Morgunblaðið - 02.07.2018, Page 29
» Tvær sýningar voruopnaðar í galleríinu
Kling & Bang í Mars-
hall-húsi í fyrradag,
annars vegar sýning
Fritz Hendrik IV,
Draumareglan, og hins
vegar Prófessjónal
amatör en á henni sýna
Arnar Ásgeirsson,
Bergur Ebbi, Dagrún
Aðalsteinsdóttir, Hrafn-
hildur Helgadóttir, Sæ-
mundur Þór Helgason
og Félag Borgara. Sýn-
ingarstjóri þeirrar síð-
arnefndu er Dagrún Að-
alsteinsdóttir og framdi
Hrafnhildur Helgadótt-
ir gjörning við opnun
sýningarinnar.
Draumareglan og Prófessjónal amatör opnaðar í Kling og Bang
Þjóðleg Ágúst Eiríksson og Þuríður Erla Sigurgeirsdóttir voru uppáklædd við opnunina. Ánægð Hildur Kristín Stefánsdóttir og Árni Gunnar Eyþórs voru við opnun sýninganna.
Glöð Bjarni Guðmundsson og Inga Guðmundsdóttir voru á meðal gesta.
Viðstödd f.v. Fritz Hendrik,
Dagrún Aðalsteinsdóttir lista-
maður og sýningarstjóri og
listamennirnir Arnar Ásgeirs-
son og Hrafnhildur Helgadóttir.
Morgunblaðið/Valli
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2018
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
ICQC 2018-20
Rapparinn 50
cent situr undir
harðri gagnrýni
þessa dagana
vegna færslu
hans á sam-
félagsmiðlum
þar sem hann
gerir lítið úr upp-
lifun karlmanns
á kynferðisof-
beldi.
Leikarinn Terry Crews greindi
frá því að umboðsmaðurinn Adam
Venit hefði áreitt sig kynferðislega
fyrir mörgum árum, m.a. með því
að káfa á sér á óviðeigandi hátt.
Crew steig fram með sína frá-
sögn eftir að ásakanir á hendur
framleiðandanum Harvey Wein-
stein fóru að birtast í dagblöðum
vestanhafs, þar sem hann var sak-
aður um nauðgun og kynferðisof-
beldi. Síðan þá hefur Crews verið
ötull talsmaður gegn kynbundnu of-
beldi. Hann hefur jafnframt verið í
forsvari fyrir því að koma á lögum
sem vernda fórnarlömb kynferðis-
ofbeldis. Á dögunum var hann í
vitnastól þar sem hann lýsti upp-
lifun sinni, m.a. hvernig hann fraus
og gat sig hvergi hrært. Hann sagði
einnig að kona sín hefði brýnt fyrir
sér að svara aldrei ofbeldi með of-
beldi.
Stuttu eftir vitnaleiðslurnar
ákvað rapparinn
50 Cent, öðru
nafni Curtis
Jakcson, að birta
mynd á insta-
gramaðgangi
sínum af Crews
berum að ofan
með fyrir-
sögninni: „Mér
var nauðgað,
konan mín horfði á.“ Rapparinn
gerir enn fremur gys að ummælum
hans og virðist þykja fyndið að
Crews hafi frosið í aðstæðum þess-
um. Færslan, sem nú hefur verið
eytt af aðgangi hans, uppskar mikla
gagnrýni og hundruð twitternot-
enda fordæmdu Jackson en ummæl-
in eru talin tákn um þá skaðlegu
karlmennskuímynd sem Crews hef-
ur m.a. verið að vekja athygli á.
Heitar umræður hafa sprottið
upp um málið í Bandaríkjunum þar
sem ummæli Jacksons þykja endur-
spegla viðhorf æði margra karl-
manna þar í landi og karlkyns þol-
endur séu ólíklegri til að stíga fram
vegna þessa.
Jackson fjarlægði ummælin og
myndirnar og segir þau aðeins hafa
verið grín. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem hann sætir gagnrýni af
þessu tagi en áður hefur hann verið
sakaður um fordóma gagnvart sam-
kynhneigðum. ninag@mbl.is
Gerði lítið úr upplifun
á kynferðisofbeldi
Terry Crews50 Cent