Fréttablaðið - 19.09.2018, Blaðsíða 24
Fátt betra en hljóð stund í garðinum með mold undir nöglunum
Eva Dögg Guðmunds-dóttir var ráðin mark-aðsstjóri Creditinfo í vor en hún hefur víð-tæka reynslu af mark-aðsmálum. Eva segir að
ein helsta áskorunin í starfinu sé að
finna jafnvægið á milli þess að beita
rökhugsun og að hlusta á innsæið.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Ég á stóra fjölskyldu og heimilið er
sprelllifandi og fjörugt. Ég nýt þess
að vera með börnunum en á sama
tíma veit ég fátt betra en að eiga
hljóða stund í garðinum og fá mold
undir neglurnar. Ég á fimm börn og
mikið af pottaplöntum sem ég hef
mikla unun af að fylgjast með og sjá
vaxa og dafna. Það er mér líka mikil-
vægt að ferðast og víkka sjóndeildar-
hringinn. Ég byrjaði að ferðast mikið
í menntaskóla og flutti út strax eftir
stúdentspróf. Þannig að þó ég búi á
Íslandi í dag og ali börnin mín upp
hér þarf ég á stærri heimi að halda.
Hvernig er morgunrútínan þín?
Hún er svolítið mismunandi.
Þegar börnin á heimilinu eru fimm
snýst allt um að koma þeim af stað.
Þegar þeir eru hins vegar bara tveir
eru lætin aðeins minni. Ég er þó
með eina reglu. Þegar morgnarnir
eru hvað hektískastir heima fyrir og
stórir dagar fram undan í vinnunni
reyni ég að stoppa á leiðinni í
vinnuna og kaupa mér góðan kaffi-
bolla og eitthvað með honum og
jarðtengja aðeins áður en ég byrja
daginn.
Hvaða ráðstefnu eða fyrirlestur
sóttirðu síðast?
Ég sótti frábæran fund hjá Íslands-
banka á vegum Nordic Finance
Innov ation.
Hvaða bók ertu að lesa eða last
síðast?
Ég er mikill bókaormur en næ
ekki að lesa eins mikið og mig langar
í augnablikinu. Ég er með nokkrar
góðar í gangi, The Ministry of
Utmost Happiness eftir Arundhati
Roy er á náttborðinu og byrjar mjög
vel. Power eftir Naomi Alderman
sömuleiðis. Ég er líka með bækurnar
How Not to Be Wrong – The Power
of Mathemat ical Thinking eftir Jor-
dan Ellenberg og Happiness eftir
heimspekinginn Frédéric Lenoir á
leslistanum. Þær bíða þolinmóðar
eftir mér í bókahillunni heima.
Annars hef ég gripið til þess ráðs
að lesa meira af ljóðum þegar tím-
inn er af skornum skammti og á mér
eitt uppáhalds, sem ég las einmitt í
síðustu viku, eftir Margaret Atwood
– Half Hanged Mary.
Hverjar eru helstu áskoranirnar í
starfinu?
Að ná að hlusta á innsæið. Jafn-
vægið í að beita rökhugsun án þess
að kæfa innsæið.
Hverjar eru helstu áskoranirnar í
rekstrarumhverfinu?
Sennilega að velja rétt og hafa
úthald til að fylgja því vali eftir. Það
er mikið umbreytingatímabil í gangi
í fjármálaheiminum og því fjölmörg
tækifæri sem bjóðast. Það þarf að
hafa kjark til að velja þau tækifæri
sem vinna á áfram með og fylgja
þeim eftir.
Hvaða breytingar sérðu fyrir þér
hjá Creditinfo á næstu árum?
Við eins og aðrir þurfum að
velja rétt og taka góðar ákvarðanir.
Credit info Group er með starfsemi
í fjórum heimsálfum og þökk sé
gögnum og lausnum frá okkur hefur
um 1 milljarður einstaklinga og
fyrirtækja aðgang að lánsfé. Opnun
nýrra markaða og umbreytingar-
tímabilið sem er í fullum gangi hefur
verið hluti af árangri félagsins en
við þurfum líka að segja nei við ein-
hverjum tækifærum sem bjóðast og
skerpa fókusinn enn frekar.
Ef þú þyrftir að velja allt annan
starfsframa, hver yrði hann?
Mig hefur alltaf langað til að
geta skrifað. Eða málað … Ég ætlaði
líka alltaf að verða læknir eða lög-
fræðingur og einkaspæjari. Væri
til í þetta allt saman! Svo á ég mér
draum um að fara einhvern tímann
í doktorsnám í stærðfræði og heim-
speki. Ætla mér að róa öllum árum
að því að láta hann rætast í einhverri
mynd.
Hvar sérðu þig eftir tíu ár?
Ég sé mig eiginlega fyrir mér
á sama stað eftir tíu ár. Á þeim
tíma verður morgunrútínan samt
aðeins önnur, pottablómin fleiri og
bækurnar sem bíða á bókahillunni
orðnar aðrar. Ég er forvitin og geri
mikla kröfu um að ég læri eitthvað
alls staðar sem ég kem. Hlakka til að
sjá hvert það leiðir mig á tíu árum.
