Morgunblaðið - 06.04.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.04.2018, Blaðsíða 10
Skúli Halldórsson sh@mbl.is S töðinni verður skipt upp í aðskilin eldissvæði, þann- ig að við getum verið með bæði lax og bleikju. Áætl- unin eins og hún lítur út í dag, gerir ráð fyrir að eldið skiptist þannig til helminga. Framtíð- arþróunin getur svo hallast í aðra hvora áttina, en óneitanlega erum við mjög spenntir fyrir markaðs- umhverfi bleikjunnar eins og það er í dag,“ segir Ingólfur um fyrirhugað eldi. Bendir hann á að markaður fyrir bleikju sé tiltölulega nýr á al- þjóðavísu og vaxandi. „Framleiðslan er rúm þrettán þúsund tonn, sem er svipað og lax- inn var í kringum árið 1980. Við sjáum sóknarfæri í þeim markaði og þá sýnist okkur verðþróunin vera mjög jákvæð,“ segir Ingólfur, en þá eru kostir bleikjunnar ekki upp taldir með öllu. „Í eldi er bleikjan spennandi kostur, hún er harðger, hraðvaxta við kaldar aðstæður og nýtist vel í eldisrými. Við viljum því halda þess- um möguleika vel opnum.“ Fleiri afurðir leynist í eldinu Hann segist oft spurður hvers vegna fyrirtækið ætli að ráðast í fiskeldi á landi. „Við höfum tekið svolítið stað- fasta ákvörðun um að staðsetja okk- ur á þessum væng geirans, að vera uppi á landi og nýta okkur þá kosti sem strandeldi gefur okkur. Við höfum þá meiri stjórn á því sem við erum að gera og erum um leið lausir við ýmsa umhverfisþætti sem hafa verið að hrjá eldi úti á sjó. Þeir þættir eru allir meira og minna þekktir, og eins og nýlegar fréttir sýna þá fylgja því töluverðar áskor- anir. Það þarf mikla og góða skipu- lagningu svo að framleiðslan sé í sátt við markaðinn en sömuleiðis umhverfið,“ segir Ingólfur og bætir við að fleiri afurðir geti leynst í eldi á landi. „Til að koma í veg fyrir slysa- sleppingar frá stöðinni verða settar upp gildrur, ásamt síunarútbúnaði á útrennsli, til að aðskilja úrgang frá eldisvökvanum. Úrgangurinn fer ekki í sjóinn og ekki heldur á haug- ana. Fyrst við erum á annað borð að fara í þetta þá erum við mjög hrifnir af þeim tækifærum sem leynst gætu í rannsóknarvinnu á útfallinu. Í seyrunni gætu falist efnafræðileg tækifæri og okkur langar að vinna með öðrum fagaðilum til að kanna möguleikana þar. Annars gætum við vel nýtt hana í áburðarfram- leiðslu.“ Ekki að elta tískustrauma Í það minnsta er ljóst að útfall eld- isins verður síað. „Í dag er annar tími en var á ár- um áður, skítur er ekki endilega bara skítur. Það er fullt af næring- arefnum í seyrunni, til dæmis fos- fór, sem gæti reynst vel á ýmsum stöðum þarna í nærumhverfinu.“ Ingólfur segir þetta til marks um það hugarfar sem hópurinn hafi á leið inn í þetta stóra verkefni. „Við erum að setja verkefnið upp á þeim forsendum að við munum stilla það í samræmi við þær vænt- ingar og óskir sem við höfum. Þann- ig erum við ekki að elta neina tísku- strauma í hugmyndavinnunni og viljum hanna þetta út frá því að við nýtum okkur alla þá kosti sem til staðar eru, á sama tíma og við erum í algjörri sátt við umhverfið,“ segir hann. „Oft fer umræðan um þessa um- hverfissátt fram í tali um krónur og aura. Við höfum tekið eftir því að umhverfisþættir eru metnir eftir því hvort þeir eru arðbærir fjárhags- lega eða ekki. En þarna erum við ekki að hugsa út frá þeim for- sendum, heldur umhverfisfor- sendum; hvað við viljum gera og hvað við viljum skilja eftir okkur. Ég tel að okkur beri svolítil skylda til að hugsa svona, þegar klukkan er korter í 2020, þá eiga fyrirtæki sem eru að nýta náttúrulegar auðlindir að hugsa um þessa þætti.