Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 15

Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 15FÓLK Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. Þarftu skjóta afgreiðslu á ein- blöðungum, bæklingum, vegg- spjöldum, skýrslum, eða nafn- spjöldum? Þá gæti stafræna leiðin hentað þér. Sendu okkur línu og fáðu verðtilboð. STAFRÆNT SPROTAR Sprotaumhverfið í dag er allt annað en það var þegar Erlendur Steinn Guðnason setti sitt fyrsta fyrirtæki á laggirnar árið 2000. „Þá þekktist varla þetta orð „sproti“ og fram- boðið á alls kyns styrkjum og framlögum var ekki svipur hjá sjón miðað við það sem við höf- um í dag,“ segir hann. Erlendur er formaður Sam- taka sprotafyr- irtækja og segir að þrátt fyrir mikl- ar framfarir sé margt sem má laga í rekstrarumhverfi íslenskra sprota. Brýnt sé að gera sprotaumhverfið hér á landi samkeppnishæft við það sem þekkist í öðrum löndum og þannig laða að fjárfesta, fyrirtæki og hæfileikafólk. Hjá Samtökum sprotafyrirtækja á sér núna stað stefnumótunarvinna sem miðar að því að kortleggja hvar breytinga er helst þörf. Önnur lönd gera betur Að sögn Erlendar markaði fjár- málahrunið kaflaskil. „Þá stóð fjöldi öflugs fólks í þeim sporum að vera án verkefna og margir sem létu verða af því að stofna fyrirtæki. Á sama tíma var mjög sterkur póli- tískur vilji til að styðja við nýsköpun með ýmsum hætti, auknu fjármagni var beint til sprota- og nýsköp- unarsjóða, og fyrstu klasarnir og viðskiptahraðlarnir litu dagsins ljós.“ Næsta stóra breytingin kom árið 2011 með nýsköpunarlögunum svo- kölluðu, sem gáfu fyrirtækjum heimild til að sækja um skattaafslátt vegna rannsóknar- og þróunarkostn- aðar. „Árið 2016 var lögunum breytt, endurgreiðsluþakið hækkað og boðið upp á skattafslátt vegna fjárfestinga í sprotafyrirtækjum,“ útskýrir Erlendur. Betur má ef duga skal og segir Erlendur að brýnt sé að sprotaum- hverfið á Íslandi sé jafn gott, og helst betra, en í nágrannalöndunum. „Við sjáum árangurinn á stöðum eins og Kanada þar sem ákveðið var á sínum tíma að veita sprotafyr- irtækjum mjög hagfellt rekstr- arumhverfi, og leyfa útlendingum sem settust þar að til að vinna hjá tæknifyrirtækjum að starfa í land- inu í fimm ár skattfrjálst. Þetta var kostnaðarsöm tilraun en stjórnvöld sáu að með því að laða að fólk og fyrirtæki myndu verða til mikil verðmæti seinna meir. Það er þess- ari stefnu að þakka að í Montreal hefur orðið til blómlegur tölvuleikja- iðnaður, og einnig er það þessari stefnu að þakka að fyrirtæki eins og OZ ákváðu að flytja sig um set.“ Laði að fólk og fyrirtæki Erlendur nefnir til samanburðar að íslensk stjórnvöld hafi stigið það skref að bjóða erlendum sérfræð- ingum sem flytjast hingað til lands að greiða ekki skatt af fjórðungi tekna sinna í þrjú ár. Til að keppa við staði eins og Kanada myndi þurfa að gera enn betur, og þá ekki aðeins með fjárhagslegum hvötum heldur líka með því að ryðja úr vegi hindrunum sem gera íslenskum fyr- irtækjum erfitt um vik að ráða til sín fólk frá löndum utan EES. „Undanfarna daga hefur átt sér stað umræða um að Ísland sé í raun orð- ið uppselt, og mikil vöntun á fólki með menntun og reynslu á ákveðnum sviðum. Það er svo margt sem þarf að ganga upp til að fá eft- irsótta sérfræðinga til að koma til landsins, og getur langdregið og flókið ferli við að fá atvinnuleyfi dregið mjög úr áhuga þeirra, enda hafa þau úr mörgum góðum kostum að velja. Einnig kemur inn í mynd- ina hvort þetta fólk, sem myndi taka fjölskylduna með sér, getur gengið að því vísu að börnin þeirra fái vandaða menntun hér á landi, að fjölskyldan geti fundið gott húsnæði og njóti góðrar félagslegrar þjón- ustu.