Fréttablaðið - 03.09.2018, Page 38
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 4. umferðar 2018-19
Leicester - Liverpool 1-2
0-1 Sadio Mané (10.), 0-2 Roberto Firmino
(45.), 1-2 Rachid Ghezzal (63.).
Brighton - Fulham 2-2
0-1 André Schürrle (43.), 0-2 Aleksandar
Mitrovic (62.), 1-2 Glenn Murray (67.), 2-2
Murray, víti (84.).
Chelsea - Bournemouth 2-0
1-0 Pedro (72.), 2-0 Eden Hazard (85.).
C. Palace - Southampton 0-2
0-1 Danny Ings (47.), 0-2 Pierre-Emile Høj-
bjerg (90+2.).
Everton - Huddersfield 1-1
0-1 Philip Billing (34.), 1-1 Dominic Calvert-
Lewin (36.).
West Ham - Wolves 0-1
0-1 Adama Traoré (90+3.).
Man. City - Newcastle 2-1
1-0 Raheem Sterling (8.), 1-1 DeAndre Yedlin
(30.), 2-1 Kyle Walker (52.).
Cardiff - Arsenal 2-3
0-1 Shkodran Mustafi (11.), 1-1 Víctor Cam-
arasa (45+2.), 1-2 Pierre-Emerick Aubameyang
(62.), 2-2 Danny Ward (70.), 2-3 Alexandre
Lacazette (81.).
Burnley - Man. Utd. 0-2
0-1 Romelu Lukaku (27.), 0-2 Lukaku (44.).
Rautt spjald: Marcus Rashford, Man. Utd.
(71.).
Watford - Tottenham 2-1
0-1 Abdoulaye Doucouré, sjálfsmark (53.), 1-1
Troy Deeney (69.), 2-1 Craig Cathcart (76.).
FÉLAG L U J T MÖRK S
Liverpool 4 4 0 0 9-1 12
Chelsea 4 4 0 0 10-3 12
Watford 4 4 0 0 9-3 12
Man. City 4 3 1 0 11-3 10
Tottenham 4 3 0 1 9-4 9
B’mouth 4 2 1 1 6-5 7
Everton 4 1 3 0 7-6 6
Leicester 4 2 0 2 6-5 6
Arsenal 4 2 0 2 8-8 6
Man. Utd. 4 2 0 2 6-7 6
Wolves 4 1 2 1 4-5 5
S’oton 4 1 1 2 4-4 4
Fulham 4 1 1 2 7-9 4
Brighton 4 1 1 2 5-7 4
C. Palace 4 1 0 3 3-6 3
Cardiff 4 0 2 2 2-5 2
Huddersf. 4 0 2 2 2-10 2
Newcastle 4 0 1 3 3-6 1
Burnley 4 0 1 3 3-9 1
West Ham 4 0 0 4 2-10 0
Þurfa að fara fjallabaksleiðina til Frakklands
Eftir 0-2 tap fyrir Þýskalandi á Laugardalsvelli er möguleiki kvennalandsliðsins á að vinna sinn riðil í undankeppni HM, og komast þar með beint í lokakeppnina, úr
sögunni. Íslendingar þurfa að fara erfiðari leiðina á HM. Stelpurnar mæta Tékkum á morgun og mega ekki tapa ætli þær sér að komast í umspil um síðasta lausa HM-sætið.
fótbolti Íslenska kvennalandsliðið
gat tryggt sér sæti í lokakeppni HM í
fyrsta sinn með sigri á Þýskalandi á
Laugardalsvellinum á laugardaginn.
Það gekk ekki eftir, Þjóðverjar unnu
0-2 sigur og fara beint á HM í Frakk-
landi á næsta ári nema þeir vinni
ekki Færeyinga á morgun.
