Morgunblaðið - 02.07.2018, Side 16

Morgunblaðið - 02.07.2018, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Upp er kominsér-kennileg staða eftir að Nátt- úrufræðistofnun lagði á dögunum til að svæðið við Drangajökul á Vestfjörðum yrði friðlýst. Með slíkri friðlýsingu væri fyrirhuguð virkjun á svæð- inu, Hvalárvirkjun, að öllum líkindum úr sögunni, sem virð- ist raunar tilgangurinn með friðlýsingartillögunni. Í um- fjöllun Náttúrufræðistofnunar er sérstaklega um það fjallað að möguleg virkjun vatnsfalla geti haft talsverð áhrif á svæðið en að lítið sé um aðrar ógnir. Sú staðreynd að framkvæmdir við virkjun hafa verið að nálgast að verða að veruleika, ekki síst eft- ir úrslit nýafstaðinna sveitar- stjórnarkosninga þrátt fyrir að hart hafi verið gengið fram til að reyna að tryggja andstæð- ingum virkjunar meirihluta í sveitarstjórn, virðist að minnsta kosti hafa átt þátt í því að Náttúrufræðistofnun leggur nú til friðlýsingu. Þetta er í meira lagi umhugs- unarvert fyrir þá sem hafa beitt sér fyrir því að unnið sé heild- stætt mat á landinu undir merkjum rammaáætlunar um verndun og nýtingu í þeim til- gangi að vandað sé til verka og komið í veg fyrir slys, um leið og unnt sé að virkja þar sem að- stæður til þess séu ákjósan- legar og náttúru landsins ekki raskað um of. Áköfustu náttúruverndar- sinnar hafa ekki sést fyrir í bar- áttu sinni, sem er ekki endilega náttúruvernd til framdráttar. Í tengslum við fyrirhugaðar framkvæmdir af ýmsu tagi koma þeir til að mynda gjarnan með athugasemdir á síðustu stigum í þeim tilgangi að hindra framkvæmdirnar í stað þess að reyna að koma með uppbyggi- legar ábendingar á fyrri stig- um. Aðgerðir af þessu tagi hafa orðið til þess að umhverfismat er farið að virka eins og hindr- un og tilgangslaus en kostn- aðarsöm töf framkvæmda, en ekki tæki til að meta áhrif þeirra og taka afstöðu út frá vönduðum rannsóknum. Þetta er áhyggjuefni fyrir alla þá sem vilja vernd náttúr- unnar en um leið að gæði henn- ar, svo sem sú orka sem hægt er að leysa úr læðingi hér á landi, nýtist landsmönnum. Þess vegna er líka áhyggju- efni að umhverfisráðherra taki tillögum um friðlýsingu Drangajökulssvæðisins með þeim hætti að ætla má að hann sé þeim fylgjandi. Hann segir rannsóknirnar sem þessar til- lögur byggjast á vera nýrri en þær sem liggja til grundvallar rammaáætlun og bætir því við að rammaáætlun sé ekki meitl- uð í stein heldur eigi að endur- skoða hana reglu- lega. Það að endur- skoða eigi ramma- áætlun reglulega hefur ekkert með þetta að gera. Þar er um að ræða heildarmat fyrir landið en ekki að einstök svæði séu tekin út fyrir rammann þegar hentar tilteknum hags- munaaðilum. Og vissulega er alltaf hægt að tefla fram nýrri og nýrri rannsóknum, en jarð- myndanir á svæðinu hafa tæp- ast tekið grundvallarbreyt- ingum á örfáum árum. Þórdís Kolbrún R. Gylfadótt- ir iðnaðarráðherra varaði við því í Morgunblaðinu um helgina að gengið væri fram með þess- um hætti. Hún benti á að Hval- árvirkjun hefði hlotið jákvæða niðurstöðu í matsferli ramma- áætlunar og Alþingi hefði stað- fest þá niðurstöðu. Síðan hefði ferlið haldið áfram með um- hverfismati og öðru því sem þessu ferli fylgir. Svo segir iðn- aðarráðherra: „Þegar vegið er og metið hversu heppilegt væri að grípa inn í þetta ferli og frið- lýsa svæði í nýtingarflokki áður en það hefur verið virkjað sýn- ist mér að fróðlegt geti verið að velta fyrir sér hvort gera mætti hið gagnstæða, sem væri að raska svæði í verndarflokki áð- ur en það hefur verið friðlýst. Að gera þar sambærilegt rask og virkjun hefði haft í för með sér en bara ekki setja upp túrb- ínur og virða þar með virkj- unarbannið í hvívetna.