Morgunblaðið - 07.06.2018, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018FRÉTTIR
SVEIGJANLEGOGLIPUR
INNHEIMTUÞJÓNUSTA
Hafðu samband, við leysum málin með þér!
Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is
Áhugaverðir tímar eru framundan
hjá RCJ og innan skamms mun
fyrirtækið hefja útflutning á vatni
fyrir þriðja aðila. Stendur núna yf-
ir leit að framtíðarhúsnæði þar
sem hægt væri að sameina á einn
stað vörulager, skrifstofur og
framleiðslulínu.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Árið 2011 stofnaði RJC dóttur-
fyrirtæki, RJC Framleiðslu, sem
framleiðir drykkjarvörur á borð
við Klaka gosvatn, Leppin íþrótta-
drykk, RC Cola gosdrykki, o.fl.
Helsta áskorun undanfarin miss-
eri hefur verið að koma þessu
dótturfélagi almennilega á laggir-
nar. Vonir standa til um að það
geti náðst áður en þetta ár er liðið.
Hver var síðasta ráðstefnan
sem þú sóttir?
Ég verð að viðurkenna að ég er
ekki mikið fyrir að sækja slíkt
nema ef erindið á sérstaklega við
um okkar rekstur. Ég les þó
samantektir um niðurstöður ým-
issa áhugaverðra fyrirlestra en
sæki svo frekar vörusýningar í
tengslum við okkar rekstur. Það
er helst viðskiptaþing Viðskipta-
ráðs Íslands sem ég reyni að mæta
á. Þar eru oft líflegar og gagnlegar
pallborðsumræður í lok hvers
þings.
Hvaða hugsuður hefur haft
mest áhrif á hvernig þú starfar?
Faðir minn heitinn er líklega sá
sem hefur haft mest áhrif á hvern-
ig ég starfa. Fyrir mörgum árum
hvatti hann mig til að lesa: Munk-
urinn sem seldi sportbílinn sinn
eftir Robin S. Sharma. Ég hef líka
lesið bækur eftir Dr. Phil
McGraw, sjónvarpssálfræðinginn
fræga. Samskiptatækni er, að
mínu mati, einn af mikilvægustu
þáttum viðskipta og ekki síður í lífi
fólks almennt. Þessar bækur eru
mjög gagnlegar en svo lærir mað-
ur mikið af samtölum við aðra.
Hvernig heldurðu þekkingu
þinni við?
Ég hugsa að í nútímasamfélagi
sé þetta erfiðara en áður. Öll þró-
un virðist vera örari með tímanum
og því mikilvægt að halda sér vel
upplýstum og fylgjast gaumgæfi-
lega með því sem er að gerast
hverju sinni. Það skiptir því máli
að vera reglulega í samskiptum við
sér fróðari menn á hinum ýmsum
sviðum. Í dag er internetið þó
staðurinn þar sem þróunin er hvað
hröðust og þar er hægt að ná sér í
nánast hvaða upplýsingar sem er.
Hugsarðu vel um líkamann?
Í fullri einlægni þá hugsa ég
ekki nægilega vel um líkamann.
Yfir sumartímann geng ég þó
mjög mikið í golfinu. Mér taldist
t.a.m. að í fyrrasumar hafi ég lík-
lega gengið um 600 km á golf-
völlum landsins. Nú stendur til að
bæta úr og fá sér æfingahjól yfir
veturinn.
Hvert væri draumastarfið ef þú
þyrftir að finna þér nýjan
starfa?
Ætli ég myndi ekki velja það að
vera svo góður í golfinu að ég gæti
haft af því nægar tekjur til að
brauðfæða fjölskylduna.
Hvað myndirðu læra ef þú feng-
ir að bæta við þig nýrri gráðu?
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á hegðun manna. Hvað hvetur fólk
áfram og hvað veldur því hversu
ólík við getum verið, að upplagi
eða vegna ytri aðstæðna? Yrði ég
þá ekki að segja heimspeki eða
sálfræði.
Hvaða kosti og galla sérðu við
rekstrarumhverfið?
Fámennið hér á Íslandi getur
bæði flokkast sem kostur og galli.
Meiri sveigjanleiki og styttri við-
bragðstími gætu talist til kosta á
meðan fákeppni, hlutfallslega hár
kostnaður og háar álögur teldust
meðal gallanna. Lengi hafa menn
einnig bent á hátt vaxtastig og
veikan gjaldmiðil. Persónulega
myndi ég vilja afnema verðtrygg-
inguna og einnig draga úr áhrifum
lífeyrissjóða á rekstrarumhverfið.
