Fréttablaðið - 20.08.2018, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 20.08.2018, Blaðsíða 11
Ég þekki fólk sem hefur upp-lifað kulnun í vinnu. Ég skal viðurkenna að mér fannst skrítið að heyra af þessu ástandi fyrst. Það passaði ekki alveg í hausnum á mér. Um er að ræða afskaplega duglegt fólk með sitt á hreinu og ofurklárt í sínu fagi. Svo frétti ég semsagt þetta: Það var komið í leyfi. Það gat ekki unnið meira. Vinnan var orðin óbærileg. Vinnuum- hverfið niðurdrepandi. Allur sýnilegur tilgangur með vinnuálaginu var fokinn út í veður og vind. Ég held að flestir þekki fólk sem hefur kulnað í vinnu, ef það hefur ekki einfaldlega kulnað í vinnu sjálft. Nýjustu upplýsingar gefa til kynna að þetta ásigkomulag sé að verða sífellt algengara. Æ fleiri sækja sér aðstoð vegna kulnunar. Maður þarf í raun ekki að kafa lengi í sitt eigið sálarlíf til þess að uppgötva hvernig kulnun gæti átt sér stað. Oft hefur maður í gegnum tíð- ina fundið þessar tilfinningar í vinnu: Tilgangsleysi. Doða. Yfirþyrmandi leiða. Óbærilegt álag. Ef sú líðan yrði viðvarandi, en ekki bara tímabundin, myndi kulnun blasa við. Að þekkja mörkin Undanfarið hefur verið keyrð í fjöl- miðlum ákaflega þörf auglýsingaher- ferð út af kulnun. Þar er því beint til fólks að það eigi að þekkja mörk sín. Jafnvel hetjur keyra sig út í starfi, er sagt. Það er hverju orði sannara. Hetja eða ekki hetja. Það gildir einu. Málið snýst ekki um, held ég, hvort viðkom- andi manneskjur séu klárar, hæfar eða duglegar í vinnu. Málið snýst frekar um það, að einmitt klárar, hæfar, duglegar, samviskusamar manneskjur hætta að sjá tilgang með streði sínu. Lífið missir litina. Þannig að, já, þetta er líklega rétt, en hitt finnst mér aftur umdeilanlegra: Þekktu þín mörk, segir í auglýsingunni. Er það fyllilega sanngjörn beiðni? Annar fókus Ég er ekki frá því að viðureignin við kulnun sé mun fremur spurning um að samfélagið, vinnumarkaðurinn, læri að þekkja mörk vinnandi fólks. Hver er krafa fólks í dag og hvað vill það fá út úr lífinu? Hvernig hefur sú krafa breyst? Starfskraftur á vinnustað sem þekkir sín mörk og er síendurtekið að segja fólki frá þeim mörkum er ekki líklegur – og þetta er kalt mat – til þess að skapa sér miklar vinsældir samstarfsfólks eða vinnuveitanda. Þannig er menn- ingin. Það eru afskaplega fáir í þeirri stöðu í vinnu sinni að geta sagt öðrum að nú sé komið gott í dag, og að nú sé mál til komið að fara heim og gera eitthvað skemmtilegt með börnunum. Fara í sund. Skreppa í Húsdýragarðinn. Þrýstingur flestra vinnustaða er algjör- lega í hina áttina. Mættu, vertu, ekki væla. Við erum öll að streða hérna, manneskja. Fókusinn í auglýsingunni er því ekki alveg réttur, finnst mér. Ég er langt í frá sérfræðingur í málinu en ætla þó að kasta pælingum í púkkið: Mér sýnist hafa myndast gjá milli væntinga fólks til lífsins annars vegar og gildanna sem enn ríkja á vinnumarkaði hins vegar. Fjölskyldufólk er ekki reiðubúið lengur að fórna uppvaxtarárum barna sinna í það að ná einhverjum rosa- legum árangri í vinnunni, jafnvel fyrir ókunnuga gaura úti í bæ sem græða á puðinu. Jafnvel hin göfugustu störf, þjónustuverk í almannaþágu eða leit að lækningu við krabbameini, geta kafnað í botnlausum leiðindum vegna starfsmannamála, tilætlunarsemi ann- arra eða ósanngjarnrar yfirstjórnar. Allt í einu fara sólarhringarnir að einkenn- ast af vanlíðan. Það sem hefur breyst er þá semsagt þetta: Fólk er ekki lengur reiðubúið að eyða drjúgum hluta ævi sinnar í vanlíðan í vinnunni. Til hvers? Vinnan er ekki lengur númer eitt. Hvað er til ráða? En samt þarf að vinna. Það þarf að lækna, kenna, búa til hluti, þjónusta fólk, uppgötva, skemmta og skeina. Það er mikilvægt að störfum sé sinnt af metnaði. Hvernig fólk vinnur vinnuna sína getur haft úrslitaáhrif á gæði lífsins fyrir afskaplega marga. Hin gamla, rótgróna krafa um að fólk fórni sér, fjölskyldu sinni, sálarheill og heilbrigði fyrir vinnuna er hins vegar úrelt. Hvað er þá til ráða? Ég held að það þurfi auglýsingaherferð í kjölfarið á hinni þar sem skorað er á vinnuveitendur að kynna sér mörk starfsfólksins. Svo þarf að gjörbreyta atvinnulífinu. Kannski þarf atvinnulífið að verða meira eins og Reykjavíkurmaraþon. Þar tekst fólk á við alls konar mismunandi áskor- anir, vegalengdir, á eigin forsendum, miðað við eigin getu og áhuga. Fólk leggur sig allt fram og það sem meira er, það er hvatt áfram af alls konar fólki á hliðarlínunni, en ekki drepið niður. Niðurstaðan er ótrúleg: Samanlagt hljóp fólk á laugardaginn, í alls konar formi, 176.994 kílómetra. Það er ríflega fjórum sinnum umhverfis jörðina. Kannski þarf atvinnulífið að verða meira eins og Reykjavíkur- maraþon. Þar tekst fólk á við alls konar mismunandi áskoranir, vegalengdir, á eigin forsendum, miðað við eigin getu og áhuga. Besta Hekluverðið 4.690.000 kr. VW Passat GTE Tengiltvinnbíll / Sjálfskiptur / Vistvænn Hér er aðeins sýndur hluti af bílum í boði. Fullt verð er verð hvers bíls með aukabúnaði. Aukabúnaður á myndum gæti verið annar en í auglýstum verðdæmum. 5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum Nýr Volkswagen á Besta Hekluverðinu Nú er góður tími til að fá sér nýjan Volkswagen hjá Heklu því við vitum aldrei hvað svona frábært verð býðst lengi. Tryggðu þér Volkswagen á besta Hekluverðinu og aktu inn í sumarið. Besta Hekluverðið 6.990.000 kr. VW Tiguan Allspace Comfortline+ 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur / Fjórhjóladrifinn / Sjö sæta / Dráttarbeisli Fullt verð: 7.635.000 kr. 645.000 kr. Afsláttur Besta Hekluverðið 4.490.000 kr. VW T-Roc 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur / Fjórhjóladrifinn Guðmundur Steingrímsson Í dag Kulnun og maraþon S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 2 0 . Á g ú S T 2 0 1 8 2 0 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 9 A -B F 5 0 2 0 9 A -B E 1 4 2 0 9 A -B C D 8 2 0 9 A -B B 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.