Fréttablaðið - 06.10.2018, Síða 57
FYRIRTÆKIÐ ÞÚSUND FJALIR EHF.
ÓSKAR LIÐSVEISLU Í AÐ MANNA
EFTIRFARANDI STÖRF.
• Vana húsasmiði - vinnan er afar fjölbreytt og krefjandi á
tímum; reynsla og lipurð í samskiptum nauðsynleg.
Þúsund Fjalir er rótgróið fyrirtæki í byggingargeiranum sem
þjónustar stofnanir og stór fyrirtæki í viðhaldi og viðgerðum
fasteigna. Samfelldur vöxtur hefur verið á umgjörð fyrirtækisins
sem speglast e.t.v. best í ánægju verkkaupa þess. Stærum við
okkur af samheldni og góðum starfsanda innan hópsins. Sökum
þess að starfsmenn eiga í daglegum samskiptum við viðskipta-
vini, og vinna náið með þeim að úrlausnum verkefna, gerum við
þá kröfu að allir okkar starfsmenn séu íslenskumælandi.
Áhugasamir sendi ferilsskrá á retturmadur@gmail.com
eða hringi í Björgvin 897 7983 / Alex 772 2301 / Ómar 772 1501
Fossaleynir 17 (Grafarvogi), 112 Reykjavík
www.studlar.is
Tvær stöður sálfræðinga við
meðferðarstöð ríkisins fyrir
unglinga að Stuðlum eru
lausar til umsóknar
Lausar eru til umsóknar tvær stöður sálfræðinga á
Stuðlum. Starfshlutfall er 100%. Stuðlar starfa á grundvelli
barnaverndarlaga og reglugerðar um Meðferðarstöð
ríkisins. Stuðlar sinna unglingum á aldrinum 12-18 ára með
hegðunarerfiðleika, þ.m.t. vímuefnavanda.
Starfssvið
Meðal verkefna sálfræðings er:
• Greining og meðferð unglinga og vinna með
fjölskyldum þeirra.
• Gerð og framkvæmd meðferðaráætlana.
• Ráðgjöf og stuðningur við barnaverndarnefndir, skóla
sem og samvinna við ýmsar aðrar stofnanir.
• Ráðgjöf og handleiðsla við starfsfólk Stuðla sem og við
aðrar meðferðarstofnanir.
• Þátttaka í almennri stefnumótun.
• Þátttaka í ART (agression replacement training) og
notkun áhugahvetjandi samtals (motivational interviewing).
Persónulegir eiginleikar
• Lögð er áhersla á persónulega eiginleika, svo sem góða
samstarfshæfni og jákvæð viðhorf til skjólstæðinga.
Hæfnikröfur:
• Réttindi til að starfa sem sálfræðingur.
• Þekking og reynsla á meðferð og greiningu unglinga
er æskileg.
• Þekking og færni í hugrænni atferlismeðferð, fjölskyldu-
meðferð, atferlismótun og félagsnámskenningum.
• Frumkvæði í starfi og skipulagshæfileikar.
• Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og í teymi.
Nánari upplýsingar veitir Funi Sigurðsson, forstöðumaður
Stuðla í síma 530-8800 eða á netfanginu funi@bvs.is.
Við úrvinnslu umsókna gildir mat forstöðumanns Stuðla á
hæfni og eiginleikum umsækjanda. Launakjör eru sam-
kvæmt kjarasamningi ríkisins við Sálfræðingafélag Íslands.
Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu, Borgartúni 21,
105 Reykjavík eða á netfangið bvs@bvs.is. Umsóknarfrestur
er til og með 22. október 2018 og þarf umsækjandi helst að
geta hafið störf sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Auglýsingin gildir í 6 mánuði frá birtingu.
Við erum góð í að selja á netinu og
aðstoðum sífellt fleiri viðskiptavini við
að koma vöru sinni og þjónustu á
framfæri í stafrænum miðlum. Við viljum
bæta öflugu liðsfólki í teymið okkar.
\STAFRÆN
MARKAÐSSETNING
Starfssvið \ hæfniskröfur:
· Víðtækur skilningur á stafrænni markaðssetningu
og leiðum í kostuðum leitarniðurstöðum
· Google vottun og mikil þekking á Google
umhverfinu (Analytics, Adwords, Tag Manager,
Optimize o.fl.)
· Víðtæk reynsla af skipulagningu, uppsetningu
og utanumhaldi á herferðum á leitarvélum s.s.
Google, Bing, YT, Yahoo o.fl.
· Funnel markaðssetning og hugmyndafræði
· Þekking á aðferðafræði A/B prófana ásamt færni
í uppsetningu og framkvæmd
· Færni í gagnagreiningu ásamt getu til að varpa
niðurstöðum yfir í framkvæmanlegar aðgerðir
Google
sérfræðingur
1.
2.
Menntun og reynsla:
Menntunar- og hæfniskröfur fyrir bæði störfin eru einfaldar. Við sækjumst eftir fólki með
starfsreynslu í netmarkaðssetningu. Háskólamenntun sem nýtist í starfi er mjög æskileg ásamt
ríkum vilja til að setja sig stöðugt inn í og tileinka sér nýjungar á sviði stafrænnar
markaðssetningar. Í því felst jafnframt að enskukunnátta þarf að vera mjög góð. Skilyrði er að
geta sýnt fram á árangur af fyrri störfum.
Umsóknir ásamt ferilskrá berist á netfangið umsoknir@pipar-tbwa.is fyrir 14. október 2018.
Starfssvið \ hæfniskröfur:
· Þekking og reynsla af vinnu með þekkt hugtök innan
stafrænnar markaðssetningar
· Markaðssetning á samfélagsmiðlum ásamt
uppsetningu áætlana
· Efnisdreifing og bestun efnis
· Mælingar og skýrslugjöf, eftirfylgni og greining gagna
· Viðkomandi þarf að vera söludrifinn og búa yfir
góðum skipulagshæfileikum og hæfni í mannlegum
samskiptum
Verkefnastjóri
í stafrænni
markaðssetningu
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
0
3
-3
6
0
C
2
1
0
3
-3
4
D
0
2
1
0
3
-3
3
9
4
2
1
0
3
-3
2
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K