Verslunartíðindi - 01.04.1924, Qupperneq 17
VERSLUNARTÍÐINDI
51
Smjörverð í Kaupmannahöfn.
7/t kr. 529,00 pr. 100 kg.
7/3 — 547,00 - - —
Firmatilkynningar.
H-f- Verslunarfjelag BorgarfjarSar reknr versl-
un 1 Borgarnesl. Samþyktlr eru dagsettar 11.
mars 1924. Stofnendur eru: Magnús Th. S. Blön-
dahl kaupmaður í Reykjavík, Ludvig Kaaber
bankastjóri s. st., Björn Þorsteinsson bóndi í Bæ,
Jósef Björnsson bóndi á Svarfhóli, Lárus Fjeld-
ated hæstarjettarmálaflutnlngsmaður í Reykjavík.
í stjórn eru: Magnús Th. S. Blöndahl, formaður,
■Tósef Björnsson og Lárus Fjeldsted, og rita og
skuldbinda 2 þeirra fjelagið. Framkvæmdarstjóri
er Jón Björnsson kaupmaður frá Bæ og hefir
hann prókúru fyrir fjelagið. Hlutafje er 20000
kr- skift í 20 hluti, hvern á 1000 kr- og er það
að fullu greitt. Hlutabrjefin hijóða á nafn, og
Ty'gja þeitn engin sjerrjettindi, lausnarskylda nje
hömlur. Hluthafar hafa 1 atkvæði á fundum fyr-
>r hverjar 1000 kr., þó má enginn fara með meira
en Vs hluta atkvæða á fundum. Fundi skal boða
• ábyrgðarbrjefi eða símskevti með 14 daga fyr-
■rvara, ef um aðaifund er að ræða, annars með
viku fyrirvara.
H/F. »ísfjelag Gerða«. Heimiii í Gerðum,
Gerðahreppi. — Útbú ekkert. — Til gangur fje-
iagsins er efling fiskiveiða. — Samþyktir fje-
iagsins dags. 23. desbr. 1923. — Stofnendur:
Jón Óiafsson, framkvæmdarstjóri, Jón Siguðsson,
framkvæmdarstjórl, Magnús Magnússon, fram-
kvæmdarstjóri, Bjarni Pjetursson, blikksmiður,
Þorgeir Pálsson, framkvæmdarstjóri, Þorsteinn
^Tslason, útvegsbóndi, allir til heimllis í Reykja-
vík, Eirfkur Þorsteinsson, kaupmaður GerCum,
Guðmundur Þórðarson, kaupmaður Gerðum, Jón
Á. Gísiason, formaður Gerðum, Þorbergur Guð-
mundsson, formaður Gerðum, Þorvaldur Þorvalds-
son, formaður Kothúsum; Þorgeir Magnúss on
formaður, Lambastöðum í Garði, Halldór Þor-
steinsson, útvegsbóndi i Vörum, Sveinbjöin Ein-
arsson, formaður Endagerði á Miðnesi. — Stjórn-
endur og framkvæmdarstjóri: Eiríkur Þorsteins-
son, formaður og framkvæmdarstjóri, Guðmund-
ur Þórðarson, Gerðum, Þorsteinn Gíslason, Fram-
nesvegi 1 C, Reykjavík, Þorbergur Guðmunds-
son, Gerðum, Jón Á. Gíslason, Gerðum. — Upp-
hæð hlutafjár og greining f hluti: 7400 krónur
skift í 74 hluti, hver á 100 kr., ait greitt. —
Hlutabrjef hljóða á nafn. — Framkvæmdarstjóri
ritar einn firmað.
Hjermeð tilkynnist, að við undirritaðir höfum
gert með okkur fjelag, er ber heltið »Fiskveiða-
fjelagið Reginn(( og gert með okkur fjelagssamn-
ing, er við höfum samþykt og undirskrifað, dags.
hinn 15. febr. 1924. Heimilisfang fjelagsins er
á Akureyri. Tilgangur þess er að reka útgerð
til fiskveiða.
Stofnfje fjelagsins er kr. 18000,00 — átján
þúsund — og að öllu fuligreittt. (Krónur 3000,00
— þrjú þúsund — frá hverjum okkar).
Skuidir fjelagsins ábyrgjumst við í hlutfalli
við inneign okkar
Stjórn fjelagsins skipa: Formaður Friðrlk
Hjaitalín og meðstjórnendur Aðalsteinn Jónsson
og Kristján Mikaelsson.
Firmað ritum við allir sex í sameiningu.
Framkvæmdastjóri fjelagsins er Steindór Hjalta-
lín og hefir hann prókúru-umboð.