Fréttablaðið - 19.09.2018, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
RAM 3500. NÝ SENDING VAR AÐ LENDA. ramisland.is
TRYGGÐU ÞÉR NÝJAN RAM 3500 SLT, LARAMIE EÐA LIMITED.
RAM 3500 VERÐ FRÁ KR. 5.960.000 ÁN VSK.
KR. 7.390.400 MEÐ VSK.
RAM 3500 LIMITED 40” BREYTTUR
Dómsmál Héraðsdómur Reykja
víkur vísaði í síðustu viku frá dómi
máli fiskvinnslufyrirtækisins Tor
ehf. á hendur Kötlu matvælaiðju ehf.
Forsvarsmenn Tors stefndu Kötlu til
greiðslu ríflega 14 milljóna króna í
bætur vegna tjóns sem fiskvinnslan
hefði orðið fyrir vegna „hjálparefnis“
sem keypt var hjá Kötlu árið 2014.
Hjálparefni þessu, N242, var ætlað að
þyngja fiskinn sem Tor hugðist selja
kaupendum erlendis. Framkvæmda
stjóri Tors fullyrti fyrir dómi að slíkt
væri gert í samráði við kaupendur.
Fyrsta framleiðsla Tors með efninu
frá Kötlu var send til Englands í nóv
ember 2014 en kaupandinn, Seafood
Holdings, neitaði að taka við vörunni
þar sem hún væri óhæf til neyslu.
Kvartaði kaupandinn yfir megnri
ammoníakslykt af fiskinum.
Tjónið hafi numið milljónum og
Seafood Holdings dregið verulega úr
viðskiptum sínum við Tor í kjölfarið.
Tor taldi ljóst að efnið sem Katla seldi
þeim til að þyngja fiskinn hefði verið
gallað.
Forsvarsmenn Kötlu bentu á að frá
leitt væri að kenna þeim um tjónið og
veltu fyrir sér hvort aðrar skýringar
væru á: „Stefnanda [Tor, innsk. blm.]
hafi auðvitað verið vandkvæðalaust
að skýra hinum erlenda viðskipta
aðila, sem hann kveðst hafa átt í við
skiptum við í um tvö ár, frá því að
stefnandi hefði þarna notað hjálpar
efni frá öðrum birgi en áður og að
eftirleiðis yrði notað sama hjálpar
efni og fyrr hefði verið notað, nema
ef vera skyldi að stefnandi hafi haldið
því leyndu fyrir hinum erlenda við
skiptaaðila að hann væri að nota slíkt
hjálparefni í fiskinn og hinn erlendi
aðili brugðist ókvæða við er upplýst
hafi verið um það.“ – smj
Vildi þyngja fiskinn en endaði með dragúldið dýrafóður
Hinn illþefjandi fiskur endaði að mestu í dýrafóðri. Fréttablaðið/GVa
Dómsmál Héraðsdómur Reykja
víkur felldi í gær úr gildi ákvörðun
Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) um
að hafna umsókn Ölmu Gunnars
dóttur sérgreinalæknis um aðild að
rammasamningi stofnunarinnar við
sérgreinalækna. Sjö sambærileg mál
til viðbótar bíða dóms. Forstjóri SÍ
fagnar niðurstöðunni.
Langvarandi og veruleg framúr
keyrsla hefur verið á fjárlagalið
samningsins. Af þeim sökum tók
heil brigðis ráðherra þá ákvörðun að
ekki yrðu teknir fleiri læknar inn á
samninginn. Var það fyrst gert um
áramótin 2016 og sú ákvörðun ítrek
uð 26. apríl og 28. ágúst 2017.
Umsóknir læknanna nú voru frá
því í september 2017 og var þeim
synjað af SÍ með vísan til ákvörðunar
ráðherra. Að mati dómsins voru fyrr
greind tilmæli „ekki í nægjanlegu
samræmi við áskilnað löggjafans um
faglegt mat á umsókn [læknisins]“.
Þá voru þau andstæð rammasamn
ingnum og leiddu til þess að ekki fór
fram fullnægjandi mat á umsókninni.
Slíkt væri brot á lögmætisreglu stjórn
sýsluréttarins og andstætt reglunni
um skyldubundið mat stjórnvalda.
Ákvörðunin var því ógilt.
