Morgunblaðið - 06.04.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 06.04.2018, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is S vik í viðskiptum með mat- væli eru algengari en margur heldur og virðast vera vandamál í öllum kimum matvælageirans. Ragnhildur Friðriksdóttir er sér- fræðingur hjá Matís og segir matvælasvik geta verið bæði margslungin og flókin og spanna allt frá því að selja ódýrari teg- undir matvæla sem dýrari yfir í að bæta skaðlegum efnum í matvöru til að drýgja hana eða fegra nær- ingarmælingar. „Það sem við vitum er að matvælasvik hafa verið að færast í vöxt og að oft er um að ræða skipulagða glæpastarfsemi. Miklir peningar eru í spilinu og hefur verið áætlað að tekjur óprúttinna aðila af matvælasvindli af ýmsum toga nemi um 52 milljörðum bandaríkjadala ár hvert á heims- vísu. Til samanburðar má nefna að allur heimsmarkaðurinn með ólög- leg skotvopn er talinn velta 8,5 milljörðum dala og heróínfram- leiðsla 30 milljörðum dala.“ Flestir þekkja frægustu dæmin um matvælasvindl, eins og þegar upp komst árið 2013 að hrossakjöt hafði verið selt sem kjöt af öðrum dýrum og notað í skyndirétti sem seldir voru í evrópskum matvöru- verslunum. „Fólkið sem stendur að þessum glæpum svífst oft einskis og er tilbúið að gera hvað sem er, óháð áhrifum á heilsu manna, eins og þegar efninu mel- amíni – sem til dæmis er notað til að búa til ákveðin plastefni og steypu – var bætt út í þurrmjólk fyrir börn í Kína til að láta prótín- mælingar sýna hærra prótíngildi í vörunum. Komst upp um svindlið árið 2008 og talið að sex börn hafi látist af þessum sökum og margir tugir þúsunda barna þurftu að leggjast inn á spítala.“ Fiskur í sjötta sætti Neytendur þurfa að vera á varð- bergi og meðvitaðir um algeng- ustu tegundir matvælasvindls. „Ef við skoðum topp-10-listann yfir matvæli sem svindlað er með þá má þar finna appelsínusafa sem er til dæmis seldur sem nýkreistur en hefur verið þynntur út með vatni og bragðbættur með bragð- efnum eða sykur- og litarefna- blöndu sem seld er sem hunang. Það er líka algengt að svindlað sé með truffluolíu og hún þynnt út með öðrum olíum og sömuleiðis er vel þekkt að mun meiri ólífuolía er seld á heimsvísu en væri nokkurn tímann hægt að framleiða með öll- um þeim ólífum sem ræktaðar eru,“ segir Ragnhildur. Svindl með fisk hafnar í 6. sæti á listanum yfir algengasta mat- vælasvindl. „Þetta er svindl af ýmsu tagi, s.s. þegar ólöglega veiddur afli er seldur sem löglega veiddur fiskur eða eldisfiskur seldur sem villtur fiskur. Svindlið getur líka verið fólgið í því að log- ið er til um hvaðan fiskurinn kem- ur svo hann virðist hafa minna sótspor og svo vitaskuld að ein fisktegund er seld sem önnur,“ út- skýrir Ragnhildur. Til að gefa hugmynd um um- fang matvælasvindls með sjávar- afurðir nefnir Ragnhildur banda- ríska rannsókn þar sem tekin voru þúsund fisksýni á tæplega 700 sölustöðum í Bandaríkjunum. „Reyndust 33% sýnanna rangt merkt og voru sushi-staðirnir langverstir. Sem dæmi um teg- undasvindl sem kom í ljós var að eldislax úr Atlantshafi var seldur sem villtur Kyrrahafslax eða dýr- ari tegundum túnfisks skipt út fyrir ódýrari. Sams konar rann- sókn var gerð í Brussel á dög- unum þar sem tekin voru 280 sýni hjá 150 veitingastöðum og voru 30% þeirra rangt merkt.“ Matís er þátttakandi í þremur alþjóðlegum rannsóknarverkefnum er snúa að matvælasvindli; Food- Integrity, Authent-net og Auth- enticate. Allt eru þetta stór verk- efni með marga þátttakendur, aðallega frá Evrópu, sem eru að rannsaka matvælasvik. Þátttaka Matís í þessum verkefnum hefur sýnt að svindlið nær líka til Ís- lands og segir Ragnhildur að af þeim sýnum sem Matís hafi tekið úr sjávarfangi á veitingastöðum í tengslum við þessi verkefni hafi 23% verið í ólagi. „Við tókum sýni á veitingastöðum og í ljós kom að í sumum tilvikum var tegundin sem pöntuð var ekki í samræmi við væntingar, t.d. langa seld sem þorskur eða steinbítur sem hlýri.