Fréttablaðið - 20.08.2018, Blaðsíða 8
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
KOLEOS
Sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn
og sparneytinn.
Renault Koleos, verð frá: 5.590.000 kr.
Staðalbúnaður í Koleos er m.a.: Virkur neyðarhemlunarbúnaður, Akreinavari, umferðarskiltaskynjun með viðvörun, aðalljós sem beygja um leið og beygt er,
LED stöðuljós með „Follow Me Home“ búnaði, leiðsögukerfi með Íslandskorti, R-Link margmiðlunarkerfi, Apple CarPlay™ og Android Auto™.
Verið velkomin í reynsluakstur.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
3
2
0
R
e
n
a
u
lt
K
o
le
o
s
c
ro
s
s
o
v
e
r
5
x
2
0
á
g
ú
s
t
Bandaríkin Donald Trump Banda-
ríkjaforseti heldur áfram að ráðast
gegn bandarískum fjölmiðlum með
ásökunum um falsfréttir. Forsetinn
birti nokkur tíst á Twitter í gær um
frétt The New York Times um sam-
ráð eins æðsta lögmanns Hvíta húss-
ins við rannsóknarteymi Roberts
Mueller, sérstaks saksóknara sem
rannsakar meint Rússatengsl við
kosningabaráttu Trumps og meint
ólögmæt afskipti Rússa af forseta-
kosningunum 2016.
Kallaði forsetinn fréttina falsfrétt
en staðfesti í sama tísti að samráð
lögmannsins hefði verið í fullu sam-
ráði við sig. Í næsta tísti sagði for-
setinn líf fjölmargra hafa verið eyði-
lögð vegna rannsóknar Muellers. Um
McCarthyisma af verstu sort væri að
ræða og fjölmiðlarnir væru verstir. Í
næsta tísti kallaði hann meinta fals-
fréttamiðla óvini fólksins.
Í frétt The New York Times, sem
vakti þessi viðbrögð hjá forsetanum,
segir frá því að Donald F. McGahn
II, einn af æðstu lögmönnum Hvíta
hússins, hafi veitt rannsóknarteymi
Muellers sem rannsakar meðal ann-
ars meintar ólögmætar aðgerðir
forsetans vegna rannsóknarinnar,
ítarlegar upplýsingar um samskipti
sín við forsetann á lykilstundum í
málinu, meðal annars í tengslum
við brottrekstur James B. Comey,
fyrrverandi yfirmanns alríkislög-
reglunnar og tilraunir hans til að
reka Mueller sjálfan úr starfi sérstaks
saksóknara.
Viðtöl lögmannsins við rannsak-
endur eru sögð hafa varað samtals
í yfir 30 klukkustundir í nokkrum
viðtölum á undanförnum níu mán-
uðum. Í upphafi leit lögmaðurinn
svo á að hann væri að fara eftir þeirri
línu sem lögfræðingateymi forsetans
hafði lagt, það er að segja, að vinna
með rannsakendum, enda hefðu þeir
talið að forsetinn hefði ekkert að fela.
Hins vegar berast misvísandi
fregnir af því hversu sáttur forsetinn
er við umfang samskipta lögmanns-
ins við rannsóknarteymið. Í frétt
The New York Times er forsetinn
sagður hafa upphaflega trúað því
að McGahn myndi eingöngu veita
upplýsingar sem persónulegur lög-
maður forsetans og því ekki gefa
neinar upplýsingar sem skaðað gætu
forsetann.
Sjálfur hefur lögmaðurinn sagt að
skyldur hans gagnvart forsetaemb-
ættinu sjálfu séu æðri en skyldur
hans við sitjandi forseta.
Frá því Mueller tók við rannsókn-
inni í maí síðastliðnum hafa fjórir
Bandaríkjamenn verið ákærðir, allir
með einhver tengsl við kosninga-
baráttu Trumps eða stjórnsýslu hans
í Hvíta húsinu; þrettán rússneskir
borgarar, tólf rússneskir leyniþjón-
ustumenn og fleiri.
Niðurstöðu í fyrsta málinu er að
vænta í dag í máli fyrrverandi kosn-
ingastjóra Trumps, Pauls Manafort,
en beðið er niðurstöðu kviðdóms
um sekt eða sakleysi Manaforts sem
ákærður er fyrir fjársvik og fleiri brot.
Einnig er von á niðurstöðu dóm-
ara um refsingu yfir George Papa-
dopoulos sem játaði fyrstur sam-
starfsmanna forsetans að hafa átt
ólögleg samskipti við Rússa í starfi
sínu sem sérstakur ráðgjafi í kosn-
ingabaráttu Trumps. Robert Mueller
fer fram á að hann verði dæmdur í
allt að sex mánaða fangelsi.
adalheidur@frettabladid.is
Lögmaður í Hvíta húsinu veitir Mueller
upplýsingar um samskiptin við Trump
Donald F. McGahn hefur verið í lögfræðingateymi forsetans í nokkur ár. Hér er
hann á leið á fund í Trump Tower eftir kosningarnar 2016. NorDicpHoTs/GeTTy
Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna, sendi
frá sér fjölmörg tíst um
fréttir af málinu og bæði
staðfesti þær og kallaði
falsfréttir í sama tísti.
Beðið er niðurstöðu
kviðdóms í fyrsta saka-
málinu sem Mueller
höfðaði vegna rann-
sóknarinnar.
Viðtöl McGahns við
rannsakendur er sögð hafa
staðið samtals í meira en
þrjátíu klukkustundir.
2 0 . á g ú s t 2 0 1 8 M á n U d a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
2
0
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
A
-E
1
E
0
2
0
9
A
-E
0
A
4
2
0
9
A
-D
F
6
8
2
0
9
A
-D
E
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K