Morgunblaðið - 02.07.2018, Page 27
lítill tími til að laga hlutina og sætt-
ast ef eitthvað kæmi upp á þann
tima sem þau væru hjá henni. Eft-
irgjöf á heilbrigðum mörkum er ekki
bara barni óholl og eykur hættuna á
að það upplifi kvíða og óöryggi, held-
ur skapast líka erfiðar aðstæður í
stjúpfjölskyldum og eftirgjöf for-
eldris getur gert það að verkum að
stjúpforeldri grípur inn í agamálin
áður en tengsl hafa myndast.“
Glufur í kerfinu
Valgerður segir það ekki hjálpa
stjúpfjölskyldum að reglur og vinnu-
brögð hins opinbera falla iðulega
ekki að þessu fjölskylduformi. Af
mörgu er að taka og sumt væri auð-
velt að lagfæra. „Það skapar t.d.
heilmikið vesen og ágreining um
fjármálin að ákveðið hafi verið að
barnabætur og meðlag fari allt á lög-
heimili barnsins, óháð því hvort
barnið skiptir tíma sínum jafnt á
milli tveggja heimila. Ég er þeirrar
skoðunar að ekki þurfi að blanda
umræðu um lögheimili í málið til að
leiðrétta þetta ójafnvægi. Ef fólk
gerði foreldrasamning sín á milli
sem staðfestur væri af sýslumanni,
þar sem fram kæmi með hvaða hætti
umgengni væri, mætti greiða bætur
og meðlag eftir þeim samningi.
Þetta myndi jafnvel líka kalla á
vandaðri vinnubrögð foreldra sem
eiga börn sem tilheyra tveimur
heimilum og vilja ná samkomulagi.
Ég held það væri til bóta og nokkuð
sem kerfið ætti ekki að eiga erfitt
með að laga sig að.“
Þykir Valgerði líka tilefni til að
skoða að styðja sérstaklega við
stjúpfjölskyldur og veita barna-
fjölskyldum meiri eftirfylgni í skiln-
aðarferlinu. „Það getur hreinlega
verið lýðheilsuspursmál að hlúa vel
að þessum fjölskyldum svo að börnin
hafi betra bakland til að takast á við
lífið. Ef að tengslin rofna á milli for-
eldris og barns eru tengslin um leið
rofin við afa og ömmu og frændgarð-
inn. Það eru þessi tengsl sem styrkja
okkur og hjálpa að glíma við þrautir
lífsins.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2018
Nú finnur þú það
sem þú leitar að á
FINNA.is
» Hinn árvissifornbíladagur
var haldinn hátíð-
legur í Árbæjar-
safni í gær. Forn-
bílaklúbbur Íslands
sýndi merka bíla í
eigu félagsmanna á
safnsvæðinu og
voru félagsmenn á
svæðinu, ræddu við
gesti og fræddu.
Fornbíladagurinn var haldinn hátíðlegur í Árbæjarsafni
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Glæsilegir Fornbílarnir voru vandlega uppgerðir og stífbónaðir svo það næstum birti yfir Árbæjarsafninu.
Flott drossía Árni Þorsteinsson við bíl sem kona hans, Guðný Sigurðardóttir, á. Kampakátir Guðbjartur Sigurðsson og Rúnar Sigurjónsson við fornbíl.
Vöggugjöfin Ársæll Árnason við bíl sem gengið hefur milli kynslóða.
Breytingar „Ég myndi segja að það væri hollt að gera ráð
fyrir því eftir skilnað að foreldrar tækju reglulega stöðuna,
s.s. á 6-12 mánaða fresti, og gerðu með sér það sem ég kalla
foreldrasamning ,“ segir Valgerður Halldórsdóttir.