Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 7ATVINNULÍF
Pantaðu ráðgjöf á brimborg.is
Fyrirtækjalausnir Brimborgar veita fyrirtæki þínu ráðgjöf sem tryggir
hagkvæmar, sérsniðnar heildarlausnir í bílamálum. Í boði eru yfir 500
gerðir af fólksbílum, jeppum og atvinnubílum frá 5 heimsþekktum
bílamerkjum til kaups eða leigu hjá Brimborg. Framúrskarandi
viðhalds, dekkja- og hraðþjónusta og flotastýring hjá 250 sérhæfðum
starfsmönnum Brimborgar tryggir fyrirtæki þínu hagræðingu, þægindi,
sveigjanleika og lengri uppitíma.
HAGRÆDDU. EINFALDAÐU BÍLAMÁL FYRIRTÆKISINS
HEILDARLAUSNIR Í BÍLAMÁLUM
BÍLAR ÞJÓNUSTA FLOTASTÝRING
Flestir Íslendingar álíta það svo að
uppruni raforku þeirra sé hreinn og
komi frá endurnýjanlegum orkugjöf-
um. Með komu upprunaábyrgða
hingað til lands árið 2011, er svo ekki
raunin. Raforkufyrirtæki landsins,
sem að framleiða endurnýjanlega
orku, hafa á undanförnum árum selt
upprunaábyrgðir til bæði evrópskra
og innlendra aðila. Fyrirtæki sem
kaupa sér þessar ábyrgðir geta með
því móti sagst nota endurnýjanlega
orkugjafa og sýnt vottorð því til stað-
festingar.
En sá er galli á gjöf Njarðar að
með því að selja upprunaábyrgðir úr
landi, þá þarf að flytja inn ígildi sam-
svarandi magns raforku í sömu hlut-
föllum og samsetning raforkufram-
leiðslu er í Evrópu. Með þessum
hætti hafa komið inn orkugjafar, líkt
og kjarnorka og jarðefnaeldsneyti, á
rafmagnsreikninga landsmanna. Raf-
orkusalar hér á landi sem ekki hafa
útvegað sér upprunaábyrgðir fyrir
raforkunotkun viðskiptavina sinna,
eru því í þessum skilningi ekki að
bjóða upp á endurnýjanlega orku-
gjafa, nema að litlum hluta.
Íslendingar selja hreina
orku og fá óhreina í staðinn
Ekki er hægt að segjast nota end-
urnýjanlega orku á Íslandi án þess að
vera með viðurkennda vottun þess
efnis, segir Magnús Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Orkusölunnar, en
án vottunar fá notendur orkugjafa
eins og kjarnorku og kol inn á raf-
magnsreikningana sína. „Hér á Ís-
landi hefur ákveðinn hluti uppruna
endurnýjanlegu orkunnar verið seld-
ur út til Evrópu og í staðinn kemur
inn blanda af mismunandi orkugjöf-
um frá Evrópu inn í kerfið okkar. En
þessir orkugjafar eru yfirleitt kjarn-
orka og jarðefnaeldsneyti,“ segir
Magnús.
„Framleidd orka hér á landi er
klárlega endurnýjanleg, en uppruni
orkunnar hjá endanlegum við-
skiptavini er ekki endilega endur-
nýjanleg. Það fer eftir því hvort við-
komandi raforkusali er með
upprunaábyrgðir fyrir orkunni eða
ekki. Það er stóra málið í þessu.“
Upprunavottorð komu til sögunnar
á Íslandi árið 2011 þegar íslensk raf-
orkufyrirtæki hófu að selja erlendum
fyrirtækjum upprunavottorð frá Ís-
landi og tengdist þá evrópskum raf-
orkumarkaði með uppruna raforku.
Þeir sem framleiða endurnýjanlega
raforku geta gefið út upprunavottorð
sem staðfestir að orkan sé endurnýj-
anleg. Vottorðin ganga síðan kaupum
og sölum í Evrópu og þar með talið á
Íslandi, þó að landið sé ekki bein-
tengt evrópska raforkumarkaðnum.
Þessu kerfi er ætlað að vera fjárhags-
legur hvati fyrir orkufyrirtæki til
endurnýjanlegrar orkuvinnslu og
auka framleiðslu endurnýjanlegrar
orku í Evrópu og stuðla þannig að já-
kvæðum breytingum í losun gróður-
húsalofttegunda.
„Þetta virkar þannig að framleið-
endurnir gefa út þessi vottorð og þau
fara á markað, þar sem hvaða raf-
orkukaupandi eða raforkusölufyrir-
tæki sem er getur keypt vottorðin
fyrir sína viðskiptavini og vottað að
þau séu með endurnýjanlega orku.
Þetta er í raun eina vottunin sem
tryggir það að þú getir sagt með
réttu að orka sem þú færð sé end-
urnýjanleg,“ segir Magnús.
