Fréttablaðið - 20.08.2018, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 20.08.2018, Blaðsíða 41
SLÖKKTU Á EYÐSLUNNI OG KVEIKTU Á SPARNAÐINUM FYRIR HUGSANDI FÓLK HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum 5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að nna á www.hekla.is/abyrgd Mitsubishi Outlander PHEV er glæsilega hannaður, rúmgóður og háþróað fjórhjóladrið kemur þér lengra allt árið. Þú getur ekið á hreinni íslenskri orku svo að bíllinn verður sparneytnari og umhversvænni. Outlander PHEV var vinsælastur í okki jeppa og jepplinga árið 2017. Nú fylgir 350.000 kr. sumarauki ásamt hleðslustöð að verðmæti 150.000 með öllum nýjum Mitsubishi Outlander PHEV bílum keyptum hjá HEKLU. Slökktu á eyðslunni og kveiktu á sparnaðinum í nýjum Outlander PHEV. Hlökkum til að sjá þig! Outlander Instyle PHEV Sjálfskiptur, fjórhjóladrinn frá: 5.490.000 kr. Mitsubishi PHEV kemur þér inn í framtíðina Sumarauki og hleðs lu- stöð að verðmæti 500.000kr. fylgir! Hvað? Hvenær? Hvar? Mánudagur hvar@frettabladid.is 20. ágúst Tónlist Hvað? Hamell úti í garði! Hvenær? 19.30 Hvar? Langholtsvegi 62 Hamell on Trial lokar hringnum með tónleikum úti í garði á Lang- holtsvegi 62 í kvöld. Boðið verður upp á hratt og hrátt kassgítar- rokk með votti af blús og pönki á hnífsoddi. Textarnir eru rándýrir, berorðir og drekkhlaðnir sótsvört- um húmor. Í stuttu máli, brjálað fjör! Það eru allir velkomnir en fólk er hvatt til að koma með eigin veigar og gott að grípa garðstól. Viðmiðunarupphæð frjálsra fram- laga er 2.000 krónur sem renna óskiptar til listamannsins. Viðburðir Hvað? Frá Seattle til Sanders: Lexíur fyrsta áratugarins Hvenær? 17.30 Hvar? Múltíkúltí, Barónsstíg 3 Saga róttækra vinstristjórnmála á Íslandi síðan um árið 2000 hefur verið viðburðarík. Má þar nefna mótmælin gegn Íraksstríðinu, deilurnar um Kárahnjúkavirkjun, Hrunið, Búsáhaldabyltinguna, fyrstu „hreinu vinstristjórnina“ og stórbyltingar í kvenréttindabar- áttu. Róttæki sumarháskólinn og Andrými hafa laðað að sér fjölda fólks og nýjar stjórnmálahreyfing- ar s.s. Borgarahreyfinguna, Dögun og Pírata sem hafa náð áhrifum til skemmri eða lengri tíma. Er hægt að greina eitthvert samhengi eða þróun milli þessara atburða og draga af þeim lærdóm? Í þessari námsstofu verður reynt að svara þeirri spurningu með hliðsjón af alþjóðlegri þróun, einkum í Bandaríkjunum og Bretlandi. Hvað? Leigjendur rísa upp Hvenær? 20.00 Hvar? Borgartúni 1 Fundur um hvernig leigjendur geta sameinast og myndað sterk samtök til að berjast fyrir öruggu og ódýru húsnæði fyrir alla. Rætt verður um stofnun sérstaks félags leigjenda hjá Félagsbústöðum, sérstök félög leigjenda hjá Heima- völlum og Almenna leigufélaginu og hvernig þessi félög geta komið fram sem samningsaðilar um leiguverð, leigutíma og önnur hagsmunamál leigjenda. Einnig verður rætt um styrkingu Samtaka leigjenda, en aðalfundur félagsins verður innan skamms, og hvernig leigjendur geta tryggt að rödd sín heyrist í samfélaginu. Áhugafólk um samtök leigjenda hjá ein- stökum félögum (til dæmis Brynju, húsfélagi Öryrkjabandalagsins) eða í einstökum byggðarlögum er hvatt til að koma og viðra hug- myndir sínar. Fundurinn hefst kl. 20 mánudagskvöldið 20. ágúst í Borgartúni 1, 2. hæð (gengið inn sjávarmegin). Hvað? Samstöðuvaka fyrir langreyðar Hvenær? 20.30 Hvar? Hvalfirði „Stattu með okkur á mánudags- kvöld á fyrstu samstöðuvökunni á vegum Reykjavík Whale Save!“ segir í tilkynningu. „Jafnvel þó að ólíklegt sé að verið sé að búta niður hval á þeim tíma sem sam- töðuvakan er þá er samt mikilvægt að mæta og bera vitni fyrir utan starfsemi sem ber ábyrgð á svona mikilli grimmd, og til að beina sjónsviði fólks á þennan ofbeldis- fulla og óréttmæta iðnað. Dýra- réttindabaráttukonan Dani Rukin frá Bandaríkjum Norður-Ameríku mun vera með okkur og deila rauntíma myndböndum á sam- félagsmiðla undir dýraréttinda- stöðinni „JaneUnChained News“ sem er með um milljón fylgendjur, til að hafa viðtæka umfjöllun um málið, svo því fleiri sem mæta því betra!“ Námskeið Hvað? Kizomba SalsaIceland Hvenær? 20.30 Hvar? Sólon Bistro SalsaIceland býður upp á ókeypis prufutíma fyrir byrjendur í kizomba kl. 20.30-21.00 og eftir það verður dansað kizomba til kl. 23.00 á Sólon. Þetta er frá- bært tækifæri til að athuga hvort byrjenda eða 2. stigs námskeiðið í kizomba sem hefjast annað kvöld, þriðjudagskvöld, henti fólki. Allir eru hvattir til að koma og prófa þennan seiðandi dans en vinsældir hans fara ört vaxandi um allan heim. Hvað? Masterclass með Baron Baptiste Hvenær? 17.30 Hvar? Yoga Shala, Skeifunni 7 Yoga Shala kynnir með mikilli eft- irvæntingu frábæran kennara sem kemur í heimsókn. Fólk er hvatt til að missa ekki af þessu einstaka tækifæri. Verð: 8.900 kr. fyrir með- limi í Yoga Shala. 12.900 kr. fyrir aðra (ekki er tekið við greiðslu- kortum í Yoga Shala). Hægt er að skrá sig með því að senda tölvu- póst á yoga@yogashala.is með kvittun fyrir millifærslu. Banka- upplýsingar: 526-26-3130, kt. 420905-0410. Saga róttækra vinstristjórnmála á Íslandi frá 2000 er efni námsstefnu Róttæka sumarháskólans. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON m e N N i N g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 21m Á N U D A g U R 2 0 . Á g ú s T 2 0 1 8 2 0 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 A -E 1 E 0 2 0 9 A -E 0 A 4 2 0 9 A -D F 6 8 2 0 9 A -D E 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.