Fréttablaðið - 02.08.2018, Side 30
Elskulegur faðir okkar,
Erlingur Hallsson
sem lést föstudaginn 27. júlí, verður
jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 8. ágúst klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð
en þeim sem vilja minnast hans er bent
á Barnaspítala Hringsins.
Fyrir hönd aðstandenda,
Einar, Guðrún, Tryggvi og Erlingur Erlingsbörn
Ástkær sonur minn, stjúpsonur,
bróðir, mágur og barnabarn,
Birgir Imsland
Bræðratungu 1,
Kópavogi,
lést 27. júlí síðastliðinn.
Hann verður jarðsunginn frá Digraneskirkju
í dag, fimmtudaginn 2. ágúst klukkan 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna.
Fyrir hönd annarra ástvina,
Ómar Imsland Hildur Björg Hrólfsdóttir
Ragnar Imsland
Arnar Imsland Alexandra Dís Unudóttir
Bragi Þ. Sigurðsson Sigurlaug Sveinsdóttir
Ragnar Imsland Júlía Imsland
Okkar ástkæri bróðir,
Sigurjón Jónsson
til heimilis að Höfða, hjúkrunar- og
dvalarheimili, Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
þann 12. júlí síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Starfsfólki Höfða eru færðar hjartans þakkir
fyrir góða umönnun.
Eysteinn Jónsson
Unnur Jónsdóttir
Björn Jónsson
Steinn Jónsson
Elsa Jónsdóttir
Guðmundur Jónsson
Ólafur Jónsson
og fjölskyldur.
Elskuleg systir mín
og föðursystir okkar,
Áslaug Axelsdóttir
Þorragötu 9,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund þann 30. júlí sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Ólafía Axelsdóttir
Bryndís Ólafsdóttir Sigrún Ólafsdóttir
Axel Ólafsson og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín,
móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
María Steinunn Helga
Jóhannesdóttir
frá Dynjanda,
lést á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði, þriðjudaginn
31. júlí sl. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju
föstudaginn 10. ágúst kl. 13.00.
Sigurvin Guðbjartsson
Þórey Kristín Guðbjartsdóttir
Reynir Snæfeld Stefánsson
Guðbjartur Guðbjartsson
Sigurður Bjarki Guðbjartsson
tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og
barnabarnabarnabarn.
Áskær sambýlismaður minn,
faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir,
afi, langafi, bróðir og mágur,
Andrés Pétur Eyjólfsson
Læk, Holtum,
búsettur að Lóurima 7, Selfossi,
andaðist sunnudaginn 26. júlí
á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Hann verður jarðsettur
frá Hagakirkju í Holtum laugardaginn 4. ágúst kl. 14.00.
Rannveig Harðardóttir
Sigurborg S. Andrésdóttir Kristján Nielsen
Guðrún Andrésdóttir Sigurður J. Hallbjörnsson
Lilja Björk Andrésdóttir Kristján Ingi Magnússon
Sóley H. Guðbjörnsdóttir Björgvin Pálmi Daníelsson
Jósep Friðrik Guðbjörnsson
Ósvald H. Indriðason
Hilma Dögg Hávarðardóttir Sigursteinn Jónsson
Ólöf Stefanía Eyjólfsdóttir Óskar Konráðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
1897 Fáninn Hvítbláinn er fyrst dreginn að húni á hátíð í
bænum. Það gerir Kvenfélagið í Reykjavík, að forgöngu Þor-
bjargar Sveinsdóttur, föðursystur Einars Benediktssonar.
1924 Sænskur flugmaður, Erik H. Nelson, flýgur frá Kirkwall
á Orkneyjum til Hornafjarðar. Það er fyrsta flug yfir Atlants-
hafið til Íslands.
1927 Gamla bíó í Ingólfsstræti er opnað með frumsýningu
myndarinnar Ben Hur með Ramon Novarro í titilhlutverki.
1974 Brjóstmynd af Reykjavíkurskáldinu Tómasi Guð-
mundssyni er afhjúpuð í Austurstræti.
1988 Flugslys verður í Reykjavík og farast þrír menn er
kanadísk flugvél skellur í jörðina á milli Hringbrautar og
flugbrautarendans.
