Fréttablaðið - 20.08.2018, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.08.2018, Blaðsíða 6
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið SKIPULAGSMÁL Breytingar á aðal- og deiliskipulagi miðbæjar Selfoss voru samþykktar í íbúakosningu á laugardag. Allir íbúar sveitarfélags- ins Árborgar 18 ára og eldri voru á kjörskrá. Kosningaþátttaka var um 55 pró- sent og er niðurstaðan þar með bindandi fyrir bæjarstjórnina en minnst 29 prósenta þátttöku þurfti til þess. Alls greiddu 2.130 atkvæði með breytingum á aðalskipulagi en 1.425 voru andvígir breytingunum. Þá skiluðu 85 auðu. Af þeim sem tóku afstöðu voru því um 60 pró- sent fylgjandi breytingunum en um 40 prósent mótfallin. Svipuð niðurstaða var þegar spurt var um breytingar á deiliskipulagi. 2.034 voru hlynntir breytingum á deiliskipulagi, 1.434 voru andvígir og 172 skiluðu auðu. Leó Árnason, framkvæmdastjóri Sigtúns þróunarfélags sem er fram- kvæmdaaðili verkefnisins, segist mjög sáttur við niðurstöðuna sem hann segir hafa verið afgerandi. „Tillögurnar voru fyrst kynntar í mars 2015 þannig að þetta er búið að vera langt og strangt ferli. Við renndum blint í sjóinn um niður- stöðuna en fundum þó mikinn meðbyr síðustu vikur þegar fólk fór að kynna sér málið betur,“ segir Leó. Hann segir greinilegt að fólk sé spennt fyrir verkefninu, ekki síst endurbyggingu Gamla mjólkurbús- ins. Þar er ráðgert að setja upp safn helgað skyri og mjólkuriðnaðinum. Að sögn Leós er stefnt að því að taka fyrstu skóflustungu að fyrri áfanga verkefnisins í lok næsta mánaðar. Aldís Sigfúsdóttir, einn þriggja ábyrgðarmanna undirskrifta- Breytingar á miðbæ Selfoss samþykktar í íbúakosningu Íbúar í sveitarfélaginu Árborg samþykktu á laugardag í íbúakosningu tillögur um uppbyggingu miðbæjar Selfoss. Tillögurnar hafa verið umdeildar og var safnað undirskriftum til að knýja fram kosninguna. Fram- kvæmdaaðilar vonast til að geta hafist handa í lok næsta mánaðar. Forsprakki íbúakosningar er ósáttur. Tölvugerð yfirlitsmynd af því hvernig nýi miðbærinn á Selfossi gæti litið út þegar framkvæmdunum er lokið. söfnunarinnar, segist hafa viljað sjá aðrar niðurstöður. „Þátttakan var ágæt en það er rosalegt að fara út í þetta þegar svona margir eru and- vígir.“ Hún segir að hugmyndin með íbúakosningunni hafi verið að setja þetta í hendur íbúanna. Hún bendir á að áætlaður byggingarkostnaður sé hærri en árstekjur sveitarfélags- ins. „Þetta er mjög stór framkvæmd fyrir lítið samfélag. Þarna er verið að setja tvo hektara í hendurnar á einu félagi.“ Þá gagnrýnir hún að áformin feli í sér skerðingu bæjargarðsins. „Garð- urinn er gersemi sem á að halda í. Starfsemin sem er í kringum hann ætti að vera á þeim forsendum að styrkja garðinn.“ Ábyrgðarmenn undirskrifta- söfnunarinnar hafa sent bæjarráði ábendingar um það sem þeir telja formgalla á framkvæmd kosningar- innar. „Við höfum ekki fengið form- legt svar við þessum ábendingum um hvort íbúakosningin hafi verið í samræmi við lög og reglur.“ sighvatur@frettabladid.is Þátttakan var ágæt en það er rosalegt að fara út í þetta þegar svona margir eru andvígir. Aldís Sigfúsdóttir, einn þriggja ábyrgð- armanna undirskriftasöfnunarinnar LöGreGLUMÁL Ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir manninum sem grunaður er um stunguárás í Skeifunni í fyrrinótt. Karl Steinar Valsson, yfirlög- regluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við blaðamann á frettabladid.is að lagalegar for- sendur væru ekki fyrir hendi til að fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum þrátt fyrir alvarleika