Fréttablaðið - 03.09.2018, Blaðsíða 2
Veður
Hæg breytileg átt, stöku skúrir um
vestanvert landið en léttskýjað
austan til. Suðaustan kaldi eða
strekkingur og dálítil rigning sunnan-
og vestanlands um kvöldið.
sjá síðu 22
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
mánudaginn 3. september, kl. 18
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Li
st
m
un
au
pp
bo
ð
nr
.
1
1
1
Forsýning á verkunum mánudag kl. 10–17
NOREGuR Norska ríkisútvarpið
(NRK) heldur áfram að feta nýjar
slóðir í hinu svokallaða hægvarpi.
Á fimmtudaginn kemur verður
NRK með sjö klukkustunda beina
útsendingu frá fjallgöngu á hæsta
fjall Noregs, Galdhöpiggen, sem er
2.469 metra hátt.
„Margir hafa farið upp á fjallið,
og enn fleiri vilja einhvern tíma
gera það,“ segir Arne Nordrum,
verkefnastjóri hjá NRK. „Núna geta
allir tekið þátt í göngu á fjallið, sama
hvar viðkomandi er staddur í heim-
inum.“ – khn
Fjallganga í
hægvarpi
FANGELsIsMáL „Ég var að hugsa
um að fara beina leið niður í Fang-
elsismálastofnun og krefjast þess
að vera látinn laus eins og skot,“
segir Guðmundur Ingi Þóroddsson
og hlær. Það kom Guðmundi, sem
hlotið hefur þunga fangelsisdóma í
gegnum tíðina, vægast sagt á óvart
þegar hann sótti sakavottorð sitt
á dögunum að komast að því, sér
til mikillar ánægju, að hann var af
einhverjum ástæðum með hreina
sakaskrá.
Guðmundur hefur búið á áfanga-
heimilinu Vernd frá því í apríl eftir
að hafa verið í fangelsi meira og
minna í tæp 20 ár en hann hefur
fengið 3 þunga fangelsisdóma frá
aldamótum vegna brota á fíkniefna-
löggjöfinni. Hann á eftir að vera 11
mánuði á Vernd og mun í kjölfarið
ljúka sinni afplánun í rafrænu eftir-
liti.
Guðmundi brá því í brún þegar
hann sótti sakavottorð á dögunum
en í vottorðinu er ekki eitt einasta
brot skráð, heldur stendur þar:
„Ekkert brot.“ Guðmundur vakti
athygli á þessu á Facebook í gær-
kvöldi og var að vonum ánægður
með sína skjalfestu, hreinu fortíð.
Samkvæmt reglum ríkissaksókn-
ara um sakaskrár á að skrá dóma
fyrir brot gegn almennum hegn-
ingarlögum og lögum um ávana- og
fíkniefni. Fangelsisdóma skal ekki
tilgreina ef liðin eru meira en fimm
ár frá dómsuppkvaðningu eða frá
þeim tíma sem dómþoli var látinn
laus. Því ætti Guðmundur ekki að fá
hreint sakavottorð fyrr en eftir 6 ár
hið minnsta.
Sá dómur sem Guðmundur situr
Með hreint sakavottorð
þrátt fyrir þunga dóma
„Þetta eintak fer upp á vegg,“ segir Guðmundur Ingi Þóroddsson sem gladdist
mjög þegar sakavottorð hans reyndist hreint. Guðmundur Ingi hefur verið í
fangelsi meira og minna í tæp tuttugu ár og er nú á áfangaheimilinu Vernd.
Hið hreina sakavottorð Guðmundar
reyndist nokkuð óvæntur glaðn-
ingur. Fréttablaðið/Heiða
Flottasta flúrið valið
Húðflúrsýningin Icelandic Tattoo Expo náði hápunkti sínum í gærkvöld þegar glæsilegustu húðflúrin voru valin. Síðustu daga hafa 90 húðflúrarar
att kappi í Laugardalshöll um hylli dómnefndarinnar. Á myndinni sést dómnefnd virða fyrir sér eitt slíkt húðflúr. Fréttablaðið/siGtryGGur ari
Útsýnið af toppi Galdhöpiggen í
Noregi. NordicpHotos/Getty
LÖGREGLuMáL Interpol hefur gefið
út handtökuskipun, að beiðni
íslenskra yfirvalda, á hendur Hemn
Rasul Hamd. Samkvæmt auglýsingu
Interpol er Hamd 33 ára gamall
og fæddur í Írak. Hann talar bæði
sænsku og kúrdísku. Hamd er 1,77
metrar á hæð og 78 kg, með svart
hár og brún augu.
Íslensk yfirvöld
lýsa eftir Hamd
í tengslum við
n a u ð g u n a r -
mál, en hann
fór af landi
brott áður
en tókst að
birta honum
ákæru. – khn
Lýsa eftir Hemn
Rasul Hamd
Hamd
Hemn
rasul.
Guðmundur
ingi Þóroddsson.
inni fyrir nú var kveðinn upp í
Danmörku. Samkvæmt reglum
ríkissaksóknara um sakaskrá ber
að skrá upplýsingar um dóma sem
fallið hafa erlendis yfir íslenskum
ríkisborgurum eða dóma sem fulln-
ustaðir hér á landi.
Aðspurður telur Guðmundur að
það hljóti einhver mistök að hafa
verið gerð. „Það breytir því ekki,
þetta eintak fer upp á vegg,“ segir
Guðmundur.
adalheidur@frettabladid.is
sVíÞjÓð Ekki er enn vitað hvað
manninum gekk til sem grunaður
er um að hafa myrt eiginkonu sína
og tvö börn í Gautaborg aðfaranótt
sunnudags. Maðurinn, sem er 38 ára
gamall, tilkynnti morðin sjálfur til
lögreglu og var handtekinn þegar
lögregla kom á vettvang.
Lögregluyfirvöld í Gautaborg hafa
lítið gefið upp um málið, annað en
það að maðurinn er í haldi, hann
hafi játað og að hann vilji ekki ræða
við lögreglu fyrr en hann hefur rætt
við lögfræðing. Talið er að maður-
inn hafi verið einn að verki.
Málið hefur vakið óhug í Gauta-
borg. Aftonbladet greinir frá því að
börnin tvö hafi verið á leikskóla-
aldri. – khn
Harmleikur
í Gautaborg
3 . s E p t E M b E R 2 0 1 8 M á N u D A G u R2 F R é t t I R ∙ F R é t t A b L A ð I ð
0
3
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
B
8
-2
4
1
0
2
0
B
8
-2
2
D
4
2
0
B
8
-2
1
9
8
2
0
B
8
-2
0
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K