Verslunartíðindi - 01.04.1924, Blaðsíða 13
VERSLUNARTÍÐINDI
47
Log
að miða við gullkrónur
sektir fyrir landhelgisbrot.
1. gr.
Sektir fyrir brot gegn lögum um bann
£egn botnvörpuveiðum, nr. 5, 18. maí
1920, og lögum um rjett til fiskiveiða í
landhelgi, nr. 33, 19. júní 1922, skal
miða við gullkrónur og ákveða i dómnum
eða sektinni jafngildi þeirra í íslenskum
krónum, eftir gengi dag þann, er sektin
er ákveðin.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Lög
heimild fyrir ríkisstjórnina
til þess að innheimta ýmsa
tolla og gjöld með 25°|0
gengisviðauka.
1. gr.
A meðan gengi á sterlingspundi er skráð
1 Reykjavík á 25 krónur eða þar yfir,
yeitist ríkisstjórninni heimild til þess að
lanheimta alla tolla samkvæmt tolllögum
nr- 41, 1921, vörutoll, vitagjald og af-
Sreiðslu skipa samkvæmt 54. gr. auka-
^julaganna með gengisviðauka að upp-
œð 25% þannig að hver toll- eða gjald-
eining hækkar um 25%, og reiknast l/2
eyrir eða stærra brot úr tolleinigu sem
heill eyrir, en minna broti er slept. Hækk-
un þessi nær þó ekki til vörutolls af korn-
vörum.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Verölagsbreyting
í útlöndum.
í janúar-hefti Verslunartíðinda þ. á. er
yfirlit yfir verðlagsbreytingar í j msum
löndum til 1. febrúar. Nægir því að visa
til þess yfirlits og bæta að eins við út-
reikningunum á meðalverðinu 1. mars og
1. apríl. Danmörk 1. mars Meðalverð: 227
(Finanst.) 1. apríl 228
Sviþjóð 1. mars 153
(Sv. Finanst.) 1. apríl 154
Noregur 1. mars 262
(ök. Revue) 1. apríl 266
Þýskaland gull 1. mars 116
(Stat. Reichs.) 1. apríl —
Frakkland 1. mars —
(Stat. Gen) 1. apríl —
England 1. mars 173
(Times) 1. apríl 169
Ítalía 1. mars 573
(Prof. Bachi) 1. apríl —
Bandaríkin 1. mars 140
(Bradstreet) 1. apríl —
Eins og sjá má af yfirlitinu hefur verðið
viðast hvar farið hækkandi, og t. d. í Dan-
mörku er heildsöluverð talið nú 20 %
hærra nú en á sama tíma í fyrra og 30 %
hærra en um haustið 1922, þegar vörur
fóru þar lægst eftir stríðslokin.
Á verðlagsbreytingar á Finnlandi hefur
ekki áður verið minst og fer hjer á eftir