Fréttablaðið - 20.08.2018, Síða 11
Ég þekki fólk sem hefur upp-lifað kulnun í vinnu. Ég skal viðurkenna að mér fannst skrítið að heyra af þessu ástandi fyrst. Það passaði ekki alveg í hausnum á mér.
Um er að ræða afskaplega duglegt fólk
með sitt á hreinu og ofurklárt í sínu
fagi. Svo frétti ég semsagt þetta: Það var
komið í leyfi. Það gat ekki unnið meira.
Vinnan var orðin óbærileg. Vinnuum-
hverfið niðurdrepandi. Allur sýnilegur
tilgangur með vinnuálaginu var fokinn
út í veður og vind.
Ég held að flestir þekki fólk sem
hefur kulnað í vinnu, ef það hefur
ekki einfaldlega kulnað í vinnu sjálft.
Nýjustu upplýsingar gefa til kynna að
þetta ásigkomulag sé að verða sífellt
algengara. Æ fleiri sækja sér aðstoð
vegna kulnunar. Maður þarf í raun ekki
að kafa lengi í sitt eigið sálarlíf til þess
að uppgötva hvernig kulnun gæti átt
sér stað. Oft hefur maður í gegnum tíð-
ina fundið þessar tilfinningar í vinnu:
Tilgangsleysi. Doða. Yfirþyrmandi
leiða. Óbærilegt álag. Ef sú líðan yrði
viðvarandi, en ekki bara tímabundin,
myndi kulnun blasa við.
Að þekkja mörkin
Undanfarið hefur verið keyrð í fjöl-
miðlum ákaflega þörf auglýsingaher-
ferð út af kulnun. Þar er því beint til
fólks að það eigi að þekkja mörk sín.
Jafnvel hetjur keyra sig út í starfi, er
sagt. Það er hverju orði sannara. Hetja
eða ekki hetja. Það gildir einu. Málið
snýst ekki um, held ég, hvort viðkom-
andi manneskjur séu klárar, hæfar eða
duglegar í vinnu. Málið snýst frekar um
það, að einmitt klárar, hæfar, duglegar,
samviskusamar manneskjur hætta að
sjá tilgang með streði sínu. Lífið missir
litina. Þannig að, já, þetta er líklega rétt,
en hitt finnst mér aftur umdeilanlegra:
Þekktu þín mörk, segir í auglýsingunni.
Er það fyllilega sanngjörn beiðni?
Annar fókus
Ég er ekki frá því að viðureignin við
kulnun sé mun fremur spurning um að
samfélagið, vinnumarkaðurinn, læri
að þekkja mörk vinnandi fólks. Hver er
krafa fólks í dag og hvað vill það fá út úr
lífinu? Hvernig hefur sú krafa breyst?
Starfskraftur á vinnustað sem þekkir
sín mörk og er síendurtekið að segja
fólki frá þeim mörkum er ekki líklegur
– og þetta er kalt mat – til þess að skapa
sér miklar vinsældir samstarfsfólks
eða vinnuveitanda. Þannig er menn-
ingin. Það eru afskaplega fáir í þeirri
stöðu í vinnu sinni að geta sagt öðrum
að nú sé komið gott í dag, og að nú
sé mál til komið að fara heim og gera
eitthvað skemmtilegt með börnunum.
Fara í sund. Skreppa í Húsdýragarðinn.
Þrýstingur flestra vinnustaða er algjör-
lega í hina áttina. Mættu, vertu, ekki
væla. Við erum öll að streða hérna,
manneskja.
