Fréttablaðið - 24.09.2018, Blaðsíða 38
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is?
Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is.
Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Halldóra Friðriksdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
mánudaginn 17. september. Útförin
fer fram frá Fella- og Hólakirkju
fimmtudaginn 27. september klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Parkinsonsamtökin.
Ingi Sigurðsson
Davíð Ingason Matilda Gregersdotter
Sigurður Ingason
Hafdís Ingadóttir Björgvin Friðriksson
og ömmubörn.
1331 Játvarður Balliol
verður konungur Skotlands.
1664 Holland eftirlætur
Englandi Nýju-Amsterdam.
1906 Forseti Bandaríkjanna
Theodore Roosevelt lýsir
þvi yfir að Devils Tower-
kletturinn í Wyoming sé
fyrsta þjóðarminnismerkið.
1963 Mesta hækkun
mjólkurvara sem vitað er
um, 25%. Næsta dag hækka
kjötvörur um þriðjung.
Þessar hækkanir verða þó
svo að verðbólga á árs-
grundvelli sé aðeins 14%.
1968 Fyrsta skurðaðgerðin framkvæmd á Borgarspítal-
anum. Friðrik Einarsson yfirlæknir gerir aðgerðina. Þessa
atburðar var minnst 25 árum síðar með því að taka í notkun
nýja skurðstofu.
1973 Gínea-Bissá lýsir yfir sjálfstæði frá Portúgal.
1993 Samtök iðnaðarins eru stofnuð í Reykjavík og taka
þau við af sex félögum í iðnaði.
2005 Fellibylurinn Rita gengur yfir Beumont í Bandaríkj-
unum og skilur eftir sig slóð eyðileggingar.
Merkisatburðir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
María Erna Óskarsdóttir
frá Brú í Biskupstungum,
til heimilis að Vesturbergi 30,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
við Hringbraut, fimmtudaginn
20. september. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn
26. september klukkan 13.00.
Helga Marta Helgadóttir Hannes Svanur Grétarsson
Þórður Ágúst Hlynsson Astou M. Hlynsson
Aðalheiður Lilja Hlynsdóttir
Guðjón Svanur Hermannsson
og ömmubörn.
Það var þennan dag, 24. september,
árið 1957 sem hinn goðsagnakenndi
heimavöllur knattspyrnufélagsins
Barcelona var formlega opnaður.
Völlurinn er engin smásmíði og á meðal
þekktustu íþróttaleikvanga, ef ekki
hreinlega kennileita, veraldar.
Framkvæmdir við Camp Nou hófust
þann 28. mars 1954. Ákveðið var að
ráðast í framkvæmdirnar þar sem ljóst
var að ekki yrði hægt að stækka þá-
verandi heimavöll Barcelona, Camp de
Les Corts, frekar. Upphaflega stóð til að
nefna völlinn Estadi del FC Barcelona en
nafnið Camp Nou, eða Nývangur eins
og nafninu er gjarnan snarað á íslensku,
varð ofan á enda vinsælla meðal félags-
manna. Camp Nou er stærsti leikvangur
Spánar og Evrópu og raunar þriðji
stærsti knattspyrnuleikvangur í heimi
þegar kemur að fjölda áhorfenda sem
þar komast fyrir. Uppgefin sætafjöldi
í dag er 99.354 en mesta aðsókn sem
skráð hefur verið er 120.000 manns
árið 1986. Þá mættu heimamenn í
Börsungum ítalska stórliðinu Juventus í
undanúrslitum Evrópumeistarakeppni
félagsliða.
Auk þess að hafa hýst marga stórvið-
burði knattspyrnunnar á undanförnum
sex áratugum, og verið heimavöllur
margra af bestu knattspyrnumönnum
sögunnar, þá hefur Camp Nou verið
vinsæll tónleikastaður í gegnum tíðina.
Besti knattspyrnumaður Íslands frá
upphafi, Eiður Smári Guðjohnsen, lék
sem kunnugt er með Barcelona í þrjú
tímabil.
Þ etta g e r ð i st : 2 4 . s e p t e m b e r 1 9 5 7
Stórleikhús draumanna vígt
Devils Tower-kletturinn í Wyoming.
Það eru engin hátíðarhöld skipulögð í tilefni dagsins á morgun, annað en að kannski fá starfsmenn köku eða vínar-brauð í boði framkvæmda-
stjórans,“ segir guðrún Hafsteinsdóttir,
formaður samtaka iðnaðarins sem
stofnuð voru þennan dag, 24. septem-
ber, árið 1993 og eiga því 25 ára afmæli.
samtökin sjálf miða þó afmælisdag
sinn við árið 1994 að sögn guðrúnar
því þá hófst í raun sameiginleg starfsemi
þeirra félaga sem sameinuðust þennan
dag í september fyrir 25 árum.
Þá sameinuðust sex helstu samtök
iðnaðar; Félag íslenskra iðnrekenda,
Landssamband iðnaðarmanna, Félag
íslenska prentiðnaðarins, Verktakasam-
band Íslands, samband málm- og skipa-
smiða og meistara- og verktakasamband
byggingamanna. Þau tóku síðan form-
lega til starfa um áramótin 1993/1994.
Höfuðmarkmið hinna nýju samtaka var
að auka áhrif iðnaðar í þjóðfélaginu,
vinna að bættum starfsskilyrðum, hvetja
til hagkvæmni í rekstri og leggja áherslu
á markvissa vöruþróun, markaðsstarf-
semi og menntamál.
innan samtaka iðnaðarins eru nú
um 1.400 fyrirtæki og félög sjálfstæðra
atvinnurekenda. Á þessum aldarfjórð-
ungi sem liðinn er frá stofnun þess eru
samtökin því orðin stærstu og öflugustu
hagsmunasamtök atvinnurekenda á
Íslandi.
„Vegna þess að við miðum afmælið
í reynd við árið 1994 þá verður mikið
um gleðihöld og dýrðir á næsta ári. Við
munum helga það afmælinu okkar og
gera því auðvitað greinargóð skil, sér-
staklega á iðnþingi í mars næstkom-
andi. en við munum ekki gera neitt
sérstakt í tilefni dagsins í dag,“ segir
guðrún sem sjálf var stödd á ferðalagi
á Ítalíu þegar Fréttablaðið náði tali af
henni. Hún verður því fjarri góðu gamni
á stofnafmælisdaginn en kveðst létt í
bragði vona að starfsfólkið á skrifstof-
unni geri sér þó dagamun og fái í það
minnsta köku eða bakkelsi. sigurður
Hannesson, framkvæmdastjóri sam-
taka iðnaðarins, skorast væntanlega
ekki undan því og kemur færandi hendi.
mikael@frettabladid.is
Fá kannski vínarbrauð
Samtök iðnaðarins voru formlega stofnuð þann 24. september árið 1993 og eru því 25
ára í dag. Samtökin miða þó afmæli sitt við árið 1994 þegar þau hófu starfsemi í raun.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, segir að afmælið verði haldið hátíðlegt á næsta ári. FréTTABLAðið/Ernir
2 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 m Á N U D A G U r18 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
2
4
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
E
5
-4
A
C
0
2
0
E
5
-4
9
8
4
2
0
E
5
-4
8
4
8
2
0
E
5
-4
7
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K