“ Það flækir rannsóknir á mat- vælasvindli með sjávarfang að erf- itt getur verið að finna sökudólg- inn. Ragnhildur bendir á að frá því fiskurinn er dreginn um borð og þangað til hann er kominn í innkaupakörfu neytandans eða á disk veitingahúsgestsins fari hann stundum um margar hendur. „Var það sá sem veiddi fiskinn sem svindlaði eða fór svindlið fram á fiskmarkaðnum? Var það kannski í flutningum að merkingum var breytt eða var það kokkurinn sem ákvað að selja eina tegund af fiski sem aðra? Svo er heldur ekki úti- lokað að svindlið hafi ekki verið af ásetningi heldur bara afleiðing mannlegra mistaka.“ Neytendur veiti aðhald Eftirlit með matvælasvindli með sjávarfang er bæði flókið og dýrt. Ragnhildur segir að takmarkað eftirlit fyrirfinnist á Íslandi og í raun sé stundum óljóst hver fer með eftirlitshlutverk þegar kemur að þessum málaflokki hérlendis. Þó svo að Matís taki þátt í nokkr- um alþjóðlegum verkefnum sem beinast gegn svikum í viðskiptum með sjávarfang sé Matís ekki eft- irlitsaðili og ekki með neinar op- inberar eftirlitsskyldur. Það sé því að miklu leyti undir neyt- endum komið að vera á verði og veita seljendum aðhald, en Ragn- hildur segir að kraftur neytenda sé engu að síður mikill séu þeir meðvitaðir um þessi mál. „Það má fylgja fimm heilræðum til að lágmarka líkurnar á að verða fórnarlamb matarsvindls þegar keyptur er fiskur eða annað sjávarfang. Í fyrsta lagi er um að gera að spyrja spurninga, s.s. um tegund og uppruna fisksins sem á að kaupa. Í öðru lagi ætti að at- huga verðið og hafa á bak við eyr- að að ef verðið er of gott til að vera satt þá gæti matarsvindl ver- ið ástæðan,“ segir Ragnhildur og ráðleggur neytendum að hugsa sig tvisvar um áður en þeir stökkva á ódýrasta kostinn í fisk- borði eða á veitingastað. „Í þriðja lagi ætti fólk að velja seljanda sem það treystir, hvort sem um er að ræða veitingastað eða fisksal- ann á horninu. Ef fólk beinir við- skiptum sínum til fyrirtækja sem sýna það í verki að þau eru traustsins verð setur það meiri þrýsting á hina.“ Fjórða heilræðið er að kaupa fisk úr heimabyggð. „Því styttri sem virðiskeðjan er, því ólíklegra er að svindl hafi átt sér stað ein- hvers staðar á leiðinni. Þar að auki ætti sótsporið að vera minna af fiski sem keyptur er nálægt þeim stað þar sem hann kom í land,“ segir Ragnhildur. „Fimmta reglan er að kaupa vörur sem eru sem minnst unnar. Það er auð- veldara fyrir neytandann að koma auga á svindlið ef hann kaupir heilan fisk eða heilt flak frekar en bita og hvað þá fiskifingur eða -bollur.“ Svindl með fisk vandamál á Íslandi eins og annars staðar Í rannsókn á matvæla- svindli hér á landi reyndust 23% af fiski sem pantaður var á veit- ingastöðum ekki eins og haldið var fram á mat- seðlinum. Matvæla- svindl með fisk á sér stað um allan heim og þurfa neytendur að vera meðvitaðir um vandann. AFP Slóð Miklar fjárhæðir eru í húfi og flækir vandann að fiskur getur farið um margar hendur á leið sinni til neytandans, og erfitt að komast að því hvar svindlið átti sér stað. Var það við löndun, í flutningi, á markaði, hjá fisksala eða í eldhúsi veitingastaðar? Frá fiskmarkaði í Grimsby. Myndin tengist efni greinarinnar ekki beint. Morgunblaðið/Hari Samvinna „Ef fólk beinir viðskiptum sínum til fyrirtækja sem sýna það í verki að þau eru traustsins verð setur það meiri þrýsting á hina,“ segir Ragnhildur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.