Fókusinn í auglýsingunni er því ekki
alveg réttur, finnst mér. Ég er langt í frá
sérfræðingur í málinu en ætla þó að
kasta pælingum í púkkið: Mér sýnist
hafa myndast gjá milli væntinga fólks
til lífsins annars vegar og gildanna
sem enn ríkja á vinnumarkaði hins
vegar. Fjölskyldufólk er ekki reiðubúið
lengur að fórna uppvaxtarárum barna
sinna í það að ná einhverjum rosa-
legum árangri í vinnunni, jafnvel fyrir
ókunnuga gaura úti í bæ sem græða
á puðinu. Jafnvel hin göfugustu störf,
þjónustuverk í almannaþágu eða leit
að lækningu við krabbameini, geta
kafnað í botnlausum leiðindum vegna
starfsmannamála, tilætlunarsemi ann-
arra eða ósanngjarnrar yfirstjórnar. Allt
í einu fara sólarhringarnir að einkenn-
ast af vanlíðan. Það sem hefur breyst
er þá semsagt þetta: Fólk er ekki lengur
reiðubúið að eyða drjúgum hluta ævi
sinnar í vanlíðan í vinnunni. Til hvers?
Vinnan er ekki lengur númer eitt.
Hvað er til ráða?
En samt þarf að vinna. Það þarf að
lækna, kenna, búa til hluti, þjónusta
fólk, uppgötva, skemmta og skeina.
Það er mikilvægt að störfum sé sinnt af
metnaði. Hvernig fólk vinnur vinnuna
sína getur haft úrslitaáhrif á gæði lífsins
fyrir afskaplega marga. Hin gamla,
rótgróna krafa um að fólk fórni sér,
fjölskyldu sinni, sálarheill og heilbrigði
fyrir vinnuna er hins vegar úrelt. Hvað
er þá til ráða? Ég held að það þurfi
auglýsingaherferð í kjölfarið á hinni
þar sem skorað er á vinnuveitendur að
kynna sér mörk starfsfólksins. Svo þarf
að gjörbreyta atvinnulífinu. Kannski
þarf atvinnulífið að verða meira eins
og Reykjavíkurmaraþon. Þar tekst fólk
á við alls konar mismunandi áskor-
anir, vegalengdir, á eigin forsendum,
miðað við eigin getu og áhuga. Fólk
leggur sig allt fram og það sem meira
er, það er hvatt áfram af alls konar fólki
á hliðarlínunni, en ekki drepið niður.
Niðurstaðan er ótrúleg: Samanlagt
hljóp fólk á laugardaginn, í alls konar
formi, 176.994 kílómetra. Það er ríflega
fjórum sinnum umhverfis jörðina.
Kannski þarf atvinnulífið að
verða meira eins og Reykjavíkur-
maraþon. Þar tekst fólk á við alls
konar mismunandi áskoranir,
vegalengdir, á eigin forsendum,
miðað við eigin getu og áhuga.
Besta Hekluverðið
4.690.000 kr.
VW Passat GTE Tengiltvinnbíll / Sjálfskiptur / Vistvænn
Hér er aðeins sýndur hluti af bílum í boði. Fullt verð er verð hvers bíls með aukabúnaði. Aukabúnaður á myndum gæti verið annar en í auglýstum verðdæmum.
5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
Nýr Volkswagen á Besta Hekluverðinu
Nú er góður tími til að fá sér nýjan Volkswagen hjá Heklu því við vitum aldrei
hvað svona frábært verð býðst lengi. Tryggðu þér Volkswagen á besta
Hekluverðinu og aktu inn í sumarið.
Besta Hekluverðið 6.990.000 kr.
VW Tiguan Allspace Comfortline+ 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur / Fjórhjóladrifinn / Sjö sæta / Dráttarbeisli
Fullt verð: 7.635.000 kr.
645.000 kr.
Afsláttur
Besta Hekluverðið
4.490.000 kr.
VW T-Roc 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur / Fjórhjóladrifinn
Guðmundur
Steingrímsson
Í dag
Kulnun og maraþon
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 2 0 . Á g ú S T 2 0 1 8
2
0
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
A
-B
F
5
0
2
0
9
A
-B
E
1
4
2
0
9
A
-B
C
D
8
2
0
9
A
-B
B
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K