Fréttablaðið - 20.08.2018, Síða 14
Handbolti Íslenska karlalandsliðið
í handbolta skipað leikmönnum
18 ára og yngri tapaði fyrir Svíþjóð,
32-27, í úrslitaleik á Evrópumótinu
sem fram fór í Króatíu. Eftir sveiflu-
kenndan fyrri hálfleik, þar sem
Svíar hófu leikinn betur og íslenska
liðinu óx svo ásmegin eftir því sem á
leið, var staðan jöfn í hálfleik. Seinni
hálfleikur var jafn framan af, en leik-
menn Svía höfðu þó frumkvæðið
og fóru að lokum með fimm marka
sigur af hólmi.
Heimir Ríkharðsson, þjálfari liðs-
ins, var svekktur þegar Fréttablaðið
ræddi við hann eftir leikinn. Hann
vildi þó heldur einblína á þá fjöl-
mörgu jákvæðu punkta sem hægt
væri að taka úr mótinu öllu en tapið
í úrslitaleiknum. Sem keppnismað-
ur væri hann að sjálfsögðu súr með
tapið, en þegar heildarmyndin væri
skoðuð ættu menn að fara ánægðir
heim.
„Við byrjuðum þennan leik illa,
en sýndum svo karakter að koma
okkur inn í leikinn. Við gerðum
hins vegar of mörk tæknimistök í
upphafi seinni hálfleiks og það var
enginn sem náði að taka af skarið og
leiða aðra endurkomu. Því fór sem
fór, en ég er ofboðslega sáttur við
spilamennsku leikmanna í þessum
leik og frammistöðuna á mótinu
í heild sinni,“ sagði Heimir um
úrslitaleikinn.
„Þegar litið er yfir leiki okkar á
mótinu þá eru margir leikmenn sem
eru að bæta sig heilmikið og liðs-
heildin var algerlega frábær. Varnar-
mennirnir okkar þrír í miðri vörn-
inni voru geggjaðir, Stiven Valencia
stóð sig vel bæði í hlutverkinu sem
við fólum honum í varnarleiknum
og í sóknarleiknum. Viktor Gísli
Hallgrímsson varði á löngum köflum
frábærlega og Haukur Þrastarson
vakti verðskuldaða eftirtekt fyrir
frammistöðu sína. Varnarleikurinn
ÍBV - Keflavík 1-0
1-0 Sigurður Arnar Magnússon (4.).
KA - KR 0-1
0-1 Kennie Knak Chopart (67.)
Grindavík - Stjarnan 2-2
1-0 Aron Jóhannsson (40.), 1-1 Kristian
Jajalo (sjálfsmark) (57.), 2-1 Guðjón Bald-
vinsson (86.), 2-2 William Daniels (90.).
Fylkir - FH 1-1
0-1 Cédric D’Ulivo (32.), 1-1 Valdimar Þór
Ingimundarson (47.).
Efri
Breiðablik 34
Stjarnan 32
Valur 32
KR 27
FH 24
Grindavík 24
Neðri
KA 22
ÍBV 22
Víkingur 18
Fylkir 16
Fjölnir 15
Keflavík 4
Nýjast
Pepsi-deild karla
Selfoss - Haukar 5-0
ÍR - ÍA 0-2
HK - Þór 4-1
Magni - Leiknir R. 0-1
Fram - Njarðvík 0-0
Inkasso-deild karla
Aftureld./Fram - Fjölnir 2-1
Hamrarnir - ÍR 2-3
Inkasso-deild kvenna
Leikmenn og þjálfarar liðsins eiga hrós skilið fyrir frammistöðu sína
„Það hefur verið algjörlega frábært
að fylgjast með þeim og þó svo
að það sé alltaf svekkjandi að tapa
úrslitaleik þá er árangur þeirra stór-
kostlegur. Þeir hafa spilað heilt yfir
mjög góðan varnarleik á mótinu og
einkar vel útfærðan sóknarleik.
Heimir Þór Ríkharðsson og hans
teymi hafa innleitt aga og skyn-
semi í sóknarleikinn og það var
mjög gaman að sjá hvað hann var
taktískt góður og vel upp lagður.
Þeir eru að gera svipaða hluti og
við erum að gera hjá A-landsliðinu
og þjálfararnir eiga hrós skilið fyrir
hversu vel „drillaðir“ leikmenn eru
í sínum hlutverkum bæði í vörn og
sókn.
Markvarslan var líka heilt yfir
mjög góð á mótinu og gaman að
sjá hvað Viktor Gísli Hallgrímsson
er orðinn öflugur. Haukur Þrastar-
son fór svo fyrir liðinu í sóknar-
leiknum og hann er orðinn mjög
þroskaður og góður leikmaður,“
segir Guðmundur Þórður Guð-
mundsson, þjálfari A-lands-
liðsins, um frammistöðu liðsins á
mótinu.
