Verslunartíðindi - 01.04.1924, Qupperneq 6

Verslunartíðindi - 01.04.1924, Qupperneq 6
40 VERSLIJNARTÍÐINDI minna, þá þarf samþykki 5/o i báðar áttir. Þetta kann ef til vill að þykja nokkuð strangt farið í sakirnar eins og högum manna er ná komið, enda mun algengt að samið sje um greiðslu lægri upphæða en 20 °/0 gegn fullnaðarkvittun. Höfuðgallinn á gjaldþrotalöggjöf okkar er sá að hjer vantar ákvæði um skyldu manna til að >gefa sig upp« eða leita samninga við skuldheimtumenn, er þeir eiga ekki eignir fyrir ákveðnum hluta af skuldum þeim, sem á þeim hvíla. En þrátt fyrir þetta ættu lög þau, sem nú hafa verið samþykt að ýta undir menn að koma fjármálamálefnum sínum í hæfl- legt horf. Það, hve mjög menn hafa látið reka á reiðanum með innheimtu skulda hefur gert ílt verra, og betra er fyrir þá, sem eiga til skuldar að teija að hreinsa til og af- skrifa það, sem tapað, er heldur en að telja sjálfum sjer og öðrum trú um að þeir eigi svo og svo mikið, sem hvergi er til nema á pappírnum. Og þótt íslenskir kaupsýslumenn ef til vill hafi yfirlit yfir það, hvers virði úti- standandi kröfur þeirra eru og afskrifi þær er þær eru einkis virði, án þess að hlutaðeigandi skuldari hafi samið við skuld- heirntumenn sína, er önnur hlið á máli þessu, og hún snýr að útlandinu. Útlendingar, sem eiga skuldir á hendur hjerlendum mönnum, sem ekki eru greiðslu- færir, afskrifa venjulega ekki skuldir sín- ar sem tapaðar fyr en bert er orðið með gjaldþroti að ekkert fæ3t upp í þær. Á meðan svo er ekki eru skuldir þessar tald- ar skuldir landsmanna og því meira sem þessum skuldalið nemur þvi meiri eru skuldir íslendinga taldar í útlandinu, þótt þessi hluti þeirra sje útlandinu einkis virði. Og þetta hefur áhrif í þá átt að halda gengi íslensku krónunnar niðri. Þessa menn þarf að neyða til að leita nauðasamninga eða gera þá gjaldþrota. Það getur verið hart að gengið gagnvart þeim persónulega og lítil von til að skuld- heimtumenn auk þess að tapa kröfu sinni leggi í aukinn kostnað við að gera þá gjaldþrotaskifta. — En þetta verður að gerast. — Of lengi er búið að láta alt reka á reiðanum þó nú sje farið að hreinsa til, komast til botns á fjármálasviðinu, og sjá framan í þann beiska sannleik, sem víðast hvar á sjer stað sakir afleiðinga ófriðarins að statusinn er víðast hvar pappírs-status. Og þessi hreinsun, sem hjer er nefnd er einn liður í henni og það nauðsynlegur liður bæði fyrir mennina sjálfa og skuldheimtumenn þeirra, því næst fyrir gengi islenskra peninga en síðast en ekki síst fyrir lánstraust íslenskra kaupsýslumanna í útlöndum. T T , Gengisskráning Og Gjaldeynsnefnd. Tvö frumvörp komu fram á þinginu núna, sem hvorutveggja áttu að miða að því að bæta gengi íslensku krónunnar. Var annað þeirra um gengisskráningu, en hitt um gjaldeyrisnefnd. Fjárlaganefnd Nd. sendi verslunarráðinu þessi frumvörp til umsagnar. Og þó eigi þurfi að gera ráð fyrir að þessi frumvörp nái fram að ganga, þá birta þó Verslunartíðindi þá umsögn Verslunarráðsins er Alþingi var send, vegna þess að hjer er um þýðingarmikið mál að ræða, sem á sjer sennilega langan aldur og mikið mun verða rætt og ritað um, áður því verður kipt í lag. »Verslunarráðið er þvi samdóma að lág- gengi íslenskrar krónu sje þjóðinni til

x

Verslunartíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.