Morgunblaðið - 02.07.2018, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2018
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Rotþrær, heitir pottar
og jarðgerðarílát
Rotþrær – heildarlausnir með
leiðbeiningum um frágang.
Ódýrir heitir pottar – leiðbein-
ingar um frágang fylgjar.
Mjög vönduð jarðgerðarílát til
moltugerðar.
Borgarplast.is,
sími 5612211, Mosfellsbæ.
Fasteignir
Austurbrún- Íbúð til sölu.
Til sölu er 50m2 góð íbúð í vönduðu
háhýsi við Austurbrún, Reykjavík.
Besta útsýnið er frá þessari íbúð.
Íbúðin selst á sanngjörnu verði, ef
samið verður strax.
Áhugasamir hafi samband á net-
fangi: jonss15@simnet.is og
öllum verður svarað.
Ýmislegt
Eco-Si 1.650kr M-XXL
Eco-Vi 1.650kr M-XXL
Eco-Fi 1.650kr M-XXL
Tahoo Maxi 1.650kr S-3XL
Laugavegi 178, sími 551-3366.
Opið mán. - fös. kl. 10–18,
Lokað á laugardögum í sumar.
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Tilkynningar
Auglýsing um skipulagsmál
í Rangárþingi eystra
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010,
er auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga í
Rangárþingi eystra.
Heylækur 3 – Deiliskipulagstillaga
Tillagan tekur til byggingar þriggja frístunda/íbúðarhúsalóða
úr jörðinni Heylækur 3. Heimilt veðrur að byggja frístunda- og
einbýlishús á lóðunum, auk gesta/geymslu húss. Nýtingar-
hlutfall lóða er 0,04 sem gerir samanlagt byggingarmagn um
450-500m² á hverri lóð.
Ofangreinda skipulagstillögu er hægt að skoða á heimasíðu
Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu
skipulags- og byggingarfulltrúa frá 2. júlí 2018. Hverjum þeim
sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að
gera athugasemdir við tillöguna, og er frestur til að skila
inn athugasemdum til 13. ágúst 2018. Athugasemdum skal
skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa
Rangárþings eystra, Ormsvelli 1, 860 Hvolsvelli.
F.h. Rangárþings eystra
Anton Kári Halldórsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
Rangárþing eystra
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Ganga um nágrenið kl. 11. Handavinna með leiðb. kl.
12.30-16. Félagsvist með vinningum kl. 13. Opið fyrir innipútt.
Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni.
Allir velkomnir. s: 535-2700.
Boðinn Mánudagur: Bingó kl. 13.
Garðabær Jónshús/félags- og íþróttastarf, sími: 512-1501 virka daga
kl. 9. - 16. Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 9.30
- 16. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með
síðdegiskaffinu er selt frá 14 - 15.30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl.
10. Bridge í Jónshúsi kl. 13.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50. við hringborðið
kl.8.50. listasmiðjan opin fyrir alla kl.9-16, ganga kl.10. handavinnu-
hornið kl.13. félagsvist kl.13.15. síðdegiskaffi kl. 14.30 allir velkomnir
óháð aldri nánari upplýsingar í síma 411-2790
Seltjarnarnes Upprifjunar tími úr snjallsíma og
spjaldtölvunámskeiði kl. 10. kaffispjall í króknum kl.10.30. leikfimi í
salnum Skólabraut kl.1330. ganga frá Skólabraut kl 14.30. vatnsleik-
fimi Sundlaug Seltjarnarnesi kl.18.30.
Vitatorg Sumarferð til Friðheima þann 4. júlí frá 9.30-15. Skoðum
gróðurhúsið og fáum Friðheima tómatsúpu í hádegisverð. Rúta með
gott aðgengi fyrir fólk sem notast við hjólastóla og göngugrindur. Ve-
rið velkomin með. Ferðin er opin öllum óháð aldri og búsetu. Verð
5500 krónur. Skráning og greiðsla á Vitatorgi, sími 411-9450
Rað- og smáauglýsingar
Smáauglýsingar
sími 569 1100
um á traustu og góðu heimili í
þriggja systkina hópi. Sólskins-
blettirnir eru margir, þeim
verða ekki gerð skil í þröngum
ramma en ylja nú afa og ömmu
þegar hann er allur.