árásarinnar. Maðurinn hafi því verið látinn laus að lokinni skýrslu- töku. Karl Steinar vildi ekki tjá sig um það hvort játning lægi fyrir í mál- inu. Lögreglu barst tilkynning klukk- an fimm í fyrrinótt um árásina. Gerandinn var sagður hafa stungið mann ítrekað í neðri hluta líkamans svo hann hlaut djúpa skurði. Mað- urinn var fluttur á slysadeild. Hann var ekki talinn í lífshættu. – ph Látinn laus eftir hnífstunguárás í Skeifunni í fyrrinótt Tilkynnt var um hnífarárás í Skeifunni í fyrrinótt. FréTTablaðið/Vilhelm VIÐSKIPTI Vöruskiptin á síðasta ári voru neikvæð um 176,5 milljarða króna en árið áður voru þau nei- kvæð um 108,2 milljarða. Hagstofan hefur birt endanlegar tölur fyrir árið 2017. Þar kemur fram að vörur voru fluttar út fyrir 519,6 milljarða miðað við 537,4 milljarða árið áður. Vöru- innflutningur nam 696,1 milljarði sem var tæpum átta prósentum meira en árið áður þegar vörur voru fluttar inn fyrir 645,6 milljarða. Iðnaðarvörur voru tæp 54 pró- sent útflutningsverðmætis en ál og álafurðir voru stærstur hluti þess. Hlutdeild sjávarafurða af útflutn- ingsverðmæti nam 38 prósentum. Stærstu hlutdeild í innflutnings- verðmæti áttu hrá- og rekstrarvörur, eða tæp 27 prósent, fjárfestingar- vörur námu rúmu 21 prósenti og flutningstæki tæpum 19 prósentum. – sar Vöruhalli jókst á síðasta ári Samdráttur varð í vöruútflutningi á síðasta ári. FréTTablaðið/Vilhelm PALeSTínA Stjórnvöld í Ísrael hafa lokað fyrir einu leið fólksflutninga um landamæri Ísraels og Gaza. Í um áratug hefur Ísrael haft stjórn á umferð um landamæri Gaza. Und- anþágur verða þó veittar í neyðar- tilfellum. Í síðustu viku opnuðu yfirvöld einu leiðina fyrir birgða- flutninga til Gaza en þá hafði leiðin verið lokuð í mánuð. Lokunin gæti haft áhrif á friðar- viðræður Ísraels og Hamas. Sam- kvæmt Sameinuðu þjóðunum og Egyptum sem miðla málum miðar þeim vel áfram og eru taldar tölu- verðar líkur á að samningar náist um vopnahlé á næstunni. – ph Lokað á ferðir fólks til Gaza InDLAnD Flóðin í Kerala-héraði á Indlandi eru í rénun. Búist er við að það dragi úr rigningu á næstu dögum og vinna björgunaraðilar nú hörðum höndum að því að bjarga þúsundum sem enn eru fastir á flóðasvæðunum. Tilkynnt hefur verið um að þrjá- tíu og þrír hafi týnt lífi á laugar- daginn og minnst þrettán í gær. Alls hafa meira en 370 látist af völdum flóða frá því að monsún-tímabilið hófst í maí, langflestir síðustu daga. Flóðin í héraðinu er þau verstu í heila öld en viðbúnaðarstigið var lækkað í gær og er ekki lengur á hæsta stigi. Indverski herinn segir í tilkynningu að hann hafi bjargað rúmlega 23 þúsund manns á síðustu dögum og að um tvö þúsund þeirra hafi þurft á læknismeðferð að halda. Ekki er vitað hversu miklar skemmdir hafa orðið af völdum flóðanna en það verður ekki ljóst fyrr en vatnsyfirborðið hefur lækk- að enn frekar. Að sögn ráðamanna er þó talið að rúmlega 80 þúsund kílómetrar af vegum þarfnist lag- færingar í kjölfar flóðanna. Þá hafa um 20 þúsund heimili og stór ræktarlönd eyðilagst. Um fjögur þúsund hjálparmiðstöðvar hafa verið settar upp víðs vegar um héraðið. Nú verður lögð áhersla á að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúk- dóma sem geta borist með vatni. – sar Flóðin í Kerala-héraði í rénun Sjálfboðaliðar dreifa matvælum á flóðasvæðunum í gær. NOrDiCPhOTS/GeTTY 2 0 . Á G ú S T 2 0 1 8 M Á n U D A G U r6 f r é T T I r ∙ f r é T T A B L A Ð I Ð 2 0 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 A -E 6 D 0 2 0 9 A -E 5 9 4 2 0 9 A -E 4 5 8 2 0 9 A -E 3 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.