Hvað gerirðu til að fá orku og
innblástur í starfi?
Ég sæki mikið í að umgangast
jákvætt fólk sem hefur metnað til
að ná árangri í lífi og starfi. Það er
hægt að takast á við neikvæða
hluti með jákvæðu hugarfari; og
öfugt. Ég fann það fyrir löngu að
neikvætt fólk dró mikla orku úr
mér. Golfið veitir mér einnig mikla
andlega hleðslu.
Hvaða lögum myndirðu breyta
ef þú værir einráður í einn dag?
Listinn yrði of langur til að birta
hér. Mikilvægast væri þó að
skerpa á þrískiptingu valdsins. Í
dag er þetta alltof samofið og eng-
an veginn í takt við tilgang þrí-
skiptingarinnar. Ráðherrar fara
með framkvæmdavald og ættu því
ekki að sitja á Alþingi á sama tíma,
ekkert frekar en að framkvæmda-
stjórn sitji í stjórn fyrirtækja.
Skipun dómara ætti, að mínu mati,
ekki að liggja hjá Alþingi eða ráð-
herrum. Það er eins og að láta
olíufélögin skipa í stöður hjá sam-
keppniseftirlitinu.
SVIPMYND Ásgeir Johansen framkvæmdastjóri RJC
Fámennið er bæði
kostur og galli
„Það er hægt að takast á við neikvæða hluti með jákvæðu hugarfari; og öfugt,“ segir Ásgeir hjá RJC.
GRÆJAN
Framleiðendur hafa reynt ýmsar leiðir
til að smíða myndatökuflygildi sem
geta stýrt sér sjálf. Sum flygildi geta
elt skynjara sem notandinn festir á sig
en þau hafa þann galla að geta ekki
áttað sig á umhverfi sínu og fljúga því
utan í tré, staura og skilti
sem verða á vegi þeirra.
Önnur flygildi nota
gervigreind til að átta
sig á hvað þau eiga að
mynda, en gervi-
greindin virkar ekki
sem skyldi fyrir hluti á hreyfingu.
Skydio R1 flygildið leysir þessi
vandamál. Tækið er búið skynjurum
sem beinast í allar áttir og greina
hindranir sem þarf að varast. Þá er
linsan tengd við tölvu sem getur fylgt
myndefninu eftir hvort sem um er að
ræða skokkara á fleygiferð eða bíl á
spani.
Í gegnum snjallsímaforrit má stilla
Skydio R1 til að elta, fljúga samsíða,
eða fara í hringi í kringum myndefnið,
og getur flygildið ferðast á allt að 40
km/klst hraða.
Tækniblaðamenn sem prófað hafa
tækið kvarta yfir því að
linsan sé helst til gleið og
fullmikil hreyfing sé á
myndinni, auk þess
sem Skydio R1 er mun
stærri og dýrari en
vinsælustu flygildin á
markaðinum. Framleiðendurnir hafa
svarað með því að benda á að tæknin
sé enn á byrjunarstigi og að næstu út-
gáfur verði ennþá betri.
Flygildið kostar 1.999 dali hjá Sky-
dio.com.
ai@mbl.is
Flygildi sem eltir
þig á röndum
Skydio R1 getur flogið á
allt að 40 km/klst hraða og
t.d. fylgt eftir bílum eða
hjólreiðafólki. Flygildið
stýrir sér sjálft og fylgir
myndefninu eftir.
NÁM: Stúdent frá Verzlunarskóla Íslands 1991; BS-gráða í
stjórnun, með áherslu á hagfræði, frá Guilford College í N-
Karólínu 1995.
STÖRF: Ýmis sölu- og afgreiðslustörf með skóla frá 14 ára aldri;
sölumaður og síðar greiningaraðili í vörustjórnunardeild hjá R.J.
Reynolds Tobacco Company í N-Karólínu 1995-1996; sölustjóri
hjá RJC 1996-1998, aðstoðarframkvæmdastjóri RJC 1998-
1999, framkvæmdastjóri RJC frá 1999. Einnig ýmis stjórnar-
setustörf frá 2005.
ÁHUGAMÁL: Fjölskyldan hefur alltaf forgang enda æði stór.
Fyrir utan hana og reksturinn er það svo helst golf, tónlist og
enski boltinn. Að boltanum undanskildum horfi ég ekki mikið á
sjónvarp en á veturna er stundum gott að horfa á góða kvik-
mynd.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég er kvæntur Aki Johansen sem ég
kynntist við nám í Bandaríkjunum 1992. Saman eigum við fjórar
dætur, tvo syni og eina 1½ árs gamla dótturdóttur.
HIN HLIÐIN