Eva Dögg Guðmundsdóttir markaðsstjóri segir mikið umbreytingatímabil í
gangi í fjármálaheiminum og í því felist fjölmörg tækifæri. Fréttablaðið/Ernir
Helstu drættir
nám
l Diploma í markaðshagfræði
og frumkvöðlafræði frá Niels
Brock í Kaupmannahöfn.
Stúdentspróf af náttúrufræði-
braut I frá Menntaskólanum í
Reykjavík.
Störf
l Country Manager á almanna-
tengslastofunni Spalt í Kaup-
mannahöfn 2003-2005.
l Rekstrarstjóri i8 gallerís frá
2005 til 2006.
l Markaðsdeild Landsbankans
frá 2006 til 2012.
l Framkvæmdastjóri og einn
eigenda hönnunarstofunnar
Döðlur frá 2012 til 2013.
l Key Account Manager hjá
Jónsson & Le’Macks frá 2013
til 2016.
l Business Development og
Partn ership Management hjá
Plain Vanilla / QuizUp árið 2014.
l Verkefnastjóri í markaðsdeild
Marel frá 2017 til 2018.
l Markaðsstjóri Creditinfo frá
apríl 2018.
Fjölskylduhagir
l Í sambúð með Ingva Þór
Guðmundssyni, sérfræðingi
í vöruþróun hjá Icelandair.
Eigum samanlagt fimm börn á
aldrinum 3 til 12 ára.
Ef stærstu olíufram-leiðsluríkjum heims mistekst að bæta upp þverrandi olíufram-leiðslu í Venesúela og Íran gæti skortur á fram-
boði leitt til þess að heimsmarkaðs-
verð á Brent-hráolíu hækki vel yfir
80 dali á fatið, að mati sérfræðinga
Alþjóðaorkumálastofnunarinnar.
Þeir benda á að þrátt fyrir mikla
eftirspurn eftir olíu á heimsvísu
sé með öllu óvíst hvort ríki innan
OPEC, samtaka olíuútflutnings-
þjóða, sem og ríki sem standa
þar fyrir utan, eins og Rússland,
geti annað eftirspurninni með
því að auka olíuframleiðslu sína.
„Við erum að ganga í gegnum afar
örlagaríkt tímabil,“ segir í nýlegri
mánaðarskýrslu stofnunarinnar.
Verð á Brent-hráolíu fór í síðustu
viku yfir 80 dali á fatið í fyrsta sinn
frá því í apríl. Nálgast olíuverð nú
fjögurra ára hámark og telja grein-
endur líkur standa til þess að verðið
haldi áfram að hækka næstu mán-
uði og haldist jafnvel nokkuð yfir 80
dölunum.
Hækkanir síðustu mánaða stafa
aðallega af þeirri ákvörðun Donalds
Trump Bandaríkjaforseta að draga
Bandaríkin út úr kjarnorkusamn-
ingnum sem ríkið, ásamt Frökkum,
Bretum, Rússum, Kínverjum, Þjóð-
verjum og Evrópusambandinu,
gerði við Írani árið 2015. „Staðan í
Íran er ráðandi þáttur í verðþróun-
inni,“ segir Helima Croft, greinandi
hjá Royal Bank of Canada, í samtali
við Financial Times.
Í samningnum umrædda fólst
að Íranir takmörkuðu kjarnorku-
framleiðslu sína gegn því að heims-
veldin felldu niður refsiaðgerðir
sínar gegn þeim. Viðskiptaþving-
anir Bandaríkjastjórnar gagnvart
Íran taka gildi á ný í nóvember og
verða afleiðingarnar líkast til þær
að olíuframleiðsla ríkisins mun
dragast verulega saman, með til-
heyrandi smitáhrifum á alþjóðlega
olíumarkaði. Olíuútflutningur Írana
hefur þegar dregist saman um 500
þúsund föt á dag frá því í maí en
ekki þykir ólíklegt að útflutningur-
inn muni að endingu minnka í eina
milljón fata á dag. Til samanburðar
hefur Íran á síðustu misserum fram-
leitt hátt í fjórar milljónir olíufata á
dag eða um fjögur prósent af allri
olíu á heimsmarkaði.
Skapar „mikla óvissu“
Talið er að flest fyrirtæki, sér í lagi
í Bandaríkjunum og Evrópu, muni
hlíta viðskiptaþvingunum Banda-
ríkjastjórnar og hætta viðskiptum
við Íran af ótta við að missa ann-
ars dýrmætan aðgang að Banda-
ríkjamarkaði og bandarísku fé.
Hins vegar er óvíst til hvaða bragðs
önnur ríki kunna að taka. Alexand-
er Novak, orkumálaráðherra Rúss-
lands, varaði þannig við því í síðustu
viku að refsiaðgerðir Bandaríkjanna
myndu skapa „mikla óvissu“ á
mörkuðum á meðan ekki lægi ljóst
fyrir hvaða ríki hefðu í hyggju að
hlíta kröfum Bandaríkjanna.