Ísland vann fyrri leikinn gegn
Þýskalandi í Wiesbaden, 2-3. En að
vinna Þjóðverja tvisvar í sömu und-
ankeppni er eins og vinna tvisvar í
lottóinu í sama mánuði. Verkefnið
var ærið þrátt fyrir góðan stuðning
rúmlega 9.600 manns sem lögðu
leið sína á Laugardalsvöllinn og
slógu metið yfir fjölda áhorfenda á
kvennalandsleik á Íslandi.
Þjóðverjar lágu betur við höggi
í fyrri leiknum á síðasta ári en þeir
gerðu á laugardaginn. Þá voru þeir
sterkari aðilinn og spiluðu miklu
betur en í fyrri leiknum. Einbeit-
ingin var meiri, spilið gekk betur og
þýska liðið nálgaðist verkefnið allt
öðruvísi.
„Þetta var virkilega flott frammi-
staða, við lentum í örlitlum vand-
ræðum á fyrstu mínútum leiksins
en eftir það þá fannst mér við stýra
leiknum,“ sagði Horst Hrubesch,
þjálfari Þýskalands, við Fréttablaðið
eftir leikinn. „Við héldum áfram og
náðum inn öðru marki en ég verð að
hrósa íslenska liðinu sem gafst ekki
upp og hélt áfram að berjast allt þar
leikurinn var flautaður af.“
Dagnýjar saknað
Íslenska liðið byrjaði leikinn ágæt-
lega, náði nokkrum fínum pressu-
köflum og þjarmaði að gestunum
með löngum innköstum Sifjar
Atladóttur. En færin komu ekki og
sóknarleikurinn var bitlaus. Dag-
nýjar Brynjarsdóttur var sárt sakn-
að en hún skoraði tvö mörk í fyrri
leiknum. Elín Metta Jensen, sem
var einnig á skotskónum í leiknum í
Wiesbaden, sat allan tímann á vara-
mannabekknum á laugardaginn.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
fékk sitt fyrsta tækifæri í byrjunar-
liðinu í undankeppninni. Hún var
í erfiðu hlutverki og mjög einmana
í fremstu víglínu. Svava Rós Guð-
mundsdóttir, sem hefur skorað
grimmt í norsku úrvalsdeildinni á
tímabilinu, kom inn á fyrir Berglindi
eftir rúman klukkutíma en fékk eins
og hún úr litlu að moða.
Smám saman náði þýska liðið
betri tökum á leiknum og þrýsti
því íslenska aftar á völlinn. Fyrsta
hættan skapaðist á 12. mínútu þegar
Sara Däbritz átti skot í slá íslenska
marksins. Tveimur mínútum síðar
átti Hallbera Gísladóttir skot fram-
hjá eftir langt innkast Sifjar. Eftir
tæpan hálftíma átti Selma Sól Magn-
úsdóttir svo fínt skot sem Almuth
Schult varði. Hún átti annars frekar
náðugan dag í þýska markinu.
Sif stóð upp úr
Þótt gestirnir væru meira með bolt-
ann komu Íslendingar í veg fyrir að
þeir sköpuðu sér hættuleg færi. Sif
bar af í íslenska liðinu í leiknum á
laugardaginn og bjargaði margoft
þar sem leikskilningur hennar skein
í gegn. Glódís Perla Viggósdóttir átti
einnig ágætan leik í íslensku vörn-
inni.
Pressa Þjóðverja bar árangur á 42.
mínútu þegar Svenja Huth skoraði
með skoti af stuttu færi eftir að Guð-
björg Gunnarsdóttir varði skot Mel-
anie Leupolz en hélt ekki boltanum.
Eftir markið átti Sara Björk
Gunnarsdóttir skot beint á Schult
eftir langt innkast Sifjar. Þjóðverjar
brunuðu í sókn og Alexandra Popp,
samherji Söru hjá Wolfsburg, skall-
aði rétt framhjá íslenska markinu úr
dauðafæri.
