Fréttablaðið - 06.10.2018, Síða 28

Fréttablaðið - 06.10.2018, Síða 28
Þegar hrunið skall á var ég fimmtán ára, að verða sextán. Ég stundaði nám í tíunda bekk í Hlíðaskóla. Reyndar varð rask á skólagöngunni þennan vetur og ég kláraði í grunnskólanum á Ísafirði,“ segir Íris Ösp Heiðrúnardóttir um októbermánuð árið 2008. Hún segist hafa farið á nokkur mótmæli en fundist hún utangarðs. „Ég stóð svolítið fyrir utan þau, fannst þau spennandi en vissi varla hverju ég átti að mótmæla. Fannst ég ekki eiga beint tilkall til þess, ég var dæmigerður týndur unglingur býst ég við,“ segir Íris. Þegar hrunið skall á var stjúpfaðir hennar í byggingarvinnu. Í þeim geira missti fjöldi fólks atvinnu sína. „Hann missti vinnuna og sótti um störf víða, eiginlega alls staðar þar sem honum datt í hug að störf væru í boði. Meðal annars á Græn­ landi. Hann kom heim einn daginn og sagði: Heyrið mig, við þurfum að flytja til Grænlands,“ segir Íris og segir fjölskylduna hafa gapað af undrun. Hún segist ekki hafa tekið frétt­ unum sérlega vel. „Ég sá það ekki þá, en ég sé það núna að þetta var besta ákvörðun sem fjölskyldan gat tekið. Þetta áttu eftir að verða góð ár.  Ég var  bara unglingur með fordóma og sá fyrir mér glatað líf innan um gamla, tannlausa og hjólbeinótta karla,“ segir Íris og hlær. „Grænland gerði mig að betri manneskju. Við fluttum fyrst til eins syðsta bæjar á Grænlandi, Nanortalik. Við vorum þar í um tvö ár. Á átján ára afmælisdaginn minn fluttum við svo til Qaqortoq og þar bjuggum við í önnur tvö ár. Hér heima var allt í volli en við skiptum í fyrsta gír. Mamma fór að hugsa um garðinn sinn, hún hefur mikinn áhuga á blómum og garðyrkju. Ég á lítinn bróður, hann var eins árs þegar við fluttum og það var gott fyrir hann að búa þarna,“ segir Íris. „Ég fylgdist lítið með fréttum frá Íslandi. Internetið var af skornum skammti þar sem við bjuggum. Grænlenskt samfélag er svo allt öðru vísi en íslenskt. Þar er annar taktur. Ef það er ekki til mjólk í búðinni. Þá kemur þú bara aftur næsta dag. Eða þar næsta. Við löbbuðum líka út um allt, sama hversu langt við þurftum að fara á milli staða.  Við fjölskyldan urðum eiginlega frjáls. Við erum öll fegin því að hafa farið. Við slepptum takinu, fórum að horfa betur í kring­ um okkur. Ég væri ekki sama mann­ eskjan, ég tengdist náttúrunni sterkt og opnaði huga minn og hjarta fyrir menningu annarra,“ segir Íris. Íris Ösp segist fegin því að fjölskyldan hafi sleppt tökunum og flutt til Græn- lands. Hún tengdist náttúrunni þar sterkum böndum. Fréttablaðið/Ernir Þetta er fyrsta árið í tuttugu ár sem við erum í plús,“ segir Jóhanna Þorvaldsdóttir um rekstrarstöðuna á geitabúinu á Háa­ felli. „Það er þrjóskan og hlýhugur fólks til okkar og geitanna sem hefur skilað okkur áleiðis. Bæði Íslendinga og útlendinga. Straumur ferðamanna til landsins hefur orðið okkur til hagsbóta,“ bætir hún við. Jóhanna selur afurðir sínar til veit­ ingastaða í Reykjavík og Krauma í Borgarfirði. Sem er eini veitinga­ staðurinn  á landinu sem er með geitakjöt á matseðli. Þessir veit­ ingastaðir leggja áherslu á hreinar afurðir. Þá selur hún sápur, krem, skinn (stökur), geitaost í kryddlegi og pylsur. Viðskiptavinir hennar eru bæði hér á landi og víða um heim. Árið 2014 stefndi í að jörðin að Háafelli yrði boðin upp vegna skulda eftir þungan rekstur eftir hrun. Geitunum hefði þurft að slátra. „Vinkona mín í Bandaríkj­ unum ákvað að koma mér til hjálp­ ar og efndi til söfnunar á netinu til að reyna að afstýra uppboðinu. Það tókst. Ótrúlegur fjöldi fólks, hér á landi, í Bandaríkjunum og víðar um heim lagði okkur til fé,“ segir hún frá en um þrettán milljónir króna söfnuðust. „Það munaði ekki nema hænu­ skrefi að við töpuðum jörðinni. Það var ekki bara vegna þess að bank­ arnir féllu. Það var líka vegna þess að við stóðum í hugsjónastarfi. Við þurftum til að mynda að vera með jörðina í tíu ár í einangrun af því að við tókum kollóttu geiturnar. Það var  meðal annars þess vegna sem  við höfðum litla innkomu í byrjun. Eftir hrun kom Jón Bjarnason með tillögu