“ Ekki þarf að efast um hver viðbrögðin yrðu í tilviki eins og því sem ráðherra lýsir. Það verður að vera hægt að ráðast í framkvæmdir hér á landi og þó að sjálfsagt sé og nauðsynlegt að rannsaka vel þætti eins og áhrif fram- kvæmda á umhverfi og náttúru verður að gera það eftir skyn- samlegum leikreglum sem sett- ar hafa verið fyrirfram en ekki breytt eftir á. Ef einstaka að- ilar komast upp með að misnota þessar leikreglur og valda óþarfa töfum og óvissu um hvort eða hvenær hægt sé að framkvæma hlýtur að koma til skoðunar að breyta leikregl- unum til að koma í veg fyrir slíkt háttalag. Þá væri væntan- lega einfaldast að setja sérlög um hverja framkvæmd og sleppa öllu því kynningar-, um- sagnar- og kæruferli sem nú- verandi leikreglur gera ráð fyrir. Þeir sem ganga fram af mestri óbilgirni í baráttunni fyrir sínum sjónarmiðum verða að átta sig á að það gæti orðið til þess að aðrir sæju sig knúna til að fara slíka leið. Það væri ekki heppilegt. Miklu heppi- legra væri ef allir gætu haldið sig innan rammans, bæði bók- stafs laganna og anda þeirra. Ekki má misnota þau tæki sem notuð hafa verið til að samræma vernd og nýtingu náttúrunnar} Er ramminn í hættu? F átt er dapurlegra en þegar skyn- samt fólk styður slæman málstað og lætur draga sig í dilka rétt- hugsunar sem merkt er hægri eða vinstri. Vinstri menn voru blindir á glæpi kommúnista í Rússlandi og töldu þar drjúpa smjör af hverju strái. Í hungursneyðinni í Úkraínu á árunum 1932-33 dóu milljónir manna. Nú er viðurkennt að hún var bein af- leiðing af stjórnarháttum Stalíns, sem var minnst þannig af formanni Sósíalistaflokksins árið 1953: „Vér minnumst mannsins Stalins, sem var til síðustu stundar sami góði félaginn sem mat manngildi ofar öllu öðru“. Halldór Laxness ferðaðist um Úkraínu árið 1932 og hæddist að skrifum Morgunblaðsins um hungursneyðina og grimmdarverk bolsa (kommúnista). Honum fannst lítið til um það þó að þeir hefðu drepið tvær milljónir eftir byltinguna 1917: „Bolsar myrtu h. u. b. tvær milljónir í borgarastyrjöld- inni, segir Mgbl. Tvær milljónir! Það kalla ég ekki mikið.“ Enda var það bara vont fólk sem var drepið: „Öðru megin verkalýður Rússlands, sem hafði með byltingunni hrist sig úr rándýrshrömmum kúgaranna, hinu megin leifarnar af herjum þessara rándýra, glæpamannaforingjar, æfintýra- menn og málalið þeirra. Aldrei hefur góður og illur mál- staður átt jafn ákveðna fylgismenn í veraldarsögunni.“ Ummæli Halldórs um hungursneyðina eru í minnum höfð: „Ég ferðaðist um Ukraine þvert og endilangt í „hungursneyðinni“ 1932. Það var yndisleg hungursneyð. Hvar sem maður kom, var allt í uppgangi. Ásamt nokkrum frönskum og belgiskum ferðamönnum sat ég í þessu landi veizlur með óbreyttum úkrainskum verkamönnum, – þar á meðal einhverja ríkmannlegustu veizlu, sem ég hef nokkurntíma setið.“ Meðan fólkið svalt sat skáldið dýrlega veislu með sínum meðreið- arsveinum. Seinna gerði Halldór upp við sína fortíð, en hann tók óneitanlega þátt í að blekkja umheiminn. Margir „hægrimenn“ hafa verið slegnir svipaðri blindu. Í Bandaríkjunum studdu báðir stóru flokkarnir frjáls viðskipti og vestræna samvinnu fyrir örfáum árum. Ekki er langt síðan Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi var líkur frjálslyndum Demókrötum. Nú er öldin önnur. Sjálfstæðismenn trúa því sumir að Repúblikanar séu „hægriflokkur“ og þess vegna eigi að styðja málstað þeirra, hversu vitlaus sem hann er. Forseti Bandaríkjanna ýtir undir útlend- ingahatur, aðhyllist einangrunarstefnu og ógnar mann- réttindum. Samt styðja margir hægrisinnar hér á landi „sinn mann“, þó að hann gangi gegn þeirra megingildum og sé ógn við þá stefnu sem hefur tryggt frið í okkar heimshluta í sjötíu ár. Enn fleiri elta flan Íhaldsmanna í Bretlandi í blindni, því „íhaldsmenn“ eigi að standa saman. Vont og heimskt fólk reynir að láta illt og heimskulegt af sér leiða, en ef gott fólk stendur þegjandi hjá á meðan er heimurinn í hættu. Benedikt Jóhannesson Pistill Betri er hugsun en rétthugsun Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Mörg hundruð þúsundmanns komu saman áum 750 stöðum víðs-vegar um Bandaríkin um helgina til að mótmæla stefnu Donalds Trumps, forseta Bandaríkj- anna, í innflytjendamálum. Stefnan, sem heitir „Zero tolerance“ eða Ekkert