Suðurkóresk fyrirtæki hafa til
dæmis þegar hætt að kaupa íranska
olíu og þá hafa fyrirtæki á Indlandi
og í Kína dregið úr kaupum sínum
undanfarið, þvert gegn yfirlýsingum
ráðamanna ríkjanna um annað.
Fréttaskýrandi Financial Times
bendir á að þó svo að Sádi-Arabar
og bandamenn þeirra bæði innan
og utan OPEC, eins og til dæmis
Rússar, hafi heitið því að auka fram-
boð á olíu á heimsmarkaði hafi
aukningin hingað til verið „mun
minni“ en búist var við.
Trump hefur einnig lagt orð í belg
og hvatt stærstu olíuríki heims til
þess að auka við framleiðslu sína,
og þannig vega á móti minni fram-
leiðslu í Íran, en ákall forsetans
hefur litlu skilað. Stjórnmálagrein-
endur telja að hátt olíuverð geti
komið forsetanum í koll í þingkosn-
ingum sem fara fram í landinu í nóv-
ember en í því sambandi hefur verið
bent á að um tíu prósenta lækkun
á heimsmarkaðsverði geti sparað
bandarískum neytendum á bilinu
38 til 76 milljarða dala á ári.
Í fréttaskýringu Financial Times
er einnig tekið fram að olíufram-
leiðsla í Bandaríkjunum hafi aukist
hægar en almennt hafði verið gert
ráð fyrir. Það hafi átt þátt í hækkun-
unum á hráolíuverði.
Vinnsla á olíu og jarðgasi hefur
sem kunnugt er tekið kipp í landinu
á síðustu árum, þökk sé nýrri beit-
ingu gamallar aðferðar sem felst í
svonefndu vökvabroti (e. fracking),
og er nú svo komið að Bandaríkin
eru að nálgast að vera sjálfum sér
næg um orkugjafa. Vísbendingar eru
þó um að hægst hafi á framleiðslu-
vextinum en þannig spáir banda-
ríska orkumálaráðuneytið því nú
að olíuframboð landsins aukist um
840 þúsund föt á dag en til saman-
burðar var áður búist við vexti upp
á eina milljón fata á dag.
Ein ástæða þess að OPEC-ríkin
hafa ekki aukið framleiðslu sína,
þvert á væntingar, er óvissa um
áætlaða olíunotkun í heiminum á
næstu misserum, sér í lagi ef hægist
á vexti heimshagkerfisins.
„Krefjandi áskoranir í sumum
nýmarkaðs- og þróunarríkjum
valda því að horfur eru á minni vexti
í heimshagkerfinu,“ sagði í nýlegri
skýrslu OPEC. „Aukin spenna í við-
skiptum og hertari peningastefna,
samhliða vaxandi skuldasöfnun í
heiminum, eru jafnframt áhyggju-
efni.“ kristinningi@frettabladid.is
Engar olíulækkanir í spákortunum
Bitnar hart á flugfélögunum
Hækkandi olíuverð hefur bitnað
hart á Icelandair og WOW air,
líkt og öðrum flugfélögum, á
undanförnum mánuðum. Verð á
þotueldsneyti hefur enda hækkað
um allt að helming á ríflega einu
ári en eldsneytiskostnaður er
jafnan næststærsti kostnaðarliður
flugfélaga.
Flugfélögum hefur ekki tekist
að mæta olíuverðshækkununum
með því að hækka flugfargjöld,
líkt og vonir þeirra stóðu til, og
hefur það leitt til þess að olíu-
kostnaður sem hlutfall af tekjum
félaganna hefur aukist umtals-
vert á stuttum tíma. Þannig nam
kostnaðurinn um 25 prósentum af
heildartekjum WOW air í fyrra en
sambærilegt hlutfall hjá Icelandair
var um 17 prósent. Hefur hlutfallið
hækkað enn meira á þessu ári.
WOW air er berskjaldaðra en
Icelandair gagnvart olíuverðs-
hækkunum enda ver félagið ekki
eldsneytiskaup sín fyrir sveiflum í
olíuverði. Skúli Mogensen, forstjóri
og stofnandi WOW air, sagði þó í
samtali við Financial Times fyrr í
vikunni að félagið hefði ákveðið
að taka eldsneytisstefnu sína til
endurskoðunar.
Viðskiptadeilur bandaríkjanna og Kína gætu dregið úr eftirspurn eftir olíu til lengri tíma litið. norDicphotoS/GEtty
Greinendur búast við
því að heimsmarkaðs-
verð á olíu haldist yfir
80 dölum á fatið á næstu
mánuðum. Viðskipta-
þvinganir Bandaríkja-
stjórnar gegn Írönum
munu minnka verulega
framboð á olíu frá Íran.
OPEC-ríkjunum ekki
tekist að vega á móti
framboðsskortinum.
Svipmynd
Gunnar Steinn Magnússon
1 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U D A G U r8 markaðurinn
1
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
C
-0
D
B
0
2
0
D
C
-0
C
7
4
2
0
D
C
-0
B
3
8
2
0
D
C
-0
9
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K