að samningi við okkur og bankann. Svo var honum potað í burtu. Hann var í raun eini ráð­ herrann sem hefur sýnt okkur ein­ hvern áhuga. Næsti ráðherra, það var ekki séns að ná í hann og ekki gefinn möguleiki á viðtali. Þeir vissu í ráðuneytinu að þeir báru ábyrgð á dýrategund í útrýmingarhættu en þótti það ekki mikilvægt á þessum tíma og fannst erfitt að réttlæta hjálp við einn bónda umfram aðra. Bankinn stóð samt við sinn hluta samningsins og frysti helming lána í þrjú ár. Þetta var gríðarlega þungt allt saman. Árið 2007 ætluðum við að reisa byggingu á jörðinni, ef við hefðum haft kjark til þess þá hefð­ um við líklega sloppið betur. Það ímynda ég mér að minnsta kosti því mér virðist að þeir sem skulduðu mikið hafi fengið afskrifaðar óheyri­ legar upphæðir. Um þá giltu aðrar leikreglur. Við hin sem skulduðum minna skyldum borga hverja krónu og standa svo löskuð á eftir. Bankinn græddi ekkert á því að hjálpa þeim sem skulduðu lítið. Þetta var að ég held veruleiki margra í hruninu. Jóhanna segir hug þeirra standa til að hafa ostagerð á Háafelli. „Það fæst minni mjólk frá geitum en kúm, osturinn er því dýrari í framleiðslu. Hann  er framleiddur fyrir okkur á Erpsstöðum sem er í klukkutíma fjarlægð. Það er áríð­ andi fyrir okkur að byggja þetta upp. Það er búið að teikna upp bygginguna og við erum komin með tilskilin leyfi.“ Jóhanna segir það aldrei munu koma til greina að gefast upp. Enn er fólk með geitur í fóstri til að létta undir með henni og styðja við íslenska geitastofninn. „Og án stuðnings fjölskyldu væri þetta ekki hægt. Ef maður hefur nógu mikla trú á því sem maður er að gera og baráttuvilja þá kemst maður áfram. Ég er stundum eins og trúboði, ég veit að það að rækta geitastofninn og halda honum við skiptir máli. Litafjölbreytileiki íslenska geita­ stofnsins er einstakur í heiminum og það er einnig heilbrigðið og hreinleiki afurðanna. Söfnunin og samhugur fólks með mér og geit­ unum er hins vegar það sem skilaði okkur í mark. Svo eru ýmis önnur ævintýri sem við geiturnar lentum í. Svo sem óvænt frægð þeirra í Game of Thrones. Hingað er enn að koma fólk sem er alveg veinandi yfir því að fá að klappa geitunum sem léku í þáttunum. Og fyrsta sumarið kom fólk langan veg til þess að fá mynd af sér með hafrinum sem drekinn tók,“ segir Jóhanna. Þó að hugarfar landsmanna hafi að einhverju leyti breyst eftir hrun segir Jóhanna enn vanta skilning á mikilvægi íslensks landbúnaðar. „Um tíma varð algjör bylting í við­ horfi fólks. Fólk fór að skilja hversu mikilvæg íslensk framleiðsla á mat­ vöru er. Eyjafjallagosið hjálpaði enn frekar til að ýta undir skilning. Enn finnst mér þó vanta dýpri skilning. Hér er flutt inn hráefni, tökum til dæmis rabarbara sem vex eins og gorkúlur um allt land. Hann er flutt­ ur sérstaklega inn til þess að búa til sultur, þetta er ofboðslega skrýtið,“ segir Jóhanna. „Fólk hugsar enn ekki nægilega mikið um það hvaðan það fær matinn sinn og hvernig hann verður til.“ „bankinn græddi ekkert á á þeim sem skulduðu lítið.“ Fréttablaðið/Ernir hrunið Settu í fyrsta gír á Grænlandi Samhugur fólks bjargaði geitunum „Helvítis fokking fokk“ var einn af einkennisfrösum hrunsins. Frasi sem tjáðu margskonar flóknar tilfinningar Íslendinga á þessum tíma. Fréttablaðið/StEFán björgólfur thor hélt á fund forsætis- ráðherra, 29. september. Daginn sem ríkið yfirtók 75 prósent hlut í Glitni banka. Fréttablaðið/DanÍEl Björgvin G. Sigurðsson, þá viðskiptaráðherra, afhendir Sigurjóni Þ. Árna- syni, fyrrverandi bankastjóra Landsbanka, verðlaun fyrir ársskýrslu ársins 2007. „Vönduð í alla staði,“ var mat dómnefndar. Fréttablaðið/anton 6 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r28 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 0 6 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :1 2 F B 1 2 0 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 0 2 -E 2 1 C 2 1 0 2 -E 0 E 0 2 1 0 2 -D F A 4 2 1 0 2 -D E 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 0 s _ 5 _ 1 0 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.