Eftir stúdentspróf frá Fjöl-
brautaskóla Suðurlands, hóf
hann nám í jarðfræði við Há-
skóla Íslands og lauk BS-prófi í
jarðfræði vorið 2007. Þá hafði
hann kynnst góðri, fallegri
stúlku, Ásdísi Ólafsdóttur. Þau
hófu sambúð í nemendaíbúð og
voru samferða í gegnum skól-
ann. Þá um sumarið hóf hann
vinnu sem jarðfræðingur við
Kárahnjúkavirkjun.
Í desember veikist hann
skyndilega og er fluttur fárveik-
ur á Landspítalann í Reykjavík.
Þar lá hann í dái í marga daga
og var vart hugað líf. Hann
komst til meðvitundar á jóladag
2007 og greindist með heila-
bólgu. Leitað var til færustu
lækna bæði í Bandaríkjunum og
hér heima en hér varð ekki við
ráðið. Í þessum óbærilegu erf-
iðleikum slitnaði upp úr sambúð
þeirra Ásdísar og hann fluttist
aftur heim í foreldrahús á Sel-
fossi. Hann vildi berjast áfram
þrátt fyrir skerta starfsgetu.
Fór í tölvunám í Háskóla Ísland
og lauk því. Vonaðist hann til að
geta stunda léttari vinnu.
Sigurjón Valgeir hafði list-
ræna hæfieika, skapaði listverk
úr gleri, lampa, klukkur,
stjörnumerki og skrautskálar.
Hann gaf okkur mörg slík verk.
Hann málaði líka fallegar mynd-
ir.
Á unglingsaldri var hann þrjú
sumur í sveit hjá föðursystur
sinni Aðalheiði og manni hennar
Ellerti á Sauðá á Vatnsnesi.
Laxveiðiáin Hamarsá fellur þar
til sjávar. Hann átti margar góð-
ar stundir við laxveiði í ánni og
málaði fallega mynd af fossinum
í henni.
Fyrir nokkru kynntist hann
ungri þriggja barna einstæðri
móður, Margréti Jóhannesdótt-
ur. Hann kom tvisvar í heim-
sókn til okkar með henni og
börnunum. Það voru fallegar
stundir.
Foreldrum Sigurjóns, systk-
inum og öðrum fjölskyldumeð-
limum og verður aldrei fullþakk-
að fyrir þann stuðning sem þau
veittu honum í tíu ára stríðinu.
Fyrir 30 árum byggðum við
hjónin sumarbústað sunnan í
Hestfjalli sem nú er í eigu Sig-
urðar sonar okkar og Svandísar
tengdadóttur. Þegar við vorum
að byrja að setja trjáplöntur í
lóðina kom Sigurjón Valgeir
með birkifræ og sáði í reit á lóð-
inni, plönturnar döfnuðu vel og
hann hjálpaði mér síðan að
dreifa þeim um lóðina. Þær eru í
dag orðnar að 3-4 metra háum
birkiskógi. Fyrir fáum dögum
var okkur gefin lítil birkiplanta.
Við fórum með hana og settum
niður í sama reitinn og nafni
minn sáði í forðum og merktum
hana með dálitlum birkihæl sem
á er grafið fangamarkið hans
S.V. Þarna vex hún upp til minn-
ingar um þennan góða dreng
sem varð fyrir þungum örlögum
og féll frá fyrir aldur fram.
Við köllum fram í hugann
björtu minningarnar sem fylgja
okkur til æviloka.
Sigurjón Erlingsson afi.
Fyrstu 20 ár ævi okkar geng-
um við hlið við hlið. Frænd-
systkini, bekkjarfélagar, vinir.
Gerðum allt saman.
Margar minningar hafa komið
upp í kollinn á síðasta mánuði.
Við áttum okkur til dæmis
draum þegar við vorum sex ára
um að verða skautadansarar
þegar við yrðum stór og æfðum
skautadans á litlum pollum í göt-
unni með alls konar snúningum.
