Verslunartíðindi - 01.12.1923, Blaðsíða 11

Verslunartíðindi - 01.12.1923, Blaðsíða 11
VERSLUNARTlÐINDI 139 En auk rcargskonar iðnaðar og skóg- ræktar, sem hvortveggja, þrátt fyrir mörg og mikil vandkvæði, þó er í miklum upp- gangi, þá er líka geysi mikil kornrækt í landinu og víða töluverð kvikfjárrækt. öll framleiðsla í Póllandi hefur aukist stórkostlega árið 1922, samanborið við fyrri ár. Og til þess að gefa nokkurra hugmynd um framtíðarmöguleika þessa lands, skulu hjer tilfærð nokkur dæmi um framleiðslu helstu vörutegunda árið 1922, alt tilfært I smálestum: Hveiti 115^540, rúgur 5013330, bygg 1296750, hafrar 2505620, jarðepli 33219000, steinolía 590100, kol 22286000, sement 24580, viður allskonar (fyrra helming árs ins) 1535300, sykur 267800, salt 400000, pappírsvörur 42000. Vefnaðariðnaður er þar líka mjög mikill og á hraðri framför. Nam hann fyrstu 2 ársfjórðunga 1922 um 9 miljarða P. M., en alt árið 1921 2 miljarða. Skófatnaðar- og glervörugerð er líka mjög mikil. Saltlög eru geysi mikil og áætlað milli 6—7 miljarða smálesta. Sá jeg sýnishorn og fjekk með af salti úr einni námunui. Er það ljómandi fallegt og jafnast fullkomlega á við Miðjarðar- hafssalt. Framangreindar tölur hefur dansk-ísl. sendiherrann i Warszawa góðfúslega látið mjer í tje. En því miður var ekki hægt að fá vitneskju um hve mikið væri inn- flutt af þeim vörutegundum, sem ísland framleiðir. Verksmiðjur þær í Póllandi, sem hafa ullariðnað með höndum, eru taldar með hinum stærstu og fullkomnustu í Evrópu. Eru þær aðallega í Lodz, Bialostok, Sosno- vice og Czestochova. — Sjerstaklega eru margar þeirra taldar best útbúnar af öll- um verksmiðjum í Evrópu til að vinna íslenska ull, sem er grófari og háralengri en flestar aðrar ullartegundir. Enda fer mikið af ísl. ull þangað ýmsar krókaleiðir, — og flestir sem eg talaði við þektu hana. Þeir forstöðumenn ullarverksmiðjanna, sem jeg átti tal við, en það var aðallega í Lodz, sögðu allir að vandalítið myndi að koma fyrir þar allri ullarfrainleiðslu íslands, enda þótt það væru tiltölulega fáar verksmiðjur, sem væru útbúnar til að vinna úr henni. Eitt firma í Warszawa, sem selt hafði um nokkur ár töluvert af ísl. ull fyrir danskt ísl. firma, sagði að það versta með ísl. ullina væri það á hve óhentugum tíma hún kæmi. Hún væri notuð aðallega í grófari dúka til vetrarins, hermannabúninga, teppi o. fl. A þeirri vinnu byrjuðu verksmiðjurnar í apríl, og hentugasti sölutíminn væri því á tímabil- inu frá apríl — júní. Af þessu leiddi, sjerstaklega á meðan peningakreppan væri eins mikil og nú væri raun á, að varla væri mögulegt að selja með viðunanlegu verði, nema gefinn væri gjaldfrestur, minsta kosti 2—3 mán. Og þetta höfðu umbjóð- endur þeirra gjört og flestir aðrir, sem ull seldu þangað, og fengju með því móti tölu- vert hærra verð en ella væri hægt að fá. Og ef átt væri við áreiðanleg firmu, sem gæfu bankatryggingu fyrir greiðslunni, þá taldi hann þetta enga frágangssök. Þetta firma sagði að hægt myndi nu (4. sept.) að selja ísl. ull fyrir 70 amk. cent kílóið þangað komna. í byrjun sept. hafði verið selt töluvert af ísl. ull frá Bretlandi til Póllands með 3. mán. gjaldfresti. Síld: Pólverjar kaupa mjög mikið af síld, og kemur hún mest öll um Danzig, eins og flestar aðrar vörur, sem flytja þarf um höfin, En ekki var unt að fá neina skýrslu um það hve mikið væri innflutt af síld. Einn síldarkaupmaðurinn sagði mjer, að aðallega væri innflutt norsk og bresk síld. Breska sildin líkaði ágætlega,

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.