„Það er kærkomið fyrir mig að
sjá hversu langt þessir leikmenn
eru komnir og hversu vel þeir
standa í sínum aldursflokki. Það
má hins vegar ekki gleyma því að
það er langur vegur frá því að gera
góða hluti með U-18 ára liðinu
og að geta gert sig gildandi með
A-liðinu. Þar þurfa menn að fá
30-40 leiki til þess að slípa sinn leik
og hlaupa af sér hornin ef svo má
segja. Þetta gefur hins vegar klár-
lega góð fyrirheit fyrir framtíðina
og sýnir að framtíðin er björt í
íslenskum handbolta.
Nú verða leikmenn eins og Vikt-
or og Haukur sem hafa verið að
spila stórt hlutverk með meistara-
flokksliðum hér heima bara að
vera þolinmóðir. Að mínu mati
ættu þeir að halda sig heima þar
sem þeir eru í góðu umhverfi og
Haukur að spila stórt hlutverki í liði
sem fór alla leið í úrslit síðasta vor.
Mér finnst ekki liggja á að þeir fari
utan að spila,“ segir Guðmundur
um framhaldið hjá leikmönnum
íslenska liðsins.
Þegar litið er yfir
leiki okkar á mót-
inu þá eru margir leikmenn
sem eru að bæta sig heil-
mikið og liðsheildin var
algerlega frábær.
Heimir Ríkharðsson
Svekktur og sáttur á sama tíma
Heimir Ríkharðsson, þjálfari U-18 ára liðs karla í handbolta, sem hlaut silfurverðlaun á Evrópumótinu í gær,
segir að leikmenn liðsins séu margir framarlega í sínum aldursflokki og þeir hafi sýnt það í verki á mótinu.
Handbolti Selfyssingurinn Haukur
Þrastarson var valinn besti leik-
maður Evrópumóts karla 18 ára
yngri í handbolta sem lauk í Króa-
tíu gær. Ísland komst í úrslit, en
laut þar í lægra haldi fyrir Svíþjóð,
32-27. Haukur skoraði fjögur mörk
í úrslitaleiknum, en Eiríkur Guðni
Þórarinsson var markahæstur hjá
íslenska liðinu í leiknum með sjö
mörk.
Akureyringurinn Dagur Gauta-
son var valinn í úrvalslið mótsins,
en KA-maðurinn knái lék afar vel á
mótinu í Króatíu. Það verður gaman
að fylgjast með honum í Olís-deild-
inni á næsta tímabili, en KA-menn
verða nýliðar í deildinni á komandi
keppnistímabili.
Haukur skoraði alls 47 mörk
á mótinu og var markahæstur
hjá íslenska liðinu og þriðji marka-
hæsti maður mótsins. Svíinn Ludvig
Hallbäck varð markakóngur með 56
mörk. – iþs
Haukur valinn
maður mótsins
Haukur Þrastarson lék á als oddi á
Evrópumótinu í Króatíu. MyNd/EHF
Stiven Tobar Valencia brýst hér framhjá varnarmanni sænska liðsins í úrslitaleik liðanna á Evrópumótinu í handbolta sem leikinn var í gær. MyNd/EHF
var frábær á mótinu og sóknarleik-
urinn gekk smurt og ég er ánægður
með það,“ sagði Heimir.
„Mér finnst margt líkt með þessu
liði og því sem varð Evrópumeistari
í þessum aldursflokki undir minni
stjórn árið 2003. Þar voru leikmenn
á borð við Arnór Atlason, Ásgeir Örn
Hallgrímsson og Björgvin Pál Gúst-
avsson sem síðan voru burðarásar í
A-landsliðinu í fjölmörg ár. Nú verða
þessir leikmenn sem við eigum núna
að vera þolinmóðir og leggja hart að
sér. Það eru margir leikmenn hér
sem hafa alla burði til þess að ná
langt, þeir eru hins vegar ungir og
eiga fjölmargt eftir ólært. Þeir eiga
að mínu mati að halda kyrru fyrir
heima næstu misserin og öðlast
meiri reynslu með því að leika í Olís-
deildinni,“ sagði Heimir um fram-
haldið hjá lærisveinum sínum.
2 0 . á g ú s t 2 0 1 8 M á n U d a g U R14 s p o R t ∙ F R É t t a b l a ð i ð
sport
2
0
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
A
-C
9
3
0
2
0
9
A
-C
7
F
4
2
0
9
A
-C
6
B
8
2
0
9
A
-C
5
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K