Verslunartíðindi - 01.12.1923, Page 12

Verslunartíðindi - 01.12.1923, Page 12
140 VERSLUNAKTÍÐINDI hæfilega stór og allur frágangur ágætur. Það rayndi því verða örðugt, án mikillar fyrirhafnar og kostnaðar að selja nokkuð, sem þýddi af ísl síld, sem þætti of stór, enda þótt hún að öðru leyti líkaði vel. Hann sagði líka að fyrstu árin eftir strið- ið, hefði mest af síldarsölunni verið í hönd- um stjórnarinnar. Norska stjórnin hefði bæði selt þangað og til Rússlands marga farma, með löngum galdfresti. Þessa síld hefði svo pólska stjórnin aftur selt með miklurn affölium, og af þessum ástæðum hefði varla verið gerlegt að fást nokkuð við síldarverslun fyrir kaupmenn. öll að- staða fyrir kaupmenn væri því mikið örð- ugri en áður, þó þetta vitanlega breyttist nú smátt og smátt til batnaðar. Aðrir sögðu aftur á móti að selja myndi mega töluvert af ísl. síld til Póllands og að inn- fluttingur samtals myndi nema um 2 til 3000 tunnur. Af iðnaðarlýsi selst nokkuð, en það er mest í smáslöttum. Eitt firma, sem jeg talaði við (sútunargerð) sagðist kaupa 50 til 60 smálestir yfir árið, og hefði borgað í júní £ 333 fyrir 10 smálestir cif. Danzig, eða sem svarar 0.84 d. kiló. Lýsið er mest notað við sútun, því til sápugerðar sögðust þeir þarna, sem víðar í þessum löndum, ekki lengur nota lýsi. Og þess vegna vilja menn helst fá smáslatta í einu. Um sölu á gœrum var erfitt að fá nokkr- ar upplýsingar til að byggja á. Flestir sögðust ekki þekkja þær og þurfa að fá sýnishorn. En væru þær nothæfar, sjer- staklega hvað stærðina snerti, myndi vera hægt að selja mikið af þeim. Eitt firma hafði selt smá sendingu frá fyrra ári af ísl. gærum og bjóst við að verðið myndi vera nú sem svaraði 1.60 til 70 danska pr. kg. þangað kornið. Innflutningstollur er enginn á þeim vör- um, sem Island framleiðir. PólsJca gengið hefur verið mjög reikult .Íííxf ‘i/ Málaflutningsskrifstofa aðstoðar við kaup og sölu, annast inn- & I i/ i/ [x i/ IX £ \/ heimtu á víxlum, skuldabrjefum og öðrum kröfum, semur arfleiðsluskrár kaupmála o. fl. Gunnar E. Benediktsson cand. juris of,r . p. Skrifstofan, Lækjartorgi 2. Heima, Bergstaðastræti 19. 1033. 853. V|V V |Sí' VÍV VfV Vfx' ViVViV VJx' VfWfV ’-'fV VJV VJST VÍV55 og lækkað töluvert upp á síðkastið með hruni þýska marksins. I sept. fjekst fyr- ir 1 £ sterl. 1 milj. 25 þús. pólsk mörk, en það svarar til 41 þús. p. m. fyrir 1 krónu danska. Þó viðskiftahorfur við Pólland sem stend- ur sjeu erfiðar, þá eru framtíðarskilyrði landsins svo mikil, að það er áreiðanlega þess vert, að vjer veitum því athygli sem fram fer og fylgjum með verslunarástand- inu og búum oss smátt og smátt undir einhver framtíðarviðskifti, sem jeg býst við að gætu orðið oss auðvænleg, bæði með útfluttar og innfluttar vörum. Niðurl. Útlönd Danmörk. Útdráttur úr frjettaskeytum frá sendi- herra Dana: I fólksþinginu lagði Cold utanríkisráð- herra fram verslunarsamning á milli Dan- merkur og Finnlands og nær hann til verslunar, iðnaðar, landbúnaðar, siglinga og borgaralegra rjettinda þeirra þegna annars rikisins, sem kreka atvinnu í hinu. Mánaðeryfirlit þjóðbankans danska frá 30. nóv. sýnir, að liðarinn »útlendir korre- spondenter® hefur hækkað úr 16,1 upp í

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.