Fréttablaðið - 20.08.2018, Side 2
Veður
Sunnan 3-8 m/s og rigning, en
skýjað á Norðaustur- og Austur-
landi og stöku skúrir síðdegis. Hiti
9 til 17 stig, hlýjast á norðaustan-
verðu landinu. sjá síðu 20
Segðu bless við sköfuna og hitaðu bílinn
með Webasto bílahitara – Webasto bílahitari
-8°
-6°
-7°
0_StH_ANZ_Snow_99,3x99,5_Island.indd 4 27.10.17 14:2
BÍLASMIÐURINN HF
BÍLDSHÖFÐA 16
SÍMI: 567-2330
www.bilasmidurinn.is • bilasmidurinn@bilasmidurinn.is
Mikið úrval af vönduðum
Webasto ísskápum í húsbíla
„12/24v með pressu”
Mokað fyrir knatthúsi
FH-ingar fjölmenntu í Kaplakrika í gær og tóku fyrstu skóflustungur að nýju knatthúsi. Allt hefur logað í bæjarpólitíkinni í Hafnarfirði um nokk-
urra ára skeið vegna knatthúsa og hafa bæði íþróttafélög bæjarins blandast í deiluna. Málið er leitt til lykta þannig að bærinn kaupir eignir af FH
fyrir tæpar 800 milljónir og FH-ingar byggja sjálfir nýtt hús fyrir kaupverðið. Átökum um málið í bæjarstjórn er þó haldið áfram. Fréttablaðið/SteFán
menning Gamla bjallan við dóm-
kirkju Krists konungs, í daglegu tali
oft nefnd Landakotskirkja, er nú í
yfirhalningu.
Farið er um yfirborð bjöllunnar
með pússara, hún slípuð öll til og
frískað upp á hana.
Klukkur kirkjunnar eru þrjár og
eru tileinkaðar Kristi konungi, heil-
agri Maríu og heilögum Jósef.
Bjallan er merkileg fyrir þær sakir
meðal annars að hún var aldrei
notuð því galli kom í ljós á henni
eftir komuna til landsins. – jóe
Gömul bjalla fær andlitslyftingu
Galli kom í ljós í kirkjubjöllunni eftir komuna til landsins. Fréttablaðið/eyþór
menning Gríðarleg stemning var í
miðborg Reykjavíkur á laugardag
er Menningarnótt fór fram í ein-
muna blíðu. Að mati lögreglu sóttu
á annað hundrað þúsund manns
hátíðina.
Viðburðinum fylgdu mikil við-
skiptatækifæri, ekki síst fyrir veit-
ingahús og alls kyns götusala. Þá
veittu útsendarar Fréttablaðsins því
athygli að dósa- og flöskusafnarar
voru á þönum langt fram eftir öllu
enda virtust gestir Menningarnætur
alveg sérstaklega þyrstir í sólinni.
Hátíðin var því mikil búbót fyrir
þennan hóp.
Hjá endurvinnslustöð Sorpu í
Ánanaustum var linnulítill straum-
ur fólks með flöskur og dósir síð-
degis í gær. Þær upplýsingar fengust
hins vegar hjá starfsmanni Sorpu að
ekki hefði óvenjumikið skilað sér í
endurvinnsluna því stórsafnararnir
hefðu ekki enn látið sjá sig.
Áberandi var hversu mannskap-
urinn dreifðist vel um miðborgina
allan daginn enda fjölbreytt dagskrá
í boði um allar trissur. Hið árlega
Reykjavíkurmaraþon var á sínum
stað fyrri hluta dags og voru yfir 14
þúsund manns skráðir til leiks og
hlupu ýmsar vegalengdir.
Vegna veðurblíðunnar og fjölda
gesta var lögreglan við ýmsu búin. Í
uppgjöri hennar eftir hátíðina kom
meðal annars fram að 93 mál hefðu
komið upp á lögreglustöðinni í mið-
bænum frá klukkan sjö um kvöldið
þar til sex á sunnudagsmorgun. Þar
á meðal var líkamsárás, slagsmál og
stympingar á meðal ungmenna auk
þó nokkurra mála vegna ölvunar og
fólks sem var ósjálfbjarga.
„Hellt var niður þó nokkru af
Menningarnóttin sem
draumur í safnaradós
Yfir eitt hundrað þúsund manns voru í miðbæ Reykjavíkur á Menningarnótt.
Fjöldanum fylgdu mikil viðskipti fyrir veitingahús og götusala. Sama gilti um
dósa- og flöskusafnara sem höfðu vart undan að hirða upp eftir manngrúann.
Flöskur streymdu til Sorpu í ána-
naustum í gær. Fréttablaðið/Garðar
umhverfismál Samtök sem kalla
sig Whale Save gangast í kvöld fyrir
samstöðuvöku gegn veiðum á lang-
reyðum við hvalstöðina í Hvalfirði.
„Jafnvel þó að ólíklegt sé að
verið sé að búta niður hval á þeim
tíma sem samtöðuvakan er þá er
samt mikilvægt að mæta og bera
vitni fyrir utan starfsemi sem ber
ábyrgð á svona mikilli grimmd, og
til að beina sjónsviði fólks á þennan
ofbeldisfulla og óréttmæta iðnað,“
segir um viðburðinn á síðu sam-
takanna. – gar
Vaka fyrir hvali
Í hvalstöðinni. Fréttablaðið/GVa
Mikill fjöldi gesta
sótti miðborg
Reykjavíkur og var því erill
hjá lögreglu samkvæmt því.
Úr tilkynningu lögreglunnar
áfengi hjá unglingum undir aldri.
Mikill fjöldi gesta sótti miðborg
Reykjavíkur og var því erill hjá lög-
reglu samkvæmt því. Tíu aðilar gistu
fangageymslur vegna ýmissa mála,“
segir um verkefnin hjá lögreglustöð
1. gar@frettabladid.is
líf og fjör var á Klapparstíg þar sem danstónlistin dunaði. Fréttablaðið/SteFán
2 0 . á g ú s t 2 0 1 8 m á n u D A g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t A B l A ð i ð
2
0
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
A
-B
F
5
0
2
0
9
A
-B
E
1
4
2
0
9
A
-B
C
D
8
2
0
9
A
-B
B
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K