Fréttablaðið - 02.08.2018, Side 48

Fréttablaðið - 02.08.2018, Side 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800 Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Benedikts Bóasar Hinrikssonar BAKÞANKAR Tikka Masala kjúklingur með mangó chutney sósu Opið allan sólarhringinn í öllum verslunum FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO *SAMLOKURNAR OKKAR* / ERU BESTAR Í DAG / Sómasamlokur Að keyra um landið er eitt-hvað sem ætti að vera góð skemmtun. En Vegagerðin er svo vonlaust apparat að það er ekkert skemmtilegt lengur. Allt sem Vegagerðin gerir er misheppnað. Það er ekkert sem þessi stofnun hefur gert undanfarin ár og ábyggi- lega áratug og jafnvel áratugi sem er vel heppnað. Vegagerðin er stofnun sem neitar að laga sig að nútímanum. Núna, þegar fleiri útlendingar eru á veginum og yfirleitt á fleygiferð, er allt stopp hjá Vegagerðinni. Skilti eru til dæmis enn þá öll á íslensku. „Malbik endar“ stóð á einu og mynd af bíl að fá grjót í rúðuna þegar ég keyrði um hina hættulegu vegi landsbyggðarinnar. Ég hef reynt að finna þetta alþjóðlega skilti en það bara fannst ekki. Í Vatnsdal er brúarflokkur búinn að vera að störfum, trúlega síðan fyrir stríð. Ábyggilega á tímakaupi því vinnan gengur fjandakornið ekki neitt. Það er aldrei neitt að gerast þar. Ein dauf umferðarljós og fátt um aðrar viðvaranir. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september. Og hvað er betra en að loka Þing- vallavegi fyrir allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg fram í október? Það er ekki eins og Þing- vellir séu nokkuð vinsælir á þessum tíma árs. Svona væri hægt að telja áfram. Réttast væri að flengja alla starfs- menn og sérstaklega yfirmenn. Þegar maður sér hvað mikið af launum manns fer í skatt, sem Vega- gerðin tekur trúlega helvíti stóran hluta af, þá finnst mér að það sé góð lausn. Að allir landsmenn fengju að flengja yfirmenn í Vegagerðinni. Já, eða bara að reka alla yfirmenn. Alltént eru þeir ekki að vinna fyrir laununum sem við borgum þeim. Bölvuð Vegagerðin 0 2 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 8 4 -0 5 B 4 2 0 8 4 -0 4 7 8 2 0 8 4 -0 3 3 C 2 0 8 4 -0 2 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.