Morgunblaðið - 06.04.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.04.2018, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is F lest þeirra fyrirtækja sem stundað hafa skelrækt umhverfis Ísland hafa lagt upp laupana, en þau sem enn eru starfandi virðast hafa náð nokk- uð góðum tökum á ræktuninni. Þetta segir Elvar Árni Lund, formaður fé- lagasamtakanna Skelræktar en hann var áð- ur forstjóri Fjarðaskeljar sem í dag hefur hætt rekstri. „Það hafa sennilega aldrei verið eins fáir virkir framleiðendur og núna. Telst mér til að þrjú fyrirtæki stundi skelrækt í dag en þegar mest lét voru á bilinu 5-10 fyrirtæki með ræktun á ýmsum stigum, allt frá Keflavík í suðri yfir í Mjóafjörð í austri,“ segir Elvar. „Þeim sem eftir eru gengur þó ágætlega, og hafa lært af reynslunni hvernig á að láta skelræktina ganga sem best fyrir sig.“ Kostnaðarsamar mælingar Það sem helst stendur í vegi fyrir að fleiri spreyti sig á skelrækt segir Elvar Árni að sé sá mikli kostnaður sem fylgir þörungaeit- ursmælingum. Í hvert skipti sem hefja á upp- skeru þarf að taka sýni til að greina hvort magn hættulegra þörunga er yfir viðmið- unarmörkum og kostar á bilinu 120-170.000 kr. í hvert sinn. „Stærðargráðan á rækt- uninni er svo lítil hér á landi að kostnaðurinn við sýnatökuna er hlutfallslega mun hærri en hjá ræktendum erlendis. Er ekki óalgengt hjá sumum að uppskeran sé ekki nema 500- 1.000 kg og hægt að selja á 800-1.000 kr. kíló- ið, og gefur þá augaleið að lítið er eftir þegar búið er að draga frá rannsóknarstofukostn- aðinn og svo allan þann kostnað sem fylgir sjálfri ræktuninni.“ Nefnir Elvar til samanburðar að erlendis fari ræktun fram á stórum svæðum og kostn- aðurinn af hverri sýnatöku dreifist á fleiri að- ila og mun meira uppskerumagn, og jafnvel að í nágrannalöndum Íslands beri stjórnvöld beri allan kostnað af sýnatökunni. „Matís hef- ur nýlega komið sér upp aðstöðu til að fram- kvæma þessar rannsóknir, en áður þurfti að senda sýnin til Bretlands . Breytir það þó litlu um kostnaðinn, því hvort sem mælingar fara fram hér eða erlendis þá þarf að nota til þeirra dýr efni og tæki, og dýrar vinnustund- ir sérfræðinga.“ Þörf á meiri rannsóknum „Þeir sem hafa stundað skelrækt hér við land hafa gert það í hálfgerðri tilraunastarfsemi og þá yfirleitt samhliða annarri útgerð, s.s. grásleppu- og netaveiðum. Hafa þeir margir rekið sig á að það er tiltölulega auðvelt að byrja og auðsótt að fá leyfi til skelræktar, en þetta er verkefni sem getur fljótt undið upp á sig og kallar bæði á sérhæfða báta og tölu- verðan mannskap yfir vertíðina,“ segir Elvar. „Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika eru fyrirtækin smám saman að komast upp á lagið með ræktina og bendir margt til að hér við land gæti gengið að rækta skel í stórum stíl.“ En til að svo verði þarf fleira að koma til. Nefnir Elvar Árni að rannsóknum áMorgunblaðið/Eggert Fyrirstaða Elvar Árni segir eitur- þörungarannsóknir hlutfallslega dýrar fyrir minni ræktendur og hamli vexti greinarinnar. Skelræktin á mikið inni Íslensk bláskel er gæðavara og gæti, ef rétt er haldið á spilunum, orðið undirstaða blómlegrar útflutningsgreinar. Verður samt fyrst að yfirstíga vissar hindranir sem hamla vexti. G U N N A R JÚ L A R T

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.