigin leiðir þegar kemur að tísku en ef ég sé einhvern í kringum mig klæðast fallegri flík sem mér líst vel á hlýtur það að hafa áhrif á stíl minn.“ Eins og fyrr segir leikur körfu- boltinn stórt hlutverk í lífi Dags. „Ég er uppalinn í Njarðvík og hef spilað körfubolta allt mitt líf. Tímabilið fram undan í Domino’s- deild karla er hins vegar fjórða tímabil mitt með Valsmönnum og ég er mjög spenntur fyrir komandi tímabili þar sem við ætlum okkur að gera betur en á síðasta ári. Hjá Deloitte starfa ég við áhættuþjón- ustu og er að taka þátt í mörgum spennandi verkefnum þar þannig að ég sé fram á annasaman og skemmtilegan vetur.“ Fylgist þú vel með nýjustu tísku? Kærastan mín vinnur hjá Húrra Reykjavík og tekur þátt í innkaup- um þar þannig að líklegast fylgist ég mest með tísku í gegnum hana. Ef ég ætti að velja þann samfélags- miðil sem hefur mest áhrif á mig er það augljóslega Instagram. Hvar kaupir þú helst fötin þín? Hér heima finnst mér Húrra Reykjavík vera á allt öðrum stað en aðrar búðir og versla ég nánast eingöngu þar. Einnig kíki ég reglu- lega í Spúútnik og á ég t.d. nokkrar yfirhafnir þaðan sem ég hef notað mikið. Erlendis hef ég svo bara elt merkin sem ég fíla og fer í þær verslanir. Svo hef ég einnig nýtt mér endursöluappið Goat sem er algjör snilld og gott dæmi um aukið aðgengi að flottum tísku- vörum. Hvaða litir eru í uppáhaldi? Mér finnst skemmtilegt að klæðast litum en ef ég hugsa um það er ég oftast í látlausum litum og nánast alltaf í hvítum skóm. Ætli uppáhaldsliturinn minn sé ekki svartur. Áttu minningar um gömul tísku- slys? Þegar ég var fimmtán ára var ég mikið að rokka grátt jakkafatavesti yfir alls kyns litaða stuttermaboli og rifnar gallabuxur. Hvaða flík hefur þú átt lengst og notar enn? Ætli það sé ekki Carhartt WIP Sheffield jakki sem ég fékk að gjöf fyrir nokkrum árum. Áttu eina uppáhaldsflík? Líklega eru það Achilles low skórnir frá Common Projects. Ég á bæði hvíta og svarta skó og það er hægt að nota þá við næstum öll tilefni. Ég mæli með þeim. Bestu og verstu fatakaupin? Bestu kaupin eru klárlega hvítu Common Projects skórnir mínir. Verstu kaupin eru líklega fyrsta og eina skiptið sem ég pantaði mér flík á Asos.com. Það var peysa sem var líklega átta númerum stærri en ég átti von á en hana hef ég aldrei notað. Hvað finnst þér einkenna klæðnað ungra karla í dag? Aukið aðgengi og fataúrval hafa gert klæðnað ungra karla fjöl- breyttari en áður. Notar þú fylgihluti? Ég er næstum orðinn háður því að vera með hliðartösku sem mér finnst bæði vera flott og svo er hún virkilega þægileg á sama tíma. Svo er ég er alltaf með þunna gullkeðju um hálsinn auk þess sem ég nota stundum úr. Hægt er að fylgjast með Degi á Instagram (@sigurdurdagur). Wood Wood jakkinn er keyptur í Wood Wood versluninni í Kaupmannahöfn. Libertine Libertine Transworld buxurnar og Norse Projects langermabolurinn eru úr Húrra Reykjavík. Adidas Yeezy Calabasas skóna keypti hann gegnum Goat appið. Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Peysan er frá Stone Island og buxurnar eru frá Wood Wood og keyptar í Húrra Reykjavík. Skórnir eru Converse One Star úr Foot Patrol í London. ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA ÚTSALA - ÚTSALA Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook lgjört verðhrun á útsölu Kr. 1000 Kr. 2000 Kr. 3000 Kr. 4000 Kr. 5000 Buxur á Útsölu Kr. 2.000.- kr. 2.900.- Kr. 3.900.- Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Stærðir 38-52 SMART FÖT, FYRIR SMART KONUR 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . ÁG Ú S T 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 0 2 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 8 4 -2 3 5 4 2 0 8 4 -2 2 1 8 2 0 8 4 -2 0 D C 2 0 8 4 -1 F A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.