Það varð þó ekkert úr því enda
var ég ekki nærri því eins góð á
skautum og hann. Þegar við urð-
um eldri urðu draumarnir stærri
og það var alveg sama hvaða
íþrótt það var; hann stóð sig svo
vel í öllu. Ég var svo ótrúlega
stolt af að eiga hann sem
frænda. Ég fór á alla handbolta-
leiki sem ég gat til að fylgjast
með honum spila enda var hann
svakalega efnilegur, einnig í fót-
bolta, körfu og badminton, mað-
ur átti aldrei séns í hann þegar
við vorum að spila einhvers kon-
ar boltaleik.
Við spáðum líka mikið í veður
og vinda og þeir voru ófáir
„óveðursrúntarnir“ sem við tók-
um um bæinn og í sveitunum í
kring.
Það er undarleg tilfinning, nú
þegar ég sit í lest í Danmörku á
leið til Íslands í jarðarför, að ég
eigi aldrei eftir að sjá þig aftur
en ég vona að þú sért einhvers
staðar á góðum stað, brosandi.
Bylgja Brynjarsdóttir.
af fjölskyldunni en þar var alltaf
gott að koma.
Gunna, sem í aldri gat verið
móðir mín, var mér meira eins og
vinkona þegar ég varð fullorðin.
Hún var mér og dætrum mínum
afskaplega góð alla tíð. Við Gunna
hittumst oft og töluðum oft lengi
saman í síma. Gunna frænka hafði
einlægan áhuga á því sem ég var
að gera og hún reyndist mér vel. Í
mörg ár kom hún færandi hendi
rétt fyrir jól. Í kortunum sem
fylgdu með stóð alltaf eitthvað fal-
legt og svo innilega frá hennar
hjarta.
Ég minnist Gunnu Narfa sem
skemmtilegrar konu. Hún var
hláturmild og gaman var að vera í
návist hennar. Hún var yndisleg
manneskja, hjartahlý og góð
kona.
Ég kveð Gunnu frænku með
þakklæti og það gera dætur mín-
ar einnig. Sturlu, Sigurlaugu,
Svövu, Ernu og fjölskyldum sendi
ég innilegar samúðarkveðjur.
Guðríður (Gurrý).
Það var haustið 1956 sem við
hittumst 32 stúlkur og allar að
fara í Lindina á Laugarvatni. Í
dag erum við að kveðja eina úr
hópnum, Guðrúnu Ernu, hún er
sú níunda sem kveður okkur.
Þarna myndaðist góður vinskapur
og saumaklúbbur sem starfað hef-
ur allar götur síðan.Við höfum
gert okkur margt til gamans
gegnum árin, t.d. ferðast með
makana með okkur, dansað og
sungið við alls konar tækifæri.
Gunna var sannarlega virk í þess-
um félagsskap og dugleg að segja:
ég skal sjá um þetta eða hitt þegar
var verið að skipuleggja eitthvað,
enda hafði hún gaman af öllum fé-
lagsskap. Við Gunna og Halla
unnum saman í flokki allan vet-
urinn og fór mjög vel á með okkur.
Þær voru saman í herbergi Halla
og Gunna og þau voru ekki stór í
gamla skólanum en skemmtileg
tilviljun var að Halla kom úr 16
manna systkinahópi en Gunna var
eina barn foreldra sinna.
Já minningarnar eru góðar og
skemmtilegar frá þessum tíma og
ekki síður það sem við Gunna
brölluðum saman í Reykjavík á
árunum eftir Laugarvatn. Hjá
Gunnu á Nýlendugötunni var vel
tekið á móti manni og ég minnist
góðra stunda hjá foreldrum henn-
ar þar og í Starrahólunum og mik-
ið hugsaði hún vel um foreldra
sína.
Lífið er sannarlega ferðalag
sem við vitum ekki hvernig endar
og þetta var þrautaganga síðast
hjá Gunnu og gott þegar þannig
göngur taka enda. Takk fyrir vin-
áttuna og Guð fylgi þér.
Fyrir hönd Lindarmeyja 1956-
57 þökkum við innilega samfylgd-
ina.
Sendum Sturlu og fjölskyld-
unni allri samúðarkveðjur.
Hulda.
Fleiri minningargreinar
um Sigurjón Valgeir Haf-
steinsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.