umburðarlyndi, tók gildi 5. maí síðastliðinn og tilgangur hennar er m.a. sagður að stemma stigu við komu fólks inn í landið yfir landa- mærin að Mexíkó án tilskilinna leyfa. Fólkið mótmælti undir slagorð- inu „Families belong together“, eða Fjölskyldur eiga að vera saman, og krafðist þess að þær fjölskyldur, sem hefðu verið aðskildar í nafni stefnunnar eftir að hafa komið ólög- lega inn í landið, yrðu sameinaðar á ný. Í rúman mánuð eftir að stefnan tók gildi, eða fram til 9. júní, voru börn fólks, sem kom ólöglega inn í Bandaríkin yfir landamærin við Mexíkó, tekin af þeim og þeim komið fyrir í umsjá yfirvalda, oft við býsna nöturlegar aðstæður. Inntak mót- mælanna um helgina var m.a. að for- setinn hefði ekki gefið neitt út um hvað gera ætti við þau börn sem voru aðskilin frá foreldrum sínum á áðurnefndu tímabili, en áætlað er að þau séu um 2.342 talsins. Skömm. Skömm. Skömm Lafayette-torg í Washington, sem er til móts við Hvíta húsið, var einn þeirra staða þar sem mótmæli fóru fram á laugardaginn. „Skömm. Skömm. Skömm,“ kölluðu mótmæl- endur er þeir gengu framhjá emb- ættisbústað forsetans, en hann var víðsfjarri og varði helginni í golf- klúbbi sínum í New Jersey-ríki. Þar voru mótmæli líka skipulögð. „Hvernig vogarðu þér?“ spurði Maxine Waters, þingmaður Demó- krataflokksins, á mótmælum í Los Angeles og beindi þar orðum sínum að Trump forseta. „Hvernig vogarðu þér að taka börn úr örmum mæðra sinna? Hvernig vogarðu þér að taka börnin og senda þau á hina og þessa staði í landinu í hálfgert gæslu- varðhald í fjöldabúðum?“ Úr hátölurum á mótmælunum mátti heyra sáran grát barns, sem hafði verið skilið frá foreldrum sín- um, og móðir, sem hafði verið skilin frá syni sínum, sagði frá reynslu sinni. „Segið það hátt, segið það skýrt – flóttafólk er velkomið hér!“ hróp- uðu mótmælendur í New York og í Boston voru þau Elizabeth Warren öldungadeildarþingmaður og þing- maðurinn Joe Kennedy III, barna- barn Roberts F. Kennedys, meðal ræðumanna, en bæði hafa verið orð- uð við forsetaframboð fyrir Demó- krataflokkinn í næstu forsetakosn- ingum árið 2020. Vilja loka innflytjenda- og tollastofnun Bandaríkjanna Margir mótmælendanna báru skilti sem á stóð Leggið niður ICE, en ICE er skammstöfun fyrir inn- flytjenda- og tollastofnun Banda- ríkjanna. Framganga stofnunar- innar gagnvart ólöglegum inn- flytjendum hefur verið harðlega gagnrýnd og starfsfólk hennar sagt hafa farið offari. Margir háttsettir demókratar hafa lýst yfir þeirri skoðun að leggja beri stofnunina niður, hún geri meira ógagn en gagn og finna þurfi aðrar leiðir í þessum málaflokki. Á samskiptamiðlinum Twitter hvatti forsetinn starfsfólk stofn- unarinnar til að halda sínu striki og sagði þar að „hinn frjálslyndi vinstri- flokkur, einnig þekktur sem Demó- krataflokkurinn, vildi loka stofn- uninni og galopna öll landamæri. Þá fara glæpir út böndunum. Gerum Bandaríkin að stórveldi að nýju“, skrifaði forsetinn á Twitter í gær. Heimskulegustu lög í heimi Í viðtali við fréttakonuna Mariu Bartiromo á bandarísku sjónvarps- stöðinni Fox News í gærmorgun sagði Trump að bandarísku útlend- inga- og innflytjendalögin væru þau „heimskulegustu í heimi“. Yrði inn- flytjenda- og tollastofnunin lögð nið- ur gætu Bandaríkjamenn ekki geng- ið óhultir um götur. „Þetta er eina fólkið sem ræður við MS-13,“ sagði forsetinn og átti þar við alþjóðlega glæpagengið Mara Salvatrucha, sem starfar m.a. í Bandaríkjunum, Mexíkó og mörgum löndum Mið- Ameríku. Samkvæmt frétt banda- ríska dagblaðsins The New York Times hefur ICE handtekið mörg hundruð meðlimi gengisins á und- anförnum mánuðum, þar af meira en 400 það sem af er þessu ári. Frekari mótmæli vegna inn- flytjendastefnu Trumps eru fyrir- huguð á næstu dögum og vikum. Mannfjöldi mótmælti „Engu umburðarlyndi“ Mótmæli „Hvar er mannúðin?“ var spurt á brostnu pappírshjarta sem mót- mælandi í borginni Austin í Texas hélt uppi í mótmælunum um helgina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.