Sterkir Þjóðverjar
Þjóðverjar byrjuðu seinni hálf-
leikinn af krafti og annað markið
lá í loftinu. Sara Däbritz skoraði á
50. mínútu en markið var dæmt af
vegna brots á Guðbjörgu. Íslenska
liðið þraukaði og var nálægt því að
jafna metin á 57. mínútu. Fanndís
Friðriksdóttir átti þá góðan sprett
og skot í varnarmann. Hún fékk
boltann aftur og átti skot rétt fram-
hjá. Þetta reyndist síðasta tækifæri
Íslands í leiknum.
Á 74. mínútu skoraði Huth sitt
annað mark og annað mark Þýska-
lands eftir laglega sókn og sendingu
frá Carolin Simon. Fátt markvert
gerðist eftir markið og Þjóðverjar
lönduðu sanngjörnum sigri.
Sýndu styrk sinn
„Mér fannst leikskipulagið bara
halda vel lungann úr leiknum og
þær voru ekki að skapa mörg færi,“
sagði Guðbjörg við Fréttablaðið.
„Þær voru hins vegar klárlega
sterkari aðilinn og sigur þeirra var
sanngjarn. Leikmenn þýska liðsins
sýndu það hvers þær eru megnugar
og við náðum ekki að herja nógu
mikið á þær. Það má hins vegar ekki
gleyma því að við erum að mæta
heims klassa liði og ekkert óeðlilegt
að leikurinn skyldi þróast svona.“
Mega ekki tapa á morgun
Ef Ísland vinnur Tékkland á morgun
eru yfirgnæfandi líkur á því að liðið
komist í umspil um sæti á HM. Til
Markvörðurinn Almuth Schult hirðir boltann af kollinum á Guðrúnu Arnardóttur í leik Íslands og Þýskalands í undankeppni HM á laugardaginn. Þjóðverjar unnu leikinn 0-2 og eru á leiðinni á HM á næsta ári. FRÉTTABLAðið/SiGTRyGGUR ARi
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum í Englandi
Everton
Gylfi Þór Sigurðsson
Var í byrjunarliði Everton
og lék fyrstu 76 mínút-
urnar í 1-1 jafntefli við Hudders-
field á Goodison Park.
Cardiff City
Aron Einar Gunnarsson
Lék ekki í 2-3 tapi fyrir
Arsenal vegna meiðsla.
Hefur ekkert spilað á tímabilinu.
Reading
Jón Daði Böðvarsson
Var ekki í leikmannahópi
Reading í tapi fyrir Shef-
field Wednesday vegna veikinda.
Aston Villa
Birkir Bjarnason
Kom ekkert við sögu
þegar Aston Villa tapaði
4-1 fyrir Sheffield United.
Burnley
Jóhann Berg Guðm.
Glímir við meiðsli og var
ekki með Burnley sem
tapaði 0-2 fyrir Man-
chester United á heimavelli.
Undankeppni HM 2019
Ísland 0-2 Þýskaland
(0-1)
0-1 Svenja Huth (42.), 0-2 Huth
(74.).
Byrjunarlið Íslands (3-4-3): Guð-
björg Gunnarsdóttir; Glódís Perla
Viggósdóttir, Sif Atladóttir, Ingibjörg
Sigurðardóttir; Rakel Hönnudóttir
(84. Guðrún Arnardóttir), Gunnhildur
Yrsa Jónsdóttir, Sara Björk Gunnars-
dóttir, Hallbera Gísladóttir; Selma Sól
Magnúsdóttir (74. Agla María Alberts-
dóttir), Berglind Björg Þorvaldsdóttir
(63. Svava Rós Guðmundsdóttir),
Fanndís Friðriksdóttir.
9.636
manns mættu á leikinn gegn
Þýskalandi. Aldrei hafa fleiri
sótt leik íslenska kvenna-
landsliðsins á heimavelli.
3 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 m Á N U D A G U r18 s p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
0
3
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
B
8
-2
4
1
0
2
0
B
8
-2
2
D
4
2
0
B
8
-2
1
9
8
2
0
B
8
-2
0
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K