Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 16

Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 16
VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Heil eyja sett á sölu Hætta við að fjárfesta í hótelum Crossfit gefur vel Gert að greiða 426 milljónir í skatt Nokkrir hafa stöðu sakbornings Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Tilboð sem Flugfélagið Ernir hefur boðið félagsmönnum í verkalýðs- félögum á þeim stöðum sem félagið flýgur til undanfarin misseri, eru farin að „bíta það í bakið“, eins og Hörður Guðmundsson forstjóri félagsins lýsir því í samtali við ViðskiptaMoggann. Vinsældir tilboðsins, sem hljóðar upp á að hægt er að kaupa flugmiða á 8.900 krónur, hafa verið svo miklar að mið- arnir eru að verða of stór hluti af ódýr- ustu miðum félagsins. „Við gerðum upphaflega ráð fyrir því að 10-15% af flugmiðunum yrðu á þessu verði, en þetta hefur verið svo vinsælt að fólk er að ganga sérstaklega í verkalýðs- félögin til að geta nýtt sér tilboðið,“ segir Hörður. Hann segir að Ernir hafi verið að bjóða félögunum allt að þúsund miða í pökkum, en til að geta nýtt tilboðið á þessu verði þarf fólk að bóka sjálft sitt flugfar með tölvukóða frá skrifstofu stéttarfélaganna. Hörður segir að upphaflega hafi Ernir byrjað að bjóða verkalýðsfélög- unum þessa miða til að auka söluna á rólegustu mánuðum ársins, þegar minna var umleikis, og þannig fengið tekjurnar strax. „Molar eru líka brauð, það þarf að halda þessu gangandi,“ segir Hörður, og segir að enginn niðurgreiði miðana, nema flugfélagið sjálft. Skattsporið umfangsmikið Hörður er reyndar ómyrkur í máli hvað varðar skattspor félagsins, en óhætt er að ætla að lítið sitji eftir í vasa flugfélagsins þegar skatturinn dregst frá miðaverðinu. „Ef maður dregur frá skattsporið, þ.e. launaskatta, lending- argjöld, farþegaskatt, yfirflugsgjöld, kolefnisgjald og brennslugjald, ásamt virðisaukaskatti, sem við fáum ekki endurgreiddan þar sem við inn- heimtum ekki vask af farþegum, þá skila sér 1.900 krónur í okkar vasa.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flugfélagið Ernir rekur fjórar 19 sæta vélar og í júní bætist við ný 32 sæta vél. Of miklar vin- sældir flugs Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Flugfélagið Ernir hefur um skeið boðið félögum verkalýðsfélaga ódýra flugmiða, þrátt fyrir íþyngjandi skattspor. Steingrímur Eyjólfsson steingrimur@mbl.is Kærasta mín sendi mér skilaboð ígær þess efnis að hún hefði borgað 980 krónur til þess eins að fá að busla í Laugardalslaug í smá stund. Hún var hneyksluð. Skila- boðin hennar voru meira að segja í caps lock. Hún fylgdi þessu eftir með spurningunni – „Hvað er að Ís- landi?“. Ég tjáði henni það að einungisværi svona dýrt í sund vegna allra túristanna. Ef að hún keypti sundkort þá væri þetta miklu, miklu ódýrara. Hún svaraði mér ekki, ef- laust farin ofan í laug og lét þetta yfir sig ganga. Við búum í samfélagi þar sem viðreynum eftir fremsta megni að hrista peningana úr vösum ensku-, þýsku- og kínverskumælandi gesta okkar. Því þetta er bara fólk sem kemur, og svo fer það. Við síðan sjáum þetta lið aldrei aftur! Einhvers staðar þarf þó að fátekjur í kassann, ég skil það vel. Betra að það komi úr vösum ferðamanna heldur en okkar. En þetta hefur smitast í alla kima sam- félagsins. Bjórinn kostar jafn mikið og hádegismatur á besta stað í bæn- um fyrir 10 árum. Eina sem heldur námsmönnum gangandi í dag eru „NOVA tilboð“ og Bláa kort Arion banka, því þannig fær maður mat á viðráðanlegu verði. Eitt er hins vegar víst, ég ætla aðkaupa mér sundkort. Stund í sundi Í tillögum nefndar um ramma pen-ingastefnu, sem kynntar voru í fyrradag, er meðal annars vikið að mikilvægi þess að auka upplýs- ingagjöf og gagnsæi í starfsemi Seðlabanka Íslands, auk þess sem væntingastjórnun og ímyndartengd mál koma við sögu. Nefndin segir að bankinn hafi ekki sinnt fræðslu- hlutverki sínu nægjanlega vel, hvorki um peningastefnuna almennt né hlutverk Seðlabankans. Segir í tillögunum að bankinn skuli auka fræðslu um peningastefnuna og gildi verðbólgumarkmiðs „með það að markmiði að auka skilning almenn- ings á þeim möguleikum og tak- mörkunum sem eru til staðar og stuðla að aukinni sátt um stefnuna“. Nefndin tekur dæmi af Seðla-banka Nýja Sjálands en þar á bæ leggja menn sig í líma við að upp- lýsa almenning og grunn-, fram- halds- og háskólanema, og halda úti öflugu kynningarstarfi á vef sínum. Varðandi upplýsingagjöf oggagnsæi gagnvart markaðs- aðilum telur nefndin að betri vænt- ingastjórnun þurfi að koma til, og aukið gagnsæi við vaxtaákvarðanir, en einnig betri leiðbeiningar við setningu vaxta í framtíðinni. Nefndin rökstyður þessa tillögusína með því að vísa til mæl- inga á viðbrögðum markaðarins við vaxtaákvörðunum bankans. Við- brögð á skuldabréfamarkaði voru skoðuð hjá öðrum verðbólgumark- aðsríkjum á vaxtaákvörðunardegi, og reyndust sveiflur á markaðskröfu á Íslandi á vaxtaákvörðunardegi allt að þrefalt meiri en í Svíþjóð og tvö- falt meiri en í Noregi. Einnig vísar nefndin til ímyndar-mála bankans og birtir niður- stöðu könnunar meðal stjórnenda fyrirtækja þar sem spurt var spurn- ingarinnar hvort að stefna seðla- bankans hefði jákvæð áhrif á efna- hagslífið. Það er skemmst frá því að segja að þar lenti Ísland langneðst í samanburði við öll hin Norðurlöndin. Á tímunum sem við lifum í dag eraukið gagnsæi mál málanna. Umræða og upplýsingar eru betri en gamaldags feluleikur. Fyrir Seðla- bankann, sem gárungarnir kalla Svörtuloft, er greinilega þörf á bættri ímynd, öllum til heilla. Meiri upplýsingar úr Svörtuloftum Vöruviðskipti við út- lönd í maí voru óhag- stæð um 12,8 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 12,8 milljarða halli í maí 1 2 3 4 5 SETTU STARFSFÓLKIÐ Í BESTA SÆTIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.