“ Ísland eigi að vera í efsta sæti Í þessu samhengi skipti vörumerkið Ísland líka máli. „Ég er nú ef til vill svo heppinn að ég hef átt samskipti við Íslands- stofu, bæði í þessu verkefni og öðr- um sem ég hef verið að vinna að, og sem leikmaður, þegar maður rýnir í þau hugrenningatengsl sem fylgja vörumerkinu Íslandi, þá vill maður styðja við þá þróun vörumerkisins að Ísland sé í forgrunni í umhverf- isumgengni, ef svo má segja. Og að þessi stuðningur sé meðvitaður á þann veg, að við séum bæði að halda uppi hróðri þessarar ímyndar og einnig að við séum ekki að tengja okkur við ýmsar vafasamar aðferðir sem auðveldað geta fólki að segja „Já, Ísland er í fremstu röð, en þar er þó pottur brotinn víða.“ Þetta skiptir gríðarlegu máli, það er mikið rætt um þetta í dag en hugsaðu þér hvar umræðan verður eftir tíu til fimmtán ár,“ segir Ingólfur við blaðamann. „Umhverfismál verða sífellt mik- ilvægari og það þarf ekki að líta lengra en til umhverfisvitundar ungs fólks í dag. Þetta fólk reynir að afla sér upplýsinga um meðferð um- hverfisins við vinnslu þeirra vara sem það kaupir, og Ísland eftir fimmtán ár ætti að vera algjörlega í efsta sæti hvað þetta varðar. Við höfum tæknilega þekkingu, hátt menntastig og allar auðlindir til að geta verið á þeim stað í alþjóðlegum samanburði. Við viljum leggja okkar af mörkum til að ná þeim áfanga, með því að keyra á þessari áætlun sem við höfum.“ Framkvæmdir gætu hugsanlega hafist á fyrri hluta árs 2019. „Þetta tekur allt smá tíma. Og þetta má líka alveg taka tíma. Ég held að það sé mikilvægt að líta til þess í þróunarferlinu, að við tökum þetta skref fyrir skref og höfum góða yfirsýn. Þannig getum við nýtt okkur alla þá krafta sem okkur bjóð- ast,“ segir Ingólfur. Undirbúnings- Vilja verða sterkur hluti af bæjarfélaginu Hópur manna stendur að baki fyrirtækinu Landeldi ehf., en þeir hyggjast setja á fót lax- og bleikjueldi í Þorlákshöfn á næstu misserum. Ingólfur Snorra- son, forsvarsmaður hópsins, segir í samtali við 200 mílur að mikil tækifæri leynist í bleikjueldi og að Þorlákshöfn eigi sér bjarta framtíð þrátt fyrir nýleg áföll í atvinnulífinu. Landeldi Tölvuteikning af fyrirhuguðu eldi við sjávarsíðuna í Þorlákshöfn. Framkvæmdir gætu hafist á fyrri hluta næsta árs. Ingólfur Snorrason Myndin er tekin ofan í gryfjunni í Þorlákshöfn. 10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 Ingólfur bendir á að vistfótspor fiskeldis, í samanburði við kjúk- linga-, svína- og nautakjötsfram- leiðslu, sé miklum mun lægra. Vísar hann til gagna í nýlegri skýrslu norska sjávarútvegsfyr- irtækisins Marine Harvest, þar sem fram kemur að magn kolt- víoxíðs sem leysist út í andrúms- loftið sé 2,7 til 2,9 kg á hvert kg af kjöti í laxeldi og kjúklingafram- leiðslu. Á sama tíma sé hlutfallið 30 kg af koltvíoxíði á hvert kg af kjöti í nautakjötsframleiðslu. „Vatnsnotkunin er sömuleiðis langminnst í laxeldinu, eða sem nemur tvö þúsund lítrum af vatni á hvert kg af kjöti, miðað við hina fæðuflokkana þar sem hún nemur allt frá 4.300 lítrum til 15.400 lítra á hvert kg af kjöti,“ segir Ing- ólfur og bætir við að vistspor eld- isins sé hópnum mjög mikilvægt. „Við sjáum það bara úti í Evr- ópu núna, að þessi hluti starf- seminnar er mikið til umfjöllunar. Vistfræðilega er mikil hagsæld fólgin í því að fólk borði meira af fiski en kjöti, miðað við þau gögn sem fram hafa komið.“ Vistsporið mikilvægt „Ekki bara standa og benda“ Í samtali við blaðamann segist Ingólfur fagna aukinni umræðu um fiskeldi í samfélaginu. „Og mér finnst það mikilvægt fyrir alla hlutaðeigandi í þesari grein, hvort sem þeir eru úti á hafi eða inni í landi, að ekki standa bara og benda og segja „hinir“, heldur að þeir hugsi um eigin þátt og hvað þeir geta sjálfir gert til að gera hlutina eins vel og þeir geta,“ segir hann. „Umræðan er á þannig krossgötum að hún getur farið í skotgrafirnar en einnig í umræðu um hvað við erum að gera sjálf. Ég er til dæmis landeld- ismegin, og þar af leiðandi mun ég færa rök fyrir því af hverju við höfum valið að fara þá leiðina, en þar mun mitt innlegg nema staðar.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.