Kjarnorka 20% raforkunnar
Orkustofnun gefur út á hverju ári
yfirlit yfir uppruna raforku á Íslandi
og von er á tölum frá 2017 í byrjun
júní. Samkvæmt tölum síðasta árs þá
skiptist uppruni raforku á Íslandi ár-
ið 2016 í 59% jarðefnaeldsneyti, 21%
endurnýjanlega orku og 20% kjarn-
orku. Fyrirtæki og heimili sem ekki
hafa upprunavottorð á sinni raforku
fá þá þessa skiptingu orkugjafa inn á
sína reikninga.
„Þar sem að það er búið að taka
þessar íslensku upprunaábyrgðir og
selja þær úr landi, þá verður til þessi
blanda, sem samanstendur af annars
konar orkugjöfum, sem við tökum inn
á íslenska markaðinn í staðinn,“ segir
Magnús.
Á vef Orkustofnunnar má sjá að
fjöldi raforkufyrirtækja sem birta
svokallaðar sértækar yfirlýsingar er
að aukast. Sértækar yfirlýsingar eru
yfirlýsingar þess efnis að öll þeirra
orka sé hrein og komi frá endurnýj-
anlegum orkugjöfum.
Árið 2015 birti Orkusalan fyrstu
sértæku yfirlýsinguna um 100% end-
urnýjanlega orku á raforku-
markaðnum á Íslandi, en síðan þá
hafa þrjú önnur fyrirtæki bæst í hóp-
inn, Fallorka, Orkubú Vestfjarða og
Rafveita Reyðarfjarðar.
Aukin umræða um
sérstöðu Íslands
Aðspurður hvort það sé að mynd-
ast meiri umræða um upprunavott-
anir meðal fyrirtækja í landinu segir
Magnús að svo sé. „Það er að mynd-
ast meiri umræða um hver sérstaða
Íslands sé, þegar við erum búin að
selja upprunaábyrgðir frá okkur og
fyrirtæki úti í heimi geta keypt ís-
lenskar ábyrgðir og sagst vera með
endurnýjanlega orku. Vandamál
kerfisins og trúverðugleikinn felst í
því að fyrirtæki á Íslandi geta ekki
sagst vera með endurnýjanlega orku
þegar orkufyrirtækin eru búin að
selja upprunann frá sér, því þá er
komin tvítalning í kerfinu. Þegar þú
selur endurnýjanlegan uppruna úr
landi til að fá eitthvert virði í staðinn,
þarftu að sama skapi að taka á móti
uppruna frá evrópskum orkugjöfum
sem eru ekki umhverfisvænir.“
Grænt ljós án endurgjalds
Orkusalan er félag á samkeppnis-
markaði með rafmagn, en það fram-
leiðir og kaupir rafmagn í heildsölu til
að selja til almennings og fyrirtækja
á Íslandi. Fyrirtækið er með um
þriðjung af almennum raforku-
markaði á Íslandi, með starfsstöðvar
í Reykjavík, á Akureyri og Egils-
stöðum ásamt því að eiga og reka
fimm virkjanir. Orkusalan var fyrsta
íslenska raforkufyrirtækið sem tók af
skarið og keypti upprunavottanir fyr-
ir alla sína viðskiptavini, sem gerir
þannig öllum þeirra viðskiptavinum
kleift að sækja upprunavottorð vegna
raforkunotkunar sinnar beint af þjón-
ustuvef fyrirtækisins.
Á síðastliðnum árum hefur Orku-
salan þróað vöru í kringum upp-
runavottanir sínar sem heitir Grænt
ljós sem stendur öllum viðskiptavin-
um þess til boða án endurgjalds. Í
desember 2016 varð WOW air fyrsta
fyrirtækið hérlendis til þess að fá
Grænt ljós Orkusölunnar.
Magnús segir að viðskiptavinir
Orkusölunnar sjái mikið virði í
Græna ljósinu og þá sérstaklega
ferðaþjónustu- og framleiðslu-
fyrirtækin. Hann segir mikið virði
felast í því að geta sagst nota einung-
is raunverulega endurnýjanlega orku
sem er vottuð samkvæmt því. „Við-
skiptavinir okkar leitast eftir að
ramma þessi plögg inn og hafa til
sýnis upp á vegg fyrir sína kúnna,
flagga því að öll þeirra orka kemur til
dæmis úr vatnsaflsvirkjunum. Við-
skiptavinir okkar gætu beðið sér-
staklega um að fá upprunann úr sér-
stökum virkjunum, til dæmis Lagar-
fossvirkjun.“
Kjarnorka 20% af raforku hérlendis
Steingrímur Eyjólfsson
steingrimur@mbl.is
Upprunaábyrgðir raforku sem eru seldar úr landi hafa
það í för með sér að uppruni raforku á Íslandi litast af evr-
ópskum orkugjöfum, svo sem kjarnorku og jarðefnaelds-
neyti. Ekki er hægt að segjast nota endurnýjanlega orku
án vottunar, segir framkvæmdastjóri Orkusölunnar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Magnús Kristjánsson, framkvæmdarstjóri Orkusölunnar, segir upprunavott-
anir nauðsynlegar til þess að sannreyna notkun á endurnýjanlegri orku.