Verslunartíðindi - 01.04.1924, Page 7

Verslunartíðindi - 01.04.1924, Page 7
VERSLUNARTÍÐINDI 41 rnikils tjóns, vegna erlendra skulda og dýrtíðar innanlands, og það viðurkennir íulla þörf á því að alt sje gert — bæði af hendi löggjafarvalds og einstaklinga — til þess að sporna við því að gengi krón- unnar lækki úr því sem komið er, en það getur hinsvegar ekki fallist á, að því takmarki verði náð á þeirri braut, sem frumvörpin vísa á. Þótt talað sje um gengi krónunnar er líklega sönnu nær og skiljanlegra að tala um gengi þjóðarinnar, og segja að henni hafl hrakað í efnalegu tilliti á seinni ár- um. Hún hefir. tekið miljóna lán árlega til óarðberandi fyrirtækja, og til fyrirtækja sem bakað hafa henni stórtjón, jafnframt því sem hún hefur með »þjóðnýtingar«- viðleitni sinni, veikt framleiðslu og fram- tak, getu og gjaldþol sinna eigin þegna. Hún er því komin í skuld við erlendar þjóðir, sem hún á óhægt með að standa straum af og greiða á gjalddaga. Þar af leiðandi hefur hún tapað trausti sem er hyrningarsteinn undir efnalegri afkomu einstaklinga og þjóða. Þegar svo er komið og þjóðin hefur fundið sönnunina um það í vasanum (með verðfalli myntarinnar) má sannarlega vænta þess að hún haldi ekki lengur áfram ú ógæfubrautinni, en sýni heldur viðleitni til þess að breyta um búskaparlag, og ueyta sem best og rjettlátast þeírra krafta sem í henni búa. — Þá er fyrst von um að hún ávinni sjer álit og traust lánar- úrotna sinna og gengi hennar vaxi. Erumvarpið um gengisskráninguna mið- ur að því, að skipuð verði 3ja manna úefnd, er meti og ákveði gildi íslensku krónunnar til erlendra mynta, og eftir þeirri gengisskráningu beri þeim að breyta, er erlend viðskifti reka. A meðal siðaðra þjóða lýtur peninga- verslun sömu lögum sem venjuleg vöru- verslun i frjálsu viðskíftalífi — eftirspurn og framboð ráða. — Þær skorður má ekki veikja ef vel á að fara. Þar eð ekki er gert ráð fyrir að þessi nefnd reki sjálf peningaverslun, vantar hana skilyrðin til þess að ákveða raunverulegt gildi mynt- anna. Afleiðingin yrði sú, þegar hún ákvæði óeðlilegt gengi, að annaðhvort stansar verslunin, eða menn bíða nauðugir skaðann er af skiftunum leiðir. Eins og tilhagar hjer á landi ákveða peningastofnanirnar sameiginlega gengið, og þar eð þær eru meira eða minna háð- ar ríkisstjórninni gæti máske komið til mála að hún hefði sinn fulltrúa sem odda- mann við gengisskráninguna, en svo virð- ist sem aðrar ráðstafanir viðvíkjandi sjálfri gengisskráningunni geti ekki komið til greina. í umræddu frumvarpi er gert ráð fyrir að gengisnefndin komi saman einu sinni í viku, og forðist tíðar gengisbreytingar. Vegna sífeldra gengisbreytinga eru út- lend viðskifti mjög erfið og áhættusöm, en það er vitanlegt að peningagildi þeirra landa, er vjer íslendingar skiftum við, eru á sífeldn reiki, og myntskráningar fara víða fram oftar en einu sinni á dag. Af þessu leiðir að hjer á landi getur gengið heldur ekki orðið stöðugt. Að vísu er gert ráð fyrir að gjaldeyrisnefndin geti neytt menn til að láta af hendi þá erlenda peninga, er þeir kunni að eiga, en slíkt er gróftæk árás á eignarrjett manna, enda að mestu óframkvæmanlegt. — í sam- bandi við þetta má minna á það, að áð- ur hafa peningastofnanir hjer á landi reynt að halda íslensku krónunni í sama gildi og dönsku krónunni, og oft reynt að halda genginu stöðugu, en þá hafa þær ekki getað fullnægt eftirspurninni, og árangur- inn er öllum kunnur. Við fyrirkomulag það er stofnað er til með frumvarpinu yrði að athuga:

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.