„Þetta eru alls átta nákvæmlega
eins mál. Það var samkomulag um
að taka eitt mál út úr og flytja til að
fá dóm sem yrði til leiðsagnar í öllum
málunum. Alma var fremst í stafrófs
röðinni,“ segir Gísli Guðni Hall, lög
maður Ölmu og hinna læknanna sjö.
Hann var að vonum ánægður með
niðurstöðuna.
Auk læknanna átta sem stefnt hafa
ríkinu hefur níu sérgreinalæknum
til viðbótar verið hafnað um aðild
að samningnum. Læknarnir sautján
starfa í þrettán mismunandi sér
greinum og er staða þeirra nokkuð
mismunandi. Sumir eru enn búsettir
erlendis og bíða þess að koma heim
meðan aðrir eru hér heima. Það að fá
ekki aðild að samningnum þýðir að SÍ
taka ekki þátt í greiðslu sjúklinga hjá
viðkomandi lækni en kostnaðarþátt
taka SÍ er um 30 prósent.
„Þetta hefur í för með sér að við
komandi læknir þarf í raun að rukka
sinn sjúkling um kannski þrefalt
hærra gjald en læknir sem er aðili að
samningnum og þetta eru þess vegna
læknar sem starfa á sömu starfsstöð
inni. Misréttið er því augljóst,“ segir
Gísli. „Þetta hefur grundvallarþýðingu
fyrir störf og framtíðarmöguleika
lækna. Læknarnir vilja bjóða upp á
þjónustuna og það er sannarlega þörf
fyrir hana. Málið snýst að stærstum
hluta um að gera læknunum kleift að
starfa við það sem þeir hafa menntað
sig í, á jafnréttisgrundvelli.“
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis
ráðherra baðst undan viðtali um
dóminn þar til hún hefur fundað með
ríkislögmanni um niðurstöðuna og
áhrif hans. Það verður gert í dag.
joli@frettabladid.is
Forstjóri Sjúkratrygginga kátur
með niðurstöðu héraðsdóms
Sautján sérgreinalæknum hefur verið synjað af Sjúkratryggingum í samræmi við tilmæli ráðherra. Fréttablaðið/VilHElM
Vill ekki áfrýja
„Ég er ánægður
með dóminn
og tel hann
byggja á
mikilvægi
þess að staðið
sé við gerða
samninga,“ segir
Steingrímur Ari Arason, forstjóri
SÍ. Dómurinn snúist um réttar-
stöðu sjúkratryggðra, atvinnu-
réttindi lækna og mikilvægi þess
að marka þeim umgjörð. „Er það
mín tillaga að rétt sé að virða
niðurstöðuna.“
Synjun Sjúkratrygginga
á aðild sérgreinalæknis
að rammasamningi
var felld úr gildi í gær.
Læknar utan samnings-
ins þurfa að rukka sjúkl-
inga sína um umtalsvert
hærri upphæð en ella.
sAmGÖNGUR Aðalfundur Samtaka
um bíllausan lífsstíl hvetur ríkis
stjórnina til að endurskoða áherslur
sínar í samgöngumálum. Þetta kemur
fram í ályktun um aðgerðaáætlun
ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.
„Orkuskipti eru jákvæð á sinn hátt
en leysa ekki nema örlítinn hluta
af þeim vandamálum sem breyttar
ferðavenjur geta leyst,“ segir í álykt
uninni. Eftir orkuskipti þurfi enn að
leysa þau vandamál sem bílaumferð
skapar. Mun skilvirkara sé að fjárfesta
í samgöngumannvirkjum sem nýtist
gangandi, hjólandi og almennings
samgöngum, þar sem Borgarlína
gegni lykilhlutverki.
Þá hvetja samtökin ríkisstjórn
ina til að klára áætlun um eflingu
almenningssamgangna strax á þessu
ári og setja aukið fjármagn í verkefnið
í byrjun næsta árs.
Í aukaályktun fagnar aðalfundur
inn ákvörðun borgarstjórnar um
göngugötur allt árið um kring. – sar
Samgöngumálin
verði tekin til
endurskoðunar
Fréttablaðið/SiGtrYGGUr ari
1 9 . s e p t e m b e R 2 0 1 8 m I Ð V I K U D A G U R4 f R é t t I R ∙ f R é t t A b l A Ð I Ð
1
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
D
B
-F
0
1
0
2
0
D
B
-E
E
D
4
2
0
D
B
-E
D
9
8
2
0
D
B
-E
C
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K