1990 Írakar ráðast inn í Kúveit.
Merkisatburðir
Ég er viss um að ef mamma hefði farið sömu braut og ég og í alla þessa listaskóla hefði hún náð
miklu lengra en ég. Hún er svo flink.
Ég er að opna einkasýningu en hún
er til heiðurs mömmu og hún hefur
unnið hana með mér. Mamma er minn
fyrsti áhrifavaldur og hefur kennt mér
svo margt sem ég hef notað í listinni,“
segir Jóní Jónsdóttir myndlistarmaður.
Sýningin nefnist Frá móður til dóttur –
frá dóttur til móður og verður opnuð í
Listasal Mosfellsbæjar að Þverholti 2 á
morgun, 3. ágúst. Þar getur að líta teikn-
ingar og málverk, líka vefnað og önnur
textílverk.
„Um það leyti sem ég fæddist tók
mamma námskeið í teikningu og
málun og svo hafa alltaf fylgt henni
og formæðrum hennar miklar hann-
yrðir,“ segir Jóní og heldur áfram. „Við
erum með tilvísun í ömmu hennar,
sem hét Sigurlína eins og hún, hún lét
mömmu og systur hennar snúa saman
band þannig að það líktist köðlum og
vinna fleira í höndunum, meðan hún
prjónaði á prjónavél. Við mamma bjugg-
um til snúrur og ófum úr þeim. Einnig
erum við með mæðgnaspuna, enda vann
mamma á spunavélum í gamla daga,
bæði í Gefjun og á Álafossi. Við notum
meira að segja garn sem henni áskotnað-
ist þar og er á stórum keilum.“
Jóní var einn af stofnendum Gjörn-
ingaklúbbsins og hefur síðustu 22 ár
unnið við flesta miðla á sviði myndlistar.
„Ég er viss um að ef mamma hefði farið
sömu braut og ég og í alla þessa lista-
skóla hefði hún náð miklu lengra en
ég. Hún er svo flink. Svo er hún músík-
ölsk, er með 7. stig á píanó, syngur frá-
bærlega, spilar á gítar, kann alla texta og
semur ljóð.“
Verkin á sýningunni eru öll ný. Jóní
segir þau flest hafa orðið til á heimili
móður hennar og nefnir eitt þeirra.
„Ég bað mömmu að teikna mynd eftir
mínu minni. Það var fyrsta myndin
sem ég sá hana teikna en er nú löngu
týnd og mamma var búin að gleyma
henni. Myndin var af konu með snák
um hálsinn sem er að kyrkja hana. Hún
var dálítið ógnandi. Þá átti mamma erfitt
í lífinu en henni líður svo vel í dag að á
myndinni núna er konan voða sæt og
undrandi.“
Sjálf kveðst Jóní bæta pönkgöddum
inn í textílverk og einnig pendúl. „Við
mamma höfum skemmt okkur yfir þessu
verkefni og líka grátið,“ segir hún. „Sum
af okkar umræðuefnum koma í ljós á
sýningunni, til dæmis í innsetningu sem
er alger flækja og heitir Fjölskyldan.“
gun@frettabladid.is
Erum með mæðgnaspuna
Mæðgurnar Jóní Jónsdóttir og Sigurlína Jóhannsdóttir heiðra sameiginlegar minningar
og formæður á sýningu sem opnuð verður á morgun í Listasal Mosfellsbæjar.
Mæðgurnar Jóní Jónsdóttir og Sigurlína Jóhannsdóttir innan um listaverkin í Mosfellsbænum. Fréttablaðið/ÞórSteinn
Ég er viss um að ef
mamma hefði farið
sömu braut og ég og í alla þessa
listaskóla hefði hún náð miklu
lengra en ég. Hún er svo flink.
2 . á g ú s t 2 0 1 8 F I M M t U D A g U R22 t í M A M ó t ∙ F R É t t A B L A ð I ð
tímamót
0
2
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
8
4
-3
C
0
4
2
0
8
4
-3
A
C
8
2
0
8
4
-3
9
8
C
2
0
8
4
-3
8
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K