Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 1
SAMSKIPTATÆKNINMIKILVÆG
Flygildi með skynjurum sem greina hindranir. 4
Unnið í samvinnu við
Fimm umsækjendur af ellefu um
stöðu aðstoðarseðlabankastjóra
teljast af nefnd mjög vel hæfir. 2
VIÐSKIPTA
Ásgeir Johansen, framkvæmdastjóri RJC, segir að
samskiptatækni sé einn af mikilvægustu þáttum
viðskipta, rétt eins og í lífinu sjálfu.
FIMMMJÖGVELHÆFIR
4
FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Talin hafa snúið á bankann
Fyrrverandi eigendur og stjórnendur
olíufélagsins Skeljungs sæta nú rann-
sókn Héraðssaksóknara vegna
meintra brota sem m.a. lúta að um-
boðs- og skilasvikum. Rannsóknin
mun einkum beinast að meintri ólög-
mætri meðferð veða eftir að Íslands-
banki hafði selt félagið, auk þess sem
kaup fyrrverandi starfsmanna Ís-
landsbanka á P/F Magn í Færeyjum
eru til rannsóknar.
Í kjölfar umfangsmikilla aðgerða,
sem m.a. fólu í sér handtökur og hús-
leitir, hafa fimm einstaklingar fengið
stöðu sakbornings. Það eru hjónin
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og
Guðmundur Örn Þórðarson, sem
keyptu fyrirtækið á sínum tíma, Einar
Örn Ólafsson sem annaðist sölu fyr-
irtækisins fyrir hönd fyrirtækjaráð-
gjafar Íslandsbanka og gerðist í kjöl-
farið forstjóri þess, og einnig þau
Halla Sigrún Hjartardóttir, fyrrum
stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins,
og Kári Þór Guðjónsson. Þau Halla og
Kári störfuðu bæði hjá Íslandsbanka á
þeim tíma þegar Svanhildur Nanna og
Guðmundur keyptu fyrirtækið. Síðar
kom í ljós að þau höfðu, ásamt Einari
Erni, auðgast verulega á viðskiptum
með færeyska olíufélagið P/F Magn
sem var í eignartengslum við Skelj-
ung.
Forsögu málsins sem leitt hefur til
rannsóknar saksóknara má rekja til
umfangsmikillar kæru sem Íslands-
banki lagði fram gagnvart embættinu
árið 2016. Bankinn seldi minnihluta
sinn í Skeljungi, 49% árið 2009, en áð-
ur hafði forveri bankans, Glitnir, selt
meirihluta í félaginu í miðju hruninu.
Íslandsbanki var hins vegar ekki að-
eins seljandi fyrrnefnds hlutar heldur
einnig stærsti lánardrottinn fyrirtæki-
sins um langt skeið.
Meðal þess sem Héraðssaksóknari
hefur nú til rannsóknar er hvernig
eignarhlutir í Skeljungi skiptu um
hendur á árunum eftir að hann komst
úr höndum Glitnis og Íslandsbanka.
Leikur grunur á því að fléttur í
tengslum við eignarhaldið hafi rýrt veð
sem Íslandsbanki gekk að þegar eign-
arhaldsfélagið Skel Investment var
tekið til gjaldþrotaskipta. Félagið hélt
utan um fyrrnefndan 51% eignarhlut
Svanhildar Nönnu og Guðmundar í
Skeljungi. Í kjölfar þess að Skeljungur
var seldur á ríflega 4 milljarða króna
árið 2013 var ljóst að félagið gæti ekki
staðið í skilum með allar skuldir sínar
gagnvart Íslandsbanka. Á þeim tíma
hafði eignarhlutur Skel Investment í
Skeljungi hins vegar rýrnað verulega
og komist undir forræði annarra fé-
laga sem þau hjónin áttu. Mun rann-
sóknin m.a. lúta að því hvort bankinn
hafi farið á mis við hundruð milljóna
vegna þessara viðskipta.
Rannsókn saksóknara mun einnig
lúta að þeirri atburðarás sem leiddi til
þess að þau Halla Sigrún, Kári Þór og
Einar Örn eignuðust hvert um sig 22%
hlut í P/F Magn. Gögn benda til þess
að fyrir hlutinn hafi þau greitt 24 millj-
ónir króna en síðar selt hann á nærri
900 milljónir hvert.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Rannsókn Héraðssaksókn-
ara beinist að því hvort þá-
verandi eigendur Skeljungs
hafi með eignatilfærslum
komið sér undan greiðslu
skulda við Íslandsbanka. Morgunblaðið/Júlíus
Viðskipti með Skeljung á árunum 2008 til 2013 draga nú dilk á eftir sér.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
7.12.‘17
7.12.‘17
6.6.‘18
6.6.‘18
1.641,99
123,8
130
125
120
115
110
123,05
1732,29
Ingvar Pétursson flugvélaverkfræðingur fluttist frá Ís-
landi aðeins fimm ára gamall. Að loknu námi við Stanford
og UCLA hélt hann til starfa á Wall Street en síðustu 30
árin hefur hann helgað nokkrum af þekktustu tæknifyrir-
tækjum heims krafta sína. Síðustu sjö árin gegndi hann
starfi framkvæmdastjóra tækni- og fjármála hjá Nintendo
America en áður starfaði hann m.a. fyrir JP Morgan,
Expedia og Corbis. Á þessum vettvangi hefur hann
kynnst og starfað náið með mönnum á borð við Bill Gates
og Steve Jobs.
Í viðtali við ViðskiptaMoggann í dag segir Ingvar að eitt
stærsta afrekið á ferlinum hafi verið þegar hann stýrði söl-
unni á hafnaboltaliðinu Seattle Mariners fyrir um 70 millj-
arða króna. Það var þá í eigu Nintendo.
Nú er Ingvar hins vegar sestur í helgan stein og hyggst
flytja til Íslands ásamt konu sinni. Þau hyggjast
hins vegar ekki sitja auðum höndum, öðru nær.
Seldi hafnaboltalið fyrir 70 milljarða
Ingvar Pétursson hefur starfað í
tæknigeiranum í Bandaríkjunum.
Ingvar Pétursson lét af starfi tækni- og
fjármálstjóra Nintendo Amercia fyrr á
þessu ári. Nú hyggst hann koma heim.
8
Evruaðild takmarkar frelsi
ítalskra stjórnvalda til þess að
stjórna eigin hagkerfi en það
að taka upp líru
gerir illt verra.
Ítalir eru fastir í
evru-prísundinni
10
Sex lið fengu í sinn hlut þrjú af
hverjum fjórum pundum af
282 milljóna punda auglýsing-
asamningum
úrvalsdeildarliða.
Lex: Togast á um
treyjutekjur
11