Verslunartíðindi - 01.04.1924, Side 9
VERSLTJNARTÍÐINDI
4á
Útlönd.
Danmörk.
Utdráttur úr frjettaskeytum frá sendi-
herra Dana.
Lann 8. mars nam málmtrygging þjóð-
bankans danska 50,2 % af seðlum í um-
^erð, með þyí að málmforðinn hafði þá
vikuna aukist úr 220,6 upp í 222,2 milj.
ki\, og er þar með talið 500 þús. kr. í
silfri, sem bankinn hefur fengið endursent
frá Svíþjóð; en hinsvegar hafði upphæð
8eðla í umferð minkað um 18 milj. kr.
niður í 442,9 miljónir.
Um leið og Neergaard forsætisráðherra
lagði fram 7 lagafrumvörp, sem ætlað er
að bæta danska gengið, fyrir fólksþingið,
Ijet hann þess getið, að fullgerðar væru
8kýrslur um tekjur og gjöld ríkissjóðs fyr-
ir 10 fyrstu mánuði yfirstandandi fjárhags-
ars. I reikningum eru meðtaldar greiðslur
íyrir arðbærar eignir, samkv. 26. gr. ríkis-
reikningsins. Tekjuafgangur hefur orðið
15 milj. kr. í stað 27 milj. kr. tekjuhalla
i fyrra.
Að því er blaðið >Köbenhavn« skýrir
frá hefur fjárveitingarnefndin veitt 450
þás. kr. til þess að gera út hvalveiðaskip,
Sem á að stunda hvalveiðar við Færeyjar.
Skipshöfnin verður frá Færeyjum.
Sambandsfjelagið »Danmarks Brugsfor-
eninger* hefur á árinu 1923 haft 147 milj.
króna verslunarveltu, 40,5 milj. kr. veltu á
verksmiðjuiðnaði, og tekjuafgangur fjelags-
iös hefur orðið 9,8 milj. krónur.
Cold utanríkisráðherra lagði fyrir þingið
tillögu til þingsályktunar um að veita
samþykki til þess, að stjórnin geri samn-
lng við Norðmenn viðvíkjandi Austur-
Urænlandi, og sendi norsku stjórninni
stjórnarbrjef, í samræmi við uppköst og
frumvörp um málið.
Þann 21. mars lauk fólksþingið við
þriðju umræðu fjárlaganna. Eftir frum-
varpinu er tekjuafgangur af ríkisbúskapn-
um áætlaður 46,9 miljón krónur, en halli
samkvæmt 26. gr. 21,1 milj. Alt í alt er
því áætlaðar 25,8 milj. kr. tekjuafgangur,
en í upprunalega frumvarpinu var tekju-
afgangurinn áætlaður 37,8 miljónir.
Hinn 22. mars var undirritaður versl-
unarsamningur milli Danmerkur og Pól-
lands. Gengur hann í gildi 14 dögura
eftir að hann hefur verið lögfestur og
gildir í eitt ár. Síðan er hann uppsegjan-
legur með hálfs árs fyrirvara.
Miðlunartillögur sáttasemjarans danska
í deilu verkamannafjelagsins hafa náð sam-
þykki bæði verkamannasambandsins og
vinnuveitendafjelagsins, og er því úr sög*
unni hættulegasta deilan, sem um var að
ræða á þessu vori.
Málmtryggingarhlutfall Þjóðbankans er
nú 53,7 %, með því að upphæð seðla í um-
ferð hefur lækkað um 14 milj. krónur.
Fastar áætlunarferðir flugvjela hefjast
milli Kaupmannahafnar og Iíamborgar
23. apríl.
Málmtrygging Þjóðbankans var 10. apríl
48.6 % af seðlum í umferð.
Hin nýja stjórn jafnaðarmannaflokksins
í Danmörku er þannig skipuð: Stauning
forsætis- og verslunarmála ráðherra, sendi-
herra C. Moltke greifi utanríkisráðherra,
Borgbjerg fólksþingsmaður »social« ráð-
herra, Hauge fólksþing3maður inuanríkis-
ráðherra, L. Rasmussen fólksþingsmaður
hervarnarráðherra, sr. Dahl landþings-
maður kirkjumálaráðherra, Friis Skotte
fólksþingsmaður ráðherra opinberra fyrir-
tækja, frú Nina Bang landþingsmaður,
kenslumálaráðherra, Bramsnæs landþings-
maður fjármálaráðherra, Steincke land-
þingsmaður dómsmálaráðherra og Bording
fólksþingsmaður landbúnaðarráðherra.