“ Einnig þarf, að mati Erlendar, að hækka endurgreiðsluhlutfall vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar, og breyta þeim skilyrðum sem gilda í dag um skattaafslátt vegna fjár- festinga í sprotum. „Reglurnar kveða á um að fjárfestarnir megi ekki vera tengdir frumkvöðlunum til að fá skattaafsláttinn, en það end- urspeglar ekki veruleikann í sprota- umhverfinu þar sem fyrstu fjárfest- arnir eru oftar en ekki ættingjar og vinir.“ Glufur og gallar Að auki væri æskilegt að nema úr gildi reglur sem kveða á um að frumkvöðlar reikni sér ákveðin lág- markslaun, eftir tilteknum viðmið- unartöxtum, og greiði tekjuskatta og önnur gjöld af þeirri upphæð þó svo að þeir kjósi að greiða sér lítil eða engin laun, og jafnvel þó rekst- urinn hafi litlar sem engar tekjur. „Oft er það verðmætasta sem frum- kvöðull getur lagt fyrirtæki sínu til á fyrstu mánuðunum og árunum að vinna á litlum launum eða jafnvel launalaust á meðan hann byggir starfsemina upp,“ segir Erlendur. „Það er hægt að skilja hvernig þess- um reglum er ætlað að koma í veg fyrir að eigendur fyrirtækja greiði ekki eðlilega skatta, en fyrir sprota- fyrirtæki geta þessar reglur verið ósanngjarnar og verulegur baggi.“ Síðast en ekki síst segir Erlendur að þurfi að fylla í ýmsar glufur í fjármögnunarumhverfi sprota. Nokkrir öflugir fjárfestingarsjóðir hafi komið fram á sjónarsviðið á undanförnu árum en umsvif þeirra séu sveiflukennd og á milli fjárfest- ingatímabila komi löng hlé þar sem sjóðirnir eru lokaðir og framboð á fjármagni af skornum skammti á meðan. „Íslenskir sprotar eru líka að reka sig á að vöntun er á vaxt- arfjármagni þegar fyrirtæki eru komin upp að ákveðinni stærð, og vilja t.d. fara úr 50 starfsmönnum upp í 200 eða 300,“ segir Erlendur. „Lausnin gæti verið fólgin í því að laða erlent fjármagn til landsins, og gera Ísland sýnilegra sem fjárfest- ingarkost fyrir erlenda fjárfesta.“ AFP Tæknimenn grannskoða kanadíska rafmyntanámu. Erlendur segir Kanada hafa náð góðum árangri með því að skapa sprotum mjög hagfelld skilyrði. Mörgu þarf að breyta í sprotaumhverfinu Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Taka þarf mið af því hvers konar fríðindi og stuðning önnur lönd bjóða frum- kvöðlum. Glufur eru í fjár- mögnunarumhverfinu og skortur á vaxtarfjármagni. Erlendur Steinn Guðnason Viðskiptaráð Gunnar Dofri Ólafs- son hefur verið ráð- inn lögfræðingur Viðskiptaráðs Ís- lands. Gunnar er með meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og hefur víðtæka reynslu af bæði lögfræðistörfum og störfum í fjölmiðlum, að því er fram kemur í tilkynningu. Gunnar Dofri starfar nú á Við- skiptablaðinu en starfaði áður m.a. sem lögfræðingur hjá Umboðs- manni Alþingis og hjá Rauða krossinum á Íslandi. Gunnar Dofri ráðinn lögfræðingur Origo Björn Mark- ús Þórsson hefur verið ráðinn sér- fræðingur í miðlæg- um lausnum hjá upplýsingatækni- fyrirtækinu Origo. Í tilkynningu frá félaginu segir að Björn Markús búi yfir viðamikilli reynslu en hann hefur komið að fjölmörgum innleiðingum tölvu- kerfa og rekstri upplýsingatækni- kerfa hjá ólíkum fyrirtækjum á liðn- um árum. Björn var áður deildar- stjóri tölvudeildar Mannvits og sérfræðingur hjá Advania. Björn ráðinn sérfræðing- ur í miðlægum lausnum VISTASKIPTI FRUMKVÖÐLAR Nökkvi Fjalar Orrason, fram- kvæmdastjóri Átt- unnar og eigandi CAI-Social Media, er í 13. sæti á nýj- um lista Nordic Business Forum yfir áhrifamestu aðila í viðskiptalíf- inu í Norður-Evrópu, 25 ára og yngri. Í kynningu á Nökkva á heimasíðu Nordic Business Forum segir að ef efni [á netinu] sé númer eitt í dag, þá sé Nökkvi þar krónprinsinn. Rakið er hvernig Nökkvi byrjaði fyrst að búa til og birta sniðug myndbönd á Facebook og YouTube, og stofnaði síðan afþrey- ingarfyrirtækið Áttuna árið 2014, að- eins 20 ára að aldri. Þá segir að árið 2016 hafi hann fært starfsemina alfarið yfir á netið. Nökkvi Fjalar Orrason Á